Björn Jón Bragason

Björn Jón Bragason Björn Jón Bragason, sagnfræðingur, er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Björn Jón Bragason er fæddur 1. febrúar árið 1979 í Reykjavík.

Foreldrar hans eru Bragi Björnsson bifreiðastjóri (fæddur í Reykjavík 1952) og Katrín Magnúsdóttir bókhaldari (fædd í Reykjavík 1954). Menntun
Björn Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2000. Hann lauk BA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 2003 með íslensku sem aukagrein og árið 2006 lauk hann meistaraprófi í sagnfræði frá sama skóla. Lokaverkefni hans fjallaði um gjaldþrot Hafskips hf., en sú ritgerð var unnin undir leiðsögn dr. Þórs Whitehead prófessors og Kristjáns Jóhannssonar, lektors við viðskipta- og hagfræðideild. Björn Jón lauk BA prófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2012 og leggur nú stund á meistaranám í lögfræði við sama skóla. Störf
Björn Jón hefur verið verslunarmaður frá árinu 2000, framkvæmdastjóri Samtaka kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg frá 2012 og framkvæmdastjóri Félags hópferðaleyfishafa frá sumrinu 2013. Þá hefur hann unnið að margháttuðum sagnfræðirannsóknum frá 2006. Árið 2008 kom út bók hans Hafskip í skotlínu, sem var afrakstur tveggja ára rannsóknarvinnu um gjaldþrotamál Hafskips hf. og sakamálarannsókn í kjölfar þess. Meðal fræðigreina Björns Jóns eru „Áhrif veðurfars á sjávarútveg og landbúnað á fyrri öldum“, sem birtist í Sögnum. Tímariti um söguleg efni árið 2005; „Pólitískar afleiðingar Hafskipsmálsins“ sem birtist í 4. hefti Þjóðmála 2006; „Björgunarmönnum refsað. Rannsóknarnefnd Alþingis í Hafskipsmálinu“, sem birtist í Morgunblaðinu 11. október 2009 og byggði á rannsókn Björns Jóns; „Aðdragandinn að falli Straums Burðaráss“, sem birtist í 2. hefti Þjóðmála 2010; „Aðdragandi falls Landsbanka Íslands hf.“ Greinargerð frá ágústmánuði 2010, birt á netinu; „Sagan af einkavæðingu Búnaðarbankans“, sem birtist í 2. hefti tímaritsins Sögu árið 2011; „Skáldkonan frá Sveinatungu“ sem birtist í Borgfirðingabók 2012. Þá grein vann Björn Jón í samvinnu við Ingibjörgu Bergsveinsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra. Einnig hafa birst fjölmargar blaða- og netgreinar eftir Björn Jón um margvísleg málefni, meðal annars um sögu verslunar í miðbæ Reykjavíkur. Þá hefur Björn Jón einnig unnið að heimildarmyndagerð um ýmis sagnfræðileg viðfangsefni. Stjórnmálaþátttaka
Björn Jón hefur verið virkur í starfi Heimdallar og Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þá hefur hann frá árinu 2012 setið í stjórn Sjálfstæðisfélags Langholts og frá sama ári í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur starfað með Verði – fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og stýrt stjórnmálaskóla Varðar, auk þess að stýra námskeiðum á vegum Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur Björn Jón tekið þátt í starfi ungliða í hverfafélögum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Björn Jón var formaður Frjálshyggjufélagsins árin 2009–2012. Hann sat í stjórn félagsins áður frá árinu 2007.

Ýmis félagastörf
Björn Jón starfaði á vettvangi skátahreyfingarinnar um langt árabil og sömuleiðis með Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Hann var um hríð starfsmaður Alþjóðabandalags drengjaskáta, WOSM, í Kandersteg í svissnesku Ölpunum og þá gegndi hann störfum á vegum Boy Scouts of America í Philmont, New Mexico. Björn Jón lauk æðstu þjálfun skáta og Íslandi og æðstu prófmerkjum. Fyrir störf sín hefur hann hlotið gullmerki Bandalags íslenskra skáta og ýmis fleiri heiðursmerki. Björn Jón hefur um iðkað frjálsar íþróttir með Íþróttafélagi Reykjavíkur um árabil. Hans meginkeppnisgrein er 400 m hlaup. Björn Jón sat í stjórn Félags sagnfræðinema árin 2002–2003 og 2005–2006.

Fyrsti þáttur Sögu & samfélags er kominn á vefinn. Gestir mínir voru þeir Bolli Thoroddsen, formaður japansk-íslenska vi...
04/11/2019

Fyrsti þáttur Sögu & samfélags er kominn á vefinn. Gestir mínir voru þeir Bolli Thoroddsen, formaður japansk-íslenska viðskiptaráðsins, og Ólafur Arnarson, hagfræðingur og rithöfundur.

Hringbraut er ókeypis sjónvarps- og vefmiðill sem leggur áherslu á upplýsandi, fræðandi og trúverðuga umræðu í fjöldamörgum þáttum sem sýndir eru í hverri viku. Þá er auðvelt að nálgast á rás 7 hjá Símanum, rás 9 á Vodafone og 35 á örbylgjunni. Eins má horfa á ýmsa...

03/10/2019

Síversnandi umferðarteppur á höfuðborgarsvæðinu kalla á nýjar og hagkvæmar lausnir. Brú yfir Skerjafjörð myndi létta verulega á umferð og skapa hringtengingu á svæðinu. Hún er einfalt mannvirki og mun ódýrari en þær lausnir sem nú eru uppi á borðum.

Hér má sjá viðtal mitt við Stefaníu Óskarsdóttur frá því í gær.
14/11/2018

Hér má sjá viðtal mitt við Stefaníu Óskarsdóttur frá því í gær.

Viðtal Björns Jóns Bragasonar við Stefaníu Óskarsdóttur, stjórnmálafræðingu um bandarísku stjórnmálin eftir þingkosningar ytra.

Nýjasta viðtalið á Hringbraut.
27/10/2018

Nýjasta viðtalið á Hringbraut.

Nú er þess víða minnst að liðin er öld frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Þá var stofnað konungsríkið Ísland og Kristján X. varð þar með konungur í nýju sjálfstæðu konungsríki. Dr. Magnús K. Hannesson, starfsmaður utanríkisþjónustunnar, hefur rannsa...

18/10/2018

Ólafur Kr. Guðmundsson er viðmælandi minn í þættinum 21 í kvöld, en hér má sjá stiklu úr þættinum.

Hér má sjá nýjasta viðtal mitt í þættinum 21 á Hringbraut.
17/10/2018

Hér má sjá nýjasta viðtal mitt í þættinum 21 á Hringbraut.

Líklega var ekkert mál jafn umtalað í kjölfar bankahrunsins fyrir tíu árum og Icesave-málið og beiting hryðjuverkalaganna í Bretlandi. InDefence-hópurinn t

22/05/2018

Reykjavík framtíðarinnar – ný sýn í skipulagsmálum. Færum miðpunkt byggðarinnar á höfuðborgarsvæðinu vestar með nýjum hverfum norðan og sunnan við miðbæ Reykjavíkur – í Örfirisey, Engy og á Álftanesi. Bætum tengingar og styrkjum þá miklu fjárfestingu sem liggur miðsvæðis í Reykjavík. Þannig byggjum við heilsteyptari og líflegri borg.

Sérstakar þakkir til Guðjóns Erlendssonar arkitekts.

Vörumst vinstri slysin!
18/05/2014

Vörumst vinstri slysin!

"Í nýju aðalskipulagi vinstrimeirihluta Dags B. Eggertssonar í Reykjavík er gert ráð fyrir blokkarbyggð þar sem nú eru trjáreitir norðan Suðurlandsbrautar, sjá meðfylgjandi mynd, en á sama tíma eru uppi ráðagerðir um að Suðurlandsbraut verði þrengd í eina akrein í hvora átt. Hvað sem líður skoðunum fólks á "þéttingu byggðar" er afar varhugavert að skerða framtíðar íþrótta- og útivistarsvæði borgarbúa," segir Björn Jón Bragason, frambjóðandi XD í Reykjavík, í pistli sínum í Mogganum í dag.

Undirritaðan langar að varpa fram þeirri hugmynd að Ingólfstorg verði lagt niður í núverandi mynd og Hótel Ísland og Aus...
04/05/2014

Undirritaðan langar að varpa fram þeirri hugmynd að Ingólfstorg verði lagt niður í núverandi mynd og Hótel Ísland og Austurstræti 1 endurreist þess í stað.

"Undirritaðan langar að varpa fram þeirri hugmynd að Ingólfstorg verði lagt niður í núverandi mynd og Hótel Ísland og Austurstræti 1 endurreist þess í ...

Kæru vinir og samherjarÉg mun skipa ellefta sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, en list...
16/01/2014

Kæru vinir og samherjar

Ég mun skipa ellefta sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, en listinn var samþykktur á fundi fulltrúaráðsins fyrr í dag. Nú horfum við bjartsýn fram á veginn og höfum sigur í kosningunum í vor!

Áfram Reykjavík!

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var samþykktur á fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, rétt í þessu. Listann skipa fimmtán karlar og fimmtán konur, þar af fimm karlar og fimm konur í tíu efstu sætunum.

Kæru vinir og samherjarÞrátt fyrir að árangur minn í prófkjörinu hafi verið fjarri mínum vonum, en ég hafnaði í 12. sæti...
19/11/2013

Kæru vinir og samherjar

Þrátt fyrir að árangur minn í prófkjörinu hafi verið fjarri mínum vonum, en ég hafnaði í 12. sæti, þá er ég ákaflega þakklátur fyrir þann fjölda fólks sem ég kynntist í baráttunni og allan fróðleikinn um borgarmálin. Ég fékk að kynnast málefnum miðbæjarins hjá Gunnari gleraugnakaupmanni, Hildi Símonardóttur kaupmanni, Binna í Brynju, Frank Michelsen úrsmið, Jóni gullsmið, Pétri Sveinbjarnarsyni frkvstj. og Bolla í 17. Gestur Ólafsson, arkítekt og skipulagsfræðingur, fræddi mig um húsbyggingar og lóðamálin í Reykjavík. Hjá Berglindi Magnúsdóttur forstöðumanni fékk ég að kynnast heimaþjónustu borgarinnar. Ólafur Kr. Guðmundsson, öryggisfulltrúi FÍB, fræddi mig um umferðarmálin. Þór Jakobsson veðurfræðingur veitti mér margvíslegan fróðleik um veðurfarið í borginni og hvernig mætti hafa áhrif á það. Magnús Erlendsson, fyrrv. forseti bæjarstjórnar á Nesinu, fræddi mig um sveitarstjórnarmálin og það gerði Vilhjálmur Þ., fyrrv. borgarstjóri, einnig. Hjá Sigurði Inga Jónssyni, forseta Flugmálafélagsins, og mörgum öðrum flugmönnum fékk ég margvíslega vitneskju um nauðsyn flugvallarins og framtíðarmöguleika. Ívar Örn Guðmundsson arkítekt kynnti fyrir mér ýmsar framtíðarhugmyndir í borgarlandinu. Jón Þorvaldsson aðstoðarhafnarstjóri fræddi mig um sögu og framtíð Reykjavíkurhafnar. Halldór Guðmundsson arkítekt fræddi mig um mögulega byggð á eyjunum á Sundunum. Jónas Egilsson, frkvstj. Frjálsíþróttasambandsins, sagði mér frá íþróttamálunum, Gísli Jón Hjartarson útgerðarstjóri veitti mér ýmsan fróðleik um sjávarútveginn í borginni. Og svo mætti lengi telja. Mörg rit og skýrslur veittu mér fróðleik og innblástur og ber þar hæst að nefna ævisögur borgarstjóranna Knud Zimsen og Jóns Þorlákssonar og Gunnars Thoroddsen, auk fjölmargra ritgerða og skrifa forystumanna sjálfstæðismanna í borginni síðustu 84 ár. Formönnum og stjórnarmönnum flokksfélaganna í Reykjavík þakka ég mikið og gott samstarf síðustu misseri. Og síðast en ekki síst þakka ég kosningastjórninni minni, fjölskyldu og vinum fyrir að hafa haft óbilandi trú á mér í baráttunni.

Þrátt fyrir mikil vonbrigði með úrslitin þá er mér efst í huga þakklæti. Fyrir mér snúast stjórnmálin um málefni og framtíðarsýn umfram allt.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björn Jón Bragason posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category