Ökukennsla Ólafs

Ökukennsla Ólafs - Ökukennsla fyrir almenn ökuréttindi (B)
- Akstursmat
- Kenni á beinskipta bifreið (Dacia Duster Extreme) Er giftur Unni Maríu Sólmundsóttur, kennara.

Ég heiti Ólafur Gunnar Sævarsson og er fæddur árið 1980. Ég er fjölskyldumaður og bý í Breiðholti. Við eigum saman 2 börn sem eru á táningsaldri.

Ég hef starfað í lögreglunni síðan 2002 í almennri deild, í rannsóknardeildum. Síðastliðin 18 ár hef ég starfað í umferðardeildinni þar sem ég sinni fyrst og fremst umferðarlöggæslu á mótorhjóli þegar veður til þess leyfir :) Ég kenni og þjálfa lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu í akstri með forgangi (forgangsakstur). Þá kenni ég lögreglunemum forgangsakstur nokkrum sinnum á ári hjá Mennta -og fræðslusetri lögreglunnar. (MSL).

Ég hef verið starfandi ökukennari síðan 2018 og hefur gengið vel í ökukennslunni sem er mjög gefandi og skemmtileg. Kenni ég fólki á öllum aldri og á meðal nemenda minna er fólk sem sest hefur hér að frá Asíu, Afríku og Bandaríkjunum og víðar. Í þeim tilfellum hefur kennslan oft farið fram á ensku.

Ég legg mig fram við að vera með hlýja og góða nærveru og er mjög þolinmóður og kurteis. Góð samskipti ökukennara og nemanda skipta miklu máli og til þess að nemanda líði vel þarf ökukennari að hafa þessi atriði í góðu lagi. Nemanda sem líður vel í ökutímum gengur betur í akstrinum og að læra alla þessa nýju hluti sem tengjast akstri í umferðinni. Ég hef mikla reynslu af því að kenna nemendum sem eru með ADHD og einhverfu. Þessir nemendur náðu góðum árangri hjá mér.

Ég hef gaman af gönguferðum og útivist. Þá hreyfi mig reglulega með því að stunda hlaup, hjólreiðar, brasilískt ju jitsu og lyftingar. Þá er ég mikill áhugamaður um umferðaröryggismál, bíla, körfuknattleik o.fl.

Address

Ósabakki 1
Reykjavík
109

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ökukennsla Ólafs posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Ökukennsla Ólafs:

Shortcuts

Share

Category