Tónmenntaskóli Reykjavíkur
Tónmenntaskóli Reykjavíkur
01/06/2026
Vortónleikar og útskrift 2026🎶☀️
Síðasta miðvikudag komu um 30 nemendur fram á sviði Iðnó og léku á hin ýmsu hljóðfæri á stórskemmtilegum vortónleikum skólans. Þar með lauk skólaárinu og við hlökkum til að sjá ykkur aftur í haust!🤩
21/04/2026
Það var mikið fjör hjá okkur í dag á Barnamenningarhátíðinni.
21/04/2026
PÍANÓKENNARI
Tónmenntaskóli Reykjavíkur auglýsir eftir píanókennara. Um a.m.k. 60% framtíðarstöðu er að ræða. Mögulega er hægt að skipta stöðunni í tvennt ef hentar betur.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur er einn af elstu tónlistarskólum landsins, stofnaður 1952, og er til húsa við Lindargötu. Leitað er eftir jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi sem passar inn í hressan kennarahóp skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tónlistarkennaramenntun nauðsynleg og reynsla af tónlistarkennslu æskileg. Ekki er verra ef viðkomandi hefur reynslu af popp - og jazzpíanóleik.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2026.
Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Í umsókn þurfu að koma fram persónulegar upplýsingar um menntun, kennsluferil og meðmælendur.
Umsóknarfrestur er til 12. maí. Vinsamlega sendið umsóknir til [email protected] merktar "Píanókennari".
18/04/2026
Frábær dagur í Ráðhúsinu á Nótunni þar sem æska borgarinnar sýndi snilli sína fyrir fullu húsi❤️
18/12/2025
Hallelujah - Cover Our youngest bands. Spotlight and friendsSong by Leonard Cohen.
11/12/2025
Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 13. desember kl. 11 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.10:45.
Síðustu kennsludagar fyrir jól verða helgaðir allskyns jólasamspilum bæði í skólanum og utan hans.
Jólafrí hefst frá og með miðvikudeginum 17. desember. Skólinn hefst svo aftur mánudaginn 5. janúar.
Gleðileg jól.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Telephone
Website
Address
Lindargata 51
Reykjavík
101