Núvitund

Núvitund

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Núvitund, Bólstaðarhlíð 43, Reykjavík.

22/09/2022

Núvitund í daglegu lífi – Selfossi haust 2022
Núvitund (mindfulness) er náttúrulegur eiginleiki hugans til að vera meðvitaður hér og nú um það sem er að gerast, á meðan það gerist, án þess að dæma það og með góðvild. Hægt er að þjálfa sig á kerfisbundinn hátt í því að vera meira hér og nú á líðandi stund.
Á námskeiðinu eru gerðar æfingar sem innnifela stuttar sitjandi hugleiðslur, líkamsskönnun (bodyscan) og gangandi hugleiðslu. Einnig verða gerðar æfingar í góðvild og kærleika. Þessar æfingar geta aukið skilning okkar á huganum og venjum hans og hjálpa okkur að sjá þær hindranir sem mögulega geta verið í veginum. Þátttakendur fá verkefni með sér heim og mælst er til að fólk æfi sig á milli helga.
Rannsóknir sýna í vaxandi mæli að núvitund ýtir undir andlega og líkamlega vellíðan og auðveldar okkur að takast á við áskoranir og verkefni daglegs lífs. Þessi nálgun hefur verið notuð á áratugi í löndunum í kringum okkur með góðum árangri.
Um leiðbeinanda: Gunnar lærði sinn grunn í Hugleiðsu og friðarmiðstöðinni í Reykjavík. Hafur farið reglulega frá árinu 2009 á hlédrög og námskeið hér heima og erlendis í núvitundarhugleiðslu, m.a. í Samye Ling, tíbetsku klaustri staðsettu í Skotlandi og hugleiðslusetri á Holy Island. Einnig hefur hann lokið viðurkenndu leiðbeinendanámskeiði frá Mindfulness Association í Skotlandi að undangenginni ársþjálfun og ástundun í núvitund og hafa haldið námskeið fyrir almenning um árabil.

Gunnar L. Friðriksson er menntaður heilsunuddari og sjúkraliði. Starfar sem heilsunuddari og leiðbeinandi í núvitund og er með nuddnámskeið fyrir almenning.

Staðsetning: Hellubakka 7, Selfossi.

Tími: Námskeiðið er s*x skipti: Kennt miðvikudögum milli kl. 16.30-18.30 hvern dag og hefst miðvikudaginn 12. október.

Verð: 38.000 þús. Stéttafélög taka víða þátt í kostnaði. Innifalið er handbók, og önnur gögn sem innihalda leiddar hugleiðslur.

Nánari upplýsingar: [email protected] s 8220727

15/07/2021
14/08/2019

Lama Yeshe talar frá spítalanum, partur eitt.

Námskeið í núvitund 08/02/2018

Námskeið í núvitund Félagskonum í Rótinni stendur nú til boða námskeið í núvitund (Mindfulness based relapse prevention) hjá Helenu Bragadóttur, hjúkrunarfræðingi á vímuefnasviði LSH og Láru Sif Lárusdóttur áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Námskeiðið er hluti af meistaraverkefni Helena þar sem ...

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Bólstaðarhlíð 43
Reykjavík
105