04/05/2026
Fjölmennt og fróðlegt Opið vísindahús á Egilsstöðum. Takk fyrir frábæra samveru! Í meðfylgjandi frétt má lesa meira og skoða myndir frá ferð Háskólalestarinnar til Egilsstaða.
Húsfyllir á Opnu vísindahúsi Háskólalestarinnar á Egilsstöðum | haskolalestin.hi.is
Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Egilsstaðaskóla miðvikudaginn 30. apríl tókst með eindæmum vel. Fjöldi fólks á öllum aldri lagði leið sína í skólann þar sem boðið var upp á lifandi, fjölbreytta og skemmtilega miðlun á vísindum, tækni ...
30/04/2026
Opið vísindahús fyrir alla fjölskylduna er hafið og stendur til kl. 18 í Egilsstaðaskóla. Öll hjartanlega velkomin! Enginn aðgangseyrir – bara mæta og upplifa vísindin á lifandi hátt. Opið vísindahús í Egilsstaðaskóla. Sveitarfélagið Múlaþing Egilsstaðaskóli
30/04/2026
Háskólalestin er mætt á Egilsstaði!
Eftir frábærar kennarasmiðjur og fjörug námskeið síðustu tvo daga hvetjum við öll til að kíkja á Opið vísindahús í Egilsstaðaskóla í dag fimmtudaginn 30. apríl kl. 16:00–18:00.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitna krakka, foreldra, ömmur og afa til að upplifa vísindin á lifandi og spennandi hátt.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Myndir úr ferð Háskólalestarinnar á Egilsstöðum má finna í meðfylgjandi frétt.
Háskólalestin mætt á Egilsstaði. Vísindi, fjör og fræði fyrir alla austfirðinga | haskolalestin.hi.is
Háskólalestin mætti á Egilsstaði þriðjudaginn 28. apríl og hóf ferðina strax á kennarasmiðjum. Kennarar úr Egilsstaðaskóla, Brúarskóla og Fellaskóla sóttu smiðjur í Skapandi sjálfbærni-lífprent og verklegri raunvísindakennslu. Þar fengu kennarar aðgang að nýrri þekkingu...
27/04/2026
Háskólalestin er á leiðinni til Egilsstaða. Austurfrétt fjallar um komu lestarinnar, sem mætir með fjör og fræði fyrir allt samfélagið 28.-30. apríl. Við hlökkum til að hitta sem flesta Austfirðinga og eiga saman skemmtilegar og fróðlegar stundir á Egilsstöðum.
austurfrett.is
24/04/2026
Háskólalestin er að hlaða batteríin og leggur leið sína austur til Egilsstaða dagana 28.–30. apríl. Austfirðingum á öllum aldri er boðið upp á fræði og fjör. Við hlökkum til að hitta sem flesta. Endilega komdu og vertu með!
Háskólalestin brunar á Egilsstaði | haskolalestin.hi.is
Háskólalestin verður á Egilsstöðum 28.–30. apríl með fjör, fræði og vísindagleði fyrir allt samfélagið. Á Egilsstöðum verður boðið upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá fyrir kennara, nemendur og almenning, þar sem fræði og fjör mætast í fræðilegri og skemmtilegri ...
20/04/2026
Frábær mæting og einstök stemning í Opna vísindahúsinu í Árskóla á Sauðárkróki sl. laugardag. Takk fyrir okkur! Í meðfylgjandi frétt má lesa meira og skoða myndir frá deginum.
Opið vísindahús Háskólalestarinnar sló í gegn á Sauðárkróki | haskolalestin.hi.is
Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Árskóla á Sauðárkróki laugardaginn 18. apríl var afar vel heppnað. Hátt í þúsund gestir lögðu leið sína á staðinn og nutu fjölbreyttrar dagskrár þar sem vísindi voru kynnt á lifandi, aðgengilegan og skem...
17/04/2026
Háskólalestin er mætt á Sæluviku Skagfirðinga!
Eftir frábærar kennarasmiðjur og fjörug námskeið fyrir nemendur í 8.–10. bekk, hvetjum við alla til að kíkja á Opið vísindahús í Árskóla á morgun laugardag kl. 11:00–14:00.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitna krakka, foreldra, ömmur og afa til að upplifa vísindin á lifandi og spennandi hátt. Prófaðu allt frá vélmennum og íþrótta- og heilsufræði yfir í japanska menningu og skurðlækningar!
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Myndir úr ferðinni má finna í meðfylgjandi frétt.
Háskólalestin í Skagafirði. Fjölbreytt vísindi og áhugasamir nemendur | haskolalestin.hi.is
Háskólalest Háskóla Íslands mætti í Skagafjörð miðvikudaginn 16. apríl og hóf ferðina með því að bjóða kennurum á svæðinu upp á fjölbreyttar kennarasmiðjur sem um 100 kennarar sóttu. Í boði voru smiðjur í verklegri vísindakennslu, hegðunarvanda og ofbeldi nemenda og g...
15/04/2026
Háskólalestin brunar nú í Skagafjörð! Feykir fjallar um komu lestarinnar, sem mætir með fjör og fræði fyrir allt samfélagið 16.-18. apríl. Við hlökkum til að hitta sem flesta Skagfirðinga, endilega komdu og vertu með.
Háskólalest Háskóla Íslands mætir í Skagafjörðinn – fjör og fræði fyrir alla
Dagana 16.–18. apríl 2026 heimsækir Háskólalestin Sauðárkrók og býður nemendum, kennurum og íbúum Skagafjarðar upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og kynn
04/04/2026
Fyrsta stopp Háskólalestarinnar í ár er á Sauðárkróki dagana 16.–18. apríl. Þar gefst nemendum kostur á að sökkva sér í fjölbreytt og spennandi námskeið, kennarar sækja sér nýja þekkingu og innblástur í kennarasmiðjum og samfélaginu öllu er boðið til glæsilegrar vísindaveislu í Opnu vísindahúsi á Sæluviku Skagfirðinga.
Fjör og fræði vítt og breitt um landið með Háskólalestinni 2026 | haskolalestin.hi.is
Háskólalestin leggur af stað út í vorið 2026 og færir með sér fjör, fræði og undur vísindanna vítt og breitt um landið. Líkt og fyrri ár er markmiðið að efla tengsl Háskóla Íslands við samfélög landsins, kveikja forvitni, styðja við skólastarf og gera vísindi aðgengile...