Tæknimenntaskólinn / The School of General Academic Studies and Design

Tæknimenntaskólinn / The School of General Academic Studies and Design Hlutverk Tæknimenntaskólans er tvíþætt. Annars vegar stunda nemendur allra undirskóla eða bra Góður grunnur – greið leið
Hlutverk Tæknimenntaskólans er tvíþætt.

Annars vegar stunda nemendur allra undirskóla eða brauta Tækniskólans þar nám í bóklegum greinum, s.s. ensku, íslensku og stærðfræði. Hins vegar útskrifast nemendur með stúdentspróf frá skólanum. Nýtt nám:
Hönnunar- og nýsköpunarbraut
Markmið Hönnunar- og nýsköpunarbrautar er að búa nemendur undir hönnunar- og tæknitengdar greinar á háskólastigi. Náminu lýkur með stúdentsprófi og er ætlað að brúa bil á milli verklegarar og tæknilegrar þekkingar og aðferða í hönnun þar sem unnið er með hönnunarferli í lausnaleit. Sérstök áhersla er á vinnu með verklag, nýsköpun og sjálfbærni. Að námi loknu eiga nemendur að vera með góðan undirbúning fyrir nám sem reynir á skapandi vinnu, lausnaleit og frumkvæði í einstaklingsvinnu sem og samvinnu. Fyrir nemendur sem sækja um nám á brautinni eftir stúdentspróf býðst 1. árs fornám með áherslu á hönnun- og nýsköpun á 3. þrepi. Námsbrautin tilheyrir Tæknimenntaskólanum og er Kolbrún Kolbeinsdóttir skólastjóri og fagstjórar eru Helga Guðrún Helgadóttir og Þórdís Zoëga. Stúdentar frá Tækniskólanum hafa það framyfir stúdenta af hefðbundnum stúdentsbrautum framhaldsskóla að þeir hafa alltaf aflað sér tvíþættrar menntunar þegar þeir útskrifast. Nám til stúdentsprófs er þannig viðbótarnám við það sérsvið eða þá braut sem nemendur velja sér, s.s. almenna hönnun, tölvubraut, húsgagnasmíðabraut o.s.frv. Einnig geta nemendur útskrifast sem stúdentar af náttúrufræðibraut með sérhæfingu í flugtækni, raftækni, skipstækni eða véltækni. Almenn námsbraut fyrir nýbúa ANN14
Nýbúabrautin er ætluð nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku. Boðið er upp á fjölbreytt úrval íslenskuáfanga, auk sérsniðinna áfanga í ensku, stærðfræði og tölvugrunni. Starfsnámsbraut SNB
Inntökuskilyrði: Brautin er ætluð nemendum sem stundað hafa nám í sérdeildum grunnskóla eða eða notið mikillar sérkennslu á grunnskólastigi. Greining um námserfiðleika / fötlunarstig þarf að fylgja umsókn. Starfsbraut sérnám SBR
Inntökuskilyrði: Um er að ræða einstaklingsmiðað námsúrræði ætlað nemendum með verulegan hegðunar- og námsvanda. Greining um fötlun / verulega einhverfu þarf að fylgja umsókn. Markmið og stefna
Markmið kennara Tæknimenntaskólans er að veita nemendum traustan grunn í bóklegum greinum, sem er nauðsynlegur hluti og undirstaða alls annars náms. Ennfremur að gera nemendum allra undirskóla eða brauta kleift að bæta við sig námi til þess að útskrifast með stúdentspróf auk útskriftar af tilteknu sérsviði. Stefna Tæknimenntaskólans er að efla sjálfstæði nemenda og frumkvæði með markvissum kennsluaðferðum og fjölbreyttu námsmati þar sem vinna á önninni er stór hluti lokaeinkunnar. Starfsmöguleikar og framhaldsnám
Stúdentspróf í Tækniskólanum eru alltaf tengd starfs-, list- eða tækninámi og opna því annaðhvort leið beint út á atvinnumarkaðinn eða til háskólamenntunar. Sérstaða stúdenta Tækniskólans er ótvíræð því þeir hafa fleiri möguleika. Almennt nám fyrir raunfærninemendur
Í Tæknimenntaskólanum er boðið upp á almennt nám fyrir raunfærninemendur sem fara í gegnum raunfærnimat hjá Iðunni eða hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins. Skólastjóri Tæknimenntaskólans er Kolbrún Kolbeinsdóttir, [email protected]
Sími: 514 9301 og 891 9230

Nemendur í frumkvöðlafræðinni flottir
20/04/2021

Nemendur í frumkvöðlafræðinni flottir

Nemendur á Hönnunar- og nýsköpunarbraut og K2 hafa verið í frumkvöðlafræði á önninni, en hún er kennd í samstarfi við JA Iceland (Junior Achievements). Í áfanganum stofna nemendur fyrirtæki og framleiða vöru sem síðan er seld. Nú taka sautján framhaldsskólar þátt og er van...

14/04/2020

Á morgun 15.apríl byrjar skólinn aftur eftir páskafrí. Við hittum nemendur í Teams þar sem öll kennsla fer fram.

Nemendur eru ótrúlega duglegir að mæta í "tíma" og vinna verkefni og próf í Innu - önnin er svo alveg að verða búin :)

Eftir að skólanum var lokað 13.mars, fór öll kennsla í Tæknimenntaskólanum fram í gegnum Teams og kennt var eftir studnd...
07/04/2020

Eftir að skólanum var lokað 13.mars, fór öll kennsla í Tæknimenntaskólanum fram í gegnum Teams og kennt var eftir studndatöflu. Samstaða og jákvæðni kennara var ótrúleg og gaman að sjá hvað nemendur voru duglegir að mæta í "tíma". Kennarar skiptu nenemdum í hópavinnu, kennarinn fór á milli hópa og fylgdist með, allt eins og væri verið að kenna í kennslustofu. Nú eru nemendur og kennarar komnir í páskafrí og hefst kennsla aftur 15.apríl.

Kennarar á Íslenskubraut Tæknimenntaskólans buðu nemendum sínum í morgunverð fyrir stuttu.  Alltaf gaman að hittast og t...
20/02/2020

Kennarar á Íslenskubraut Tæknimenntaskólans buðu nemendum sínum í morgunverð fyrir stuttu. Alltaf gaman að hittast og taka spjall saman og myndir.

Allt komið í gangí Smáralindinni og sala hafin.
06/04/2019

Allt komið í gangí Smáralindinni og sala hafin.

Sjáumst í Smáralindinni milli 11 og 6! 🌿

Address

Skólavörðuholti
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3545149301

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tæknimenntaskólinn / The School of General Academic Studies and Design posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category