Seljaskóli

Seljaskóli Seljaskóli tók til starfa haustið 1979. Seljaskóli er heildstæður skóli með nemendur frá 1. - 10. bekk. Nemendafjöldi er u.þ.b. 650.

Náttúrufræðistofa unglingadeildar í Seljaskóla, með Evu Maríu náttúrufræðikennara í fararbroddi, hefur eignast s*x förus...
04/09/2026

Náttúrufræðistofa unglingadeildar í Seljaskóla, með Evu Maríu náttúrufræðikennara í fararbroddi, hefur eignast s*x förustafi (stick insect). Förustafir eru skordýr en það eru til margar tegundir af þeim erlendis. Förustafirnir í Seljaskóla eru indversk tegund sem unir sér vel í búri með næga fæðu og góðan raka. Nemendum stendur til boða að halda á förustöfunum en þeir eru hægfara og dansa stundum til að herma eftir litlum greinum sem hreyfast í vindi. Þeir falla vel inn í náttúrulegt umhverfi sitt enda líta þeir út eins og litlar greinar en þeir þurfa því að hafa grein inni í búrinu til að hanga á.
Nemendur í Seljaskóla læra að bera virðingu fyrir þessum skordýrum en förustafir eru viðkvæmir og það þarf að sýna mikla nærgætni þegar verið er að handleika þá. Förustafirnir eru ungir og munu vonandi koma til með að stækka og dafna enn frekar. Í dag fengu spenntir og áhugasamir nemendur í 2. bekk að skoða förustafina og handleika en þau áttu það öll sameiginlegt að sýna ávallt mikla nærgætni.

Foreldrar og forráðamenn í unglingadeild, 8.-10.bekk athugið.Mentor er eitthvað að stríða okkur, svo við vitum að það fe...
24/08/2026

Foreldrar og forráðamenn í unglingadeild, 8.-10.bekk athugið.

Mentor er eitthvað að stríða okkur, svo við vitum að það fengu ekki allir tölvupóstur sem var sendur heim með þessum upplýsingum.

20/08/2026
Nú eru nemendur farnir í langþráð sumarfrí og ekki amalegt að fyrsti dagur frísins skuli heilsa með veðurblíðu. ☀️ Skóli...
11/06/2026

Nú eru nemendur farnir í langþráð sumarfrí og ekki amalegt að fyrsti dagur frísins skuli heilsa með veðurblíðu. ☀️ Skólinn hefst á ný í ágúst. Skólasetning hjá nemendum í 2.–10. bekk verður mánudaginn 24. ágúst og hjá nemendum í 1. bekk þriðjudaginn 25. ágúst. Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar.

Í tilefni sumarsins er viðeigandi að birta þessa glaðlegu mynd af hluta starfsfólks skólans en á bak við peysurnar leynist skemmtileg saga.

Jóhanna Hildur Hansen, kennari við Seljaskóla, hefur undanfarin tvö ár boðið unglingum upp á prjónavalfag sem hefur notið mikilla vinsælda. Reyndar hefur áhuginn verið svo mikill að færri hafa komist að en vildu. Í október síðastliðnum kviknaði sú hugmynd að stofna prjónaklúbb fyrir starfsfólk skólans og mætingin lét ekki á sér standa.

Í hópnum voru bæði reyndir prjónarar og þau sem voru að stíga sín fyrstu skref í prjónaskapnum. Þau reyndari leiðbeindu hinum, meðal annars við að kenna þeim að prjóna brugðnar lykkjur og eftir fyrsta klúbbkvöldið fengu byrjendurnir meira að segja garn og prjóna lánaða frá þeim sem lengra voru komin. Fljótlega fóru húfur að líta dagsins ljós og prjónarnir voru alltaf á lofti í frímínútum, kaffipásum og á notalegum prjónakvöldum yfir skólaárið.

Ekki leið á löngu þar til sú skemmtilega hugmynd kom upp að prjónahópurinn myndi prjóna sér eins peysur. Hópurinn fór saman að kaupa garn og afraksturinn má sjá á myndinni. Allar sem ákváðu að prjóna peysu náðu að klára fyrir vorið og margar hafa meira að segja prjónað fleiri en eina peysu.

Það var líka einstaklega gaman að sjá hvernig prjónaáhuginn smitaðist yfir til nemenda. Í vetur mátti stundum sjá unglinga hreiðra um sig í sófanum á bókasafninu með prjóna í höndunum og kennarar slógust jafnvel í hópinn í frímínútum. Það er því nokkuð ljóst að mikil ásókn verður í prjónavalfagið hjá Jóhönnu næsta vetur. 🧶

Við óskum nemendum og forráðamönnum gleðilegs sumars og hlökkum til að hitta alla káta og hressa að loknu fríi. Og munið: það er bæði mikilvægt og skemmtilegt að viðhalda lestrarkunnáttunni yfir sumarið með lestri á góðum bókum ... og svo er alls ekki vitlaust að grípa í prjónana líka! ❤️

Nemendur í 10. bekk hafa undanfarnar átta vikur unnið að lokaverkefni í dönsku undir handleiðslu Antons Orra Dagssonar d...
02/06/2026

Nemendur í 10. bekk hafa undanfarnar átta vikur unnið að lokaverkefni í dönsku undir handleiðslu Antons Orra Dagssonar dönskukennara. Verkefnið var bæði metnaðarfullt og skapandi en nemendur fengu það hlutverk að hanna og útbúa sitt eigið borðspil.

Í verkefninu reyndi á frumkvæði, hugmyndaauðgi, samvinnu og vandaða danska málnotkun. Nemendur þurftu að þróa leikjahugmynd frá grunni, hanna spilaborð og fylgihluti, semja skýrar leikreglur á dönsku og skila jafnframt greinargerð um vinnuferlið.

Nýlega voru borðspilin kynnt og afhent og óhætt er að segja að afraksturinn hafi vakið mikla hrifningu! Spilin bera með sér mikla vinnu, nákvæmni og metnað, hvort sem litið er til hugmynda, útlits, leikmanna, spilaborða eða reglna. Þar mátti sjá fjölbreyttar og frumlegar lausnir þar sem sköpunargleðin fékk svo sannarlega að njóta sín.

Við í Seljaskóla erum afar stolt af þessum frábæru nemendum og því sem þau hafa lagt í verkefnið. Það verður sannarlega eftirsjá að þessum glæsilega hópi þegar þau útskrifast í vor en um leið er ánægjulegt að fá að fylgjast með þeim vaxa, skapa og blómstra í verkefni sem þessu.

Nemendur í 7. bekk Seljaskóla frumsýndu nýverið söngleikinn Glymskrattinn. Glymskrattinn er frumsaminn söngleikur sem by...
01/06/2026

Nemendur í 7. bekk Seljaskóla frumsýndu nýverið söngleikinn Glymskrattinn. Glymskrattinn er frumsaminn söngleikur sem byggður er á bókinni Hljóðspor og blandar saman sögu rytmísku tónlistarinnar og sögulegum staðreyndum á skapandi og lifandi hátt.
Sandra sviðlistarkennari við skólann skrifaði handritið, samdi dansana og leikstýrði verkinu ásamt því að hanna og sauma búningana. Þórir og Rósalind sáum um tónlistarstjórn og tæknimál og umsjónakennarateymið í 7. bekk, Lena, Egill, Siddý og Ingibjörg, brugðu sér í fjöldamörg hlutverk eins og leikmyndahönnuða, sýningarstjóra, æfingastjóra og ótal fleiri. Allir þessir kennarar eiga hrós skilið fyrir frábæra vinnu.
Sýningin er afrakstur metnaðarfullrar samvinnu nemenda og kennara þar sem handritið hefur verið opið og lifandi í gegnum allt ferlið. Nemendur hafa sjálfir komið með hugmyndir að breytingum, bætt við senum og tekið virkan þátt í mótun verksins frá upphafi til enda.
Tónlistarvalið var einnig í höndum nemenda sem völdu sjálf lög til að syngja, spila og dansa við. Útkoman varð kraftmikil og fjölbreytt sýning þar sem gleði, sköpunarkraftur og samvinna fengu að njóta sín til fulls.
Við hér í Seljaskóla viljum meina að þetta sé mögulega eitt stærsta hópavinnuverkefni sem hefur verið framkvæmt í grunnskóla en 86 nemendur unnu saman að leiksýningunni.

Alls voru sýningar s*x talsins og var fullt hús á hverri sýningu. Viðtökurnar voru einstaklega góðar og stemningin bæði á sviði og í sal einkenndist af mikilli gleði og stolti.

Glymskrattinn er skýrt dæmi um hvað gerist þegar nemendur og kennarar fá tækifæri til að skapa, hafa áhrif og vinna saman að sameiginlegu markmiði! 🥰

Sást þú sýninguna? Hvað fannst þér? Það væri gaman að fá að heyra í athugasemdum! ☺️

Nemendur í myndlistarvali í Seljaskóla hafa undanfarið unnið að glæsilegu listaverki á 56 metra löngum vegg við skólann....
28/05/2026

Nemendur í myndlistarvali í Seljaskóla hafa undanfarið unnið að glæsilegu listaverki á 56 metra löngum vegg við skólann. Veggurinn, sem lengi hefur prýtt umhverfi skólans, var farinn að láta á sjá og því var ákveðið að gefa honum nýtt líf með aðkomu nemenda.

Verkefnið á rætur að rekja til samstarfs foreldrafélaga í Breiðholti sem vilja stuðla að jákvæðu og skapandi andrúmslofti í hverfinu. Þar sem nemendur skólans eru helstu áhorfendur verksins lá beint við að þau fengju sjálf að taka þátt í hönnun þess og framkvæmd.
Margrét Gyða Jóhannsdóttir, myndlistarkennari við Seljaskóla, stýrði verkefninu með nemendum í myndlistarvali úr 8.–10. bekk. Vinnan hófst á haustönn 2025 og tóku tveir valhópar þátt, annar á haustönn og hinn á vorönn.

Einkunnarorð skólans; samvinna, ábyrgð, traust og tillitssemi, urðu grunnurinn að hönnun veggjarins. Nemendur unnu í hópum og fékk hver hópur eitt orð til útfærslu. Í undirbúningnum ræddu þau meðal annars leturgerðir, liti, skreytingar og hvað þarf að hafa í huga þegar listaverk eru unnin í almenningsrými. Þau veltu fyrir sér hverjir myndu sjá verkið og hvaða áhrif það gæti haft á umhverfi skólans.

Þegar skissur nemenda voru tilbúnar setti Margrét þær saman í eina heildarmynd svo allir hópar ættu verk á veggnum og ljóst væri hvernig heildin myndi líta út. Siddý Erla, kennari við skólann, kom einnig að litavinnu og frekari útfærslu hönnunarinnar.

Listamaðurinn Árni Már tók þátt í verkefninu og miðlaði nemendum af reynslu sinni úr heimi götulistar. Hann kynnti þeim eigin listferil og fjölbreyttar leiðir innan myndlistar og kenndi þeim meðal annars að búa til stensla fyrir spreyvinnuna. Nemendur gátu ýmist unnið með stensla eða málað fríhendis á vegginn. Margir völdu að vinna fríhendis og sýndu þar mikla áræðni og sköpunargleði.

Sjálf framkvæmdin fór fram á þremur dögum. Finnbogi Þorsteinsson, málarameistari, faðir nemanda í skólanum og jafnframt íbúi við vegginn, undirbjó flötinn með því að laga múr, hreinsa og grunna áður en nemendur hófu vinnu. Sverrir og Valdi í stjórn foreldrafélagisins sáu um fjármál, leyfi, styrki frá borginni og samskipti við fjölmiðla en Árni Már sá um innkaup á efninu. Verkefnið naut einnig góðs af ríflegum afslætti frá Slippfélaginu og Málningu hf.

Nemendur tóku virkan þátt í öllum stigum ferlisins, frá fyrstu hugmyndum og skissum yfir í lokaútfærslu á veggnum. Undir lokin bættust fleiri nemendur í hópinn, með samþykki valhópanna, og hjálpuðu vinum sínum að ljúka verkinu þegar á þurfti að halda.

Margrét Gyða myndlistarkennari segir verkefnið hafa verið einstaklega ánægjulegt samstarf og að sérstaklega gleðilegt hafi verið að sjá nemendur blómstra í ferlinu. Á meðan á framkvæmdinni stóð varð svæðið við skólann lifandi og skapandi vettvangur þar sem nemendur fengu tækifæri til að setja mark sitt á nærumhverfi sitt.

Seljaskóli er afar stoltur af nemendum sínum og öllum þeim sem komu að verkefninu. Veggurinn er nú litrík og lifandi áminning um sköpunarkraft, samvinnu og gildi skólans. ❤️

https://www.visir.is/g/20262886581d/nem-endur-i-seljaskola-graffa-56-metra-lista-verk-vid-skolann

https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/bfblnl/60-metra-vegglistaverk

Hér í Seljaskóla búum við svo vel að eiga þétt og öflugt bakland í foreldrasamfélaginu okkar. Í dag fengum við sendan fr...
26/05/2026

Hér í Seljaskóla búum við svo vel að eiga þétt og öflugt bakland í foreldrasamfélaginu okkar. Í dag fengum við sendan frá þeim óvæntan glaðning í kaffitímanum með þökkum fyrir veturinn! 😍👌🏼
Hjartans þakkir fyrir okkur kæru foreldrar! ❤️

Á myndinni eru Börkur og Guðríður frá stjórn foreldrafélagsins.

Í dag var vorhátíð Seljaskóla haldin með pomp og prakt! 🤹☀️Það var líf og fjör á skólalóðinni í frábæru veðri þegar neme...
21/05/2026

Í dag var vorhátíð Seljaskóla haldin með pomp og prakt! 🤹☀️
Það var líf og fjör á skólalóðinni í frábæru veðri þegar nemendur, starfsfólk og fjölmargir forráðamenn og systkini komu saman og nutu dagsins. Í boði voru meðal annars hoppukastalar, veltibíllinn, karaoke og risasápukúlur sem vöktu mikla lukku.
Allir fengu popp, frostpinna og safa við góðar undirtektir. Hápunktur vorhátíðarinnar var þegar VÆB-bræður tróðu upp með tónlist og stuði! 🎶
Frábær dagur í Seljaskóla og við þökkum kærlega fyrir góða samveru. 🤗

Á tilnefningarathöfn Sagna fyrir helgi hlutu höfundar sautján smásagna viðurkenningu fyrir sögurnar sínar.Sögurnar verða...
18/05/2026

Á tilnefningarathöfn Sagna fyrir helgi hlutu höfundar sautján smásagna viðurkenningu fyrir sögurnar sínar.
Sögurnar verða gefnar út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þann 1. júní. Ritstjórinn í ár er enginn annar en Gunnar Helgason 👏

Einn hæfileikaríkur nemandi í Seljaskóla var meðal vinningshafanna! 🥳Ekki nóg með það heldur var sagan hennar myndlýst af öðrum nemanda Seljaskóla og hlutu þær því báðar viðurkenningu!

Sagan heitir: Skrýtna jólagjöfin og er eftir Tinnu Karenu Jóhannesdóttur í 6. bekk. Myndhöfundur er Elín Sóley Sande e Castro, einnig í 6. bekk.

Til hamingju stelpur!🥳

Address

Kleifarsel 28
Reykjavík
109

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 15:00

Telephone

+3544117500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seljaskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share