04/02/2026
https://tskoli.is/frettir/throunarverkefni-i-grafiskri-midlun/
Þróunarverkefni í grafískri miðlun | Tækniskólinn
Spjaldanna á milli er heiti á samstarfsverkefni Tækniskólans og Iðunnar fræðsluseturs sem snýr að endurnýtingu bókakápa og leiðum til að viðhalda og miðla h ...
05/12/2025
Hittumst á sýningunni í Vatnsholti kl. 15
18/11/2025
Eftir að hafa prófað snyrtifræði og starfað á leikskóla um tíma, skipti hún um stefnu, sem leiddi hana í grafíska miðlun. Hrafnhildur er 24 ára og ólst upp í Kópavogi. Lengi vel hugsaði hún sér að fara í nám í ljósmyndun, en ákvað á síðustu stundu að skrá sig í grafíska miðlun, sem reyndist vera nákvæmlega það sem hún var að leita að. Námið snertir svið hönnunar, prentunar, stafrænnar miðlunar og ljósmynda 📸
◇
„Við fáum að kynnast öllu ferlinu frá fyrstu hugmynd til fullbúins verks og vinna verkefni sem nýtast vel þegar þau stíga inn á skapandi vinnumarkað. Námið ýtir undir frumleika, lausnamiðaða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.“
◇
Hrafnhildur útskrifast í desember með flottum og samheldnum hópi nemenda. Nú eru þau á lokasprettinum að undirbúa útskriftarsýningu sem verður haldin 5. Desember næstkomandi klukkan 15. Þema sýningarinnar er Murder Mystery. Hrafnhildur hefur tekið virkan þátt í skipulagningunni og nýtur þess að vinna verkefni utan hefðbundinna kennslustunda. Hrafnhildur útskrifast einnig með stúdentspróf, sem hún hefur lært samhliða náminu, en hún hefur þegar ákveðið að rauða útskriftarhúfan verði fyrir valinu. „Ég er bara mikið meira töff með þá húfu.“ Segir Hrafnhildur og brosir 😊
◇
Að loknu námi stefnir Hrafnhildur á vinnumarkaðinn. Hún veit ekki hvert draumastarfið er, en hún veit að hún nýtur sín best í skapandi umhverfi, með skemmtilegu fólki 👌
◇
Aðspurð hvort hún myndi mæla með námi í grafískri miðlun, svarar Hrafnhildur hiklaust játandi, hún segir að námið sé fjölbreytt og veiti nemendum bæði tæknilega og skapandi hæfni, sem nýtist á margvíslegan hátt 👏
◇
„Grafísk miðlun er ótrúlega góður grunnur sem þú getur byggt framtíð þína á.“
10/10/2025
Á myndinni er Steinunn nemandi í grafískri miðlun með áherslu á bókband að gefa 20 ára bókinni minni "Grafísk miðlun" nýtt útlit :) Bókin mín var orðin ansi lúin eftir mikla notkun en takk Steinunn fyrir nýja útlitið á bókinni (sjá myndina til hægri)
02/09/2025
Jakob Bjarni Ingason keppir í grafískri miðlun á Evrópumótinu í Herning í september. Hann býr í Grafarvogi, hefur mikla þörf fyrir að skapa og er þakklátur náminu í grafískri miðlun í Tækniskólanum.
„Ég byrjaði í náminu í grafískri miðlun en skipti svo yfir í opna braut í MH. Ég lauk náminu í MH en það var alltaf eftirsjá í mér að hafa hætt í grafískri miðlun og ég ákvað því að snúa aftur í Tækniskólann og klára námið í grafískri miðlun.“
Hann hefur auðvitað líka áhugamál fyrir utan námið og nefnir vinylplötur, ræktina og sjálfsrækt, tölvuleiki og þá er hann forfallinn fótboltaunnandi. Liverpool er hans lið!
Hvert er hans mottó? „Að gleyma því aldrei hver ég er eða hvaðan ég kem,“ segir hann.
Að sjálfsögðu þarf Jakob að gefa bæði upp sinn uppáhaldslit og font! „Það er rauður með bleikum undirtón og þótt að það séu margir fontar í uppáhaldi verð ég að nefna Helvetica sem er stílhreint letur sem virkar í hreinlega allt.“