Lagadeild Háskóla Íslands

Lagadeild Háskóla Íslands

Share

Upplýsingasíða Lagadeildar HÍ
https://www.instagram.com/logfraedi_hi/ Upplýsingasíða Lagadeildar HÍ

17/06/2026

Á þjóðhátíðardaginn fögnum við lýðveldinu Íslandi en frá sjónarhóli lögfræðinnar er dagurinn líka stórmerkilegur.

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands tók gildi 17. júní 1944. Þar er lagður grunnur að stjórnskipun ríkisins, hlutverki Alþingis, forseta, stjórnvalda og dómstóla.

Þess vegna má segja að 17. júní sé ekki bara dagur fána og hátíðahalda heldur líka dagur laga, lýðræðis og réttarríkis.

Gleðilegan þjóðhátíðardag frá Lagadeild Háskóla Íslands.

Photos from Lagadeild Háskóla Íslands's post 15/06/2026

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í lögfræði

Síðastliðinn fimmtudag bauð Lagadeild Háskóla Íslands til móttöku þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur.

Við óskum verðlaunahöfunum innilega til hamingju með glæsilegan árangur:

Nói Pétur Á. Guðnason
Hvatningarverðlaun Codex fyrir hæstu einkunn í námskeiðum 1. árs við Lagadeild HÍ.

Salka Sigmarsdóttir
Viðurkenning Hollvinafélags Lagadeildar fyrir hæstu einkunn á BA-prófi frá Lagadeild HÍ námsárið 2025–2026.

Kristín Hekla Örvarsdóttir
Viðurkenning LOGOS fyrir hæstu einkunn á mag. jur.-prófi frá HÍ námsárið 2025–2026.

Mónika Rós Thorarensen
Viðurkenning LLG Lögmanna fyrir bestu meistararitgerðina við Lagadeild HÍ.

Innilega til hamingju!

Laganemar náðu góðum árangri í Norrænu málflutningskeppninni 15/06/2026

Laganemar við Háskóla Íslands náðu frábærum árangri í Norrænu málflutningskeppninni sem fram fór í Reykjavík 5.–7. júní.

Lið Lagadeildar komst í undanúrslit og Helga Margrét Ólafsdóttir var valin besti málflytjandinn í sínum riðli.

Innilega til hamingju!

Laganemar náðu góðum árangri í Norrænu málflutningskeppninni Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Photos from Lagadeild Háskóla Íslands's post 12/06/2026

Þarf að breyta stjórnarskrá Íslands ef til aðildar að Evrópusambandinu kæmi?

Á hádegismálstofu Lagastofnunar Háskóla Íslands var fjallað um stjórnarskrárleg álitaefni vegna mögulegrar aðildar Íslands að ESB og niðurstöður nýlegrar álitsgerðar sem unnin var fyrir utanríkismálanefnd Alþingis.

Framsögumenn voru Arnaldur Hjartarson aðjunkt og Hafsteinn Þór Hauksson dósent.

Nánar á vef Lagastofnunar.
https://lagastofnun.hi.is/is/malstofa-um-naudsyn-stjornarskrarbreytinga-vegna-mogulegrar-adildar-ad-esb

11/06/2026
04/06/2026

Umsóknarfrestur til að sækja um nám við Háskóla Íslands rennur út á morgun!
Ekki missa af tækifærinu til að taka næsta skref í námi.
Sæktu um á hi.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní.

20/05/2026

Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands, flutti erindi og tók þátt í umræðum á ráðstefnunni Legal Education in Europe and Estonia in Light of the Digital Future, sem fram fór í Tallinn háskóla í Eistlandi dagana 14.–15. maí.

Ráðstefnan fjallaði meðal annars um samkeppni lagadeilda og framtíð lögfræðimenntunar í Evrópu í ljósi stafrænnar þróunar og þeirra breytinga sem tæknin, þar á meðal gervigreind, hefur í för með sér fyrir nám, kennslu og störf lögfræðinga.

Photos from Lagadeild Háskóla Íslands's post 14/05/2026

Akademískt starfsfólk Lagadeildar HÍ er virkt í alþjóðlegu fræðastarfi.

Kári Hólmar Ragnarsson, dósent í stjórnskipunar- og þjóðarétti, var meðal skipuleggjenda vinnustofu DEFIDEM rannsóknarverkefnisins sem fór nýverið fram í UCD Sutherland School of Law í Dublin.

Þátttakendur komu frá Frakklandi, Króatíu, Ungverjalandi, Ítalíu, Írlandi og Íslandi, en frá Háskóla Íslands tóku þátt Kári Hólmar, Jón Ólafsson prófessor og Sævar Finnbogason doktorsnemi.

DEFIDEM verkefnið fjallar um stofnanaumgjörð rökræðulýðræðistilrauna þar sem almenningur tekur beinan þátt. Í vinnustofunni var sjónum beint að hlutverki sérfræðinga og fjölluðu íslensku þátttakendurnir sérstaklega um aðkomu sérfræðinga að tilraunum til breytinga á stjórnarskránni á árunum 2010–2022.

Nánar um DEFIDEM verkefnið:
https://defidem1.wixsite.com/defidem/en/copie-de-2024

12/05/2026

Kennarar Lagadeildar HÍ tóku þátt í Norrænu fjármunaréttardögunum sem fór fram í Álaborg dagana 28.–30. apríl.

Valgerður Sólnes tók þátt í málstofu um skaðabótaábyrgð stjórnvalda og bætur vegna brota á Mannréttindasáttmála Evrópu. Víðir Smári Petersen flutti erindi um hvort mannréttindi eigi að hafa áhrif á meginreglur fjármunaréttar og stýrði einnig málstofu um fjármunarétt sem sameiginlega norræna fræðigrein.

Frábært að sjá sterka þátttöku frá Lagadeild HÍ á norrænum vettvangi.

07/05/2026

Högni Alvar Harðarson Önnuson er að klára annað árið sitt í lögfræði og deilir hér sínum prófatíðarráðum

Högni lærir helst með vinum sínum og segir góðan félagsskap skipta miklu máli í prófatíðinni. Hans besta undirbúningstaktík er að fara yfir gömul próf, renna vel yfir glærur og minna sig reglulega á að þetta reddist allt á endanum.

Þegar þreytan hellist yfir er korterspása oft besta lausnin, þó kaffibollarnir hafi líka fengið að hjálpa aðeins til. Og þegar stressið tekur yfir mælir Högni með sundi, saunu eða bara því að halda áfram og taka þetta ekki of alvarlega.

Uppáhalds lærdómsstaðurinn?
Að sjálfsögðu Lögberg. Ekkert annað kemur til greina.

Prófatíðarhackið hans Högna er einfalt: læra í góðum félagsskap, halda ró sinni og muna að heimurinn ferst ekki þó prófatíðin sé erfið.

Við óskum Högna góðs gengis í prófunum!

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Sæmundargötu 2
Reykjavík
102

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00