Fjölmennt

Fjölmennt Fjölmennt er símenntunarmiðstöð sem skipuleggur námskeið fyrir fatlað fólk, 20 ára og eldra

Fjölmennt er símenntunarmiðstöð sem skipuleggur námskeið fyrir fatlað fólk , 20 ára og eldra. Markmiðið er að bjóða fötluðu fólki upp á fjölbreytta símenntun í formi námskeiða að loknu formlegu námi í skólakerfinu.

🏔️ Fjallið mitt⛰️Fjallið mitt, nýtt námskeið í fjallgöngu sem hófst í upphafi annar.Á námskeiðinu er til dæmis farið yfi...
16/09/2026

🏔️ Fjallið mitt⛰️

Fjallið mitt, nýtt námskeið í fjallgöngu sem hófst í upphafi annar.
Á námskeiðinu er til dæmis farið yfir undirbúning fyrir fjallgöngur, hvað gönguleiðir eru til staðar og hvernig megi upplifa og njóta tengingu við náttúruna.
Kennari á námskeiðinu er Rakel Ágústsdóttir þroskaþjálfi, markþjálfi og landvættur.

Þrátt fyrir rigningu og rok voru það glæsilegir fjallgöngugarpar sem gengu upp á Úlfarsfellið í tímanum í dag.👏💪

Velkomin Kristín👋Í upphafi mánaðarins hóf Kristín Þ. Guðmundsdóttir störf hjá Fjölmennt.Kristín mun sinna fjölbreyttum s...
07/09/2026

Velkomin Kristín👋

Í upphafi mánaðarins hóf Kristín Þ. Guðmundsdóttir störf hjá Fjölmennt.
Kristín mun sinna fjölbreyttum skrifstofustörfum á skrifstofu Fjölmenntar.

Við bjóðum Kristínu velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins🥰

Treyjudagurinn - við erum öll í sama liði💙Börn með krabbamein, styrktarfélag Í dag vorum við í treyjumÞað var til þess a...
04/09/2026

Treyjudagurinn - við erum öll í sama liði💙
Börn með krabbamein, styrktarfélag

Í dag vorum við í treyjum

Það var til þess að minna á að sum börn fá krabbamein

Velkomin Karen!Í upphafi annarinnar hóf Karen Sif störf hjá Fjölmennt. Karen mun kenna námskeið m.a. í eldhúsinu, myndli...
28/08/2026

Velkomin Karen!

Í upphafi annarinnar hóf Karen Sif störf hjá Fjölmennt. Karen mun kenna námskeið m.a. í eldhúsinu, myndlist, handverki og skynjunartengd námskeið.

Velkomin til starfa Karen og við hlökkum til samstarfsins🥰

11/08/2026

Viltu koma á námskeið um kosningar?

Fyrir nokkru bárust okkur þær fregnir að Skúli Steinar Pétursson væri látinn. Við hér í Fjölmennt minnumst Skúla Steinar...
07/08/2026

Fyrir nokkru bárust okkur þær fregnir að Skúli Steinar Pétursson væri látinn. Við hér í Fjölmennt minnumst Skúla Steinars sem mikils baráttumanns fyrir námstækifærum fyrir fatlað fólk. Hann tók þátt í mörgum frumkvöðlaverkefnum með okkur í Fjölmennt og lét til sín taka í baráttuhreyfingunni. Það munaði svo sannarlega um hans framlag.

Skúli var mikill talsmaður réttinda fatlaðs fólks og tók þátt í ýmsum frumkvöðlaverkefnum hér í Fjölmennt sem og annars staðar. Hann var í fyrsta hópi þeirra sem útskrifaðist úr diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við HÍ. Áður hafði hann skrifað greinar og lagt áherslu á mikilvægi þess að fötluðu fólki stæði til boða nám á háskólastigi.

Skúli var einnig með fyrstu umsjónarmönnum sjónvarpsþáttarins "Með okkar augum," sem byrjaði sem námskeið í þáttagerð í Fjölmennt. Hann var einn af sendiherrum Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, verkefni sem var sett á laggirnar í samstarfi við Þroskahjálp og síðar Velferðarráðuneytið. Verkefnið var virkt á árunum 2011-2019, þar sem sendiherrarnir kynntu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og unnu einnig með réttindagæslunni. Skúli var sérstakur baráttumaður fyrir aðgengi að námi, sérstaklega háskólanámi. Verkefnið hlaut Múrbrjótinn árið 2011.

Skúli var einnig öflugur meðlimur í hljómsveit sem starfrækt var í Fjölmennt og spilaði á mörgum tónleikum. Meðfylgjandi mynd er einmitt af Skúla á hljómsveitaræfingu fyrir nokkrum árum.

Við vottum fjölskyldu og öðrum ástvinum Skúla dýpstu samúðarkveðjur.

Eigum laust pláss í TölvuleikjagerðSkoðaðu námskeiðið hér:
05/08/2026

Eigum laust pláss í Tölvuleikjagerð

Skoðaðu námskeiðið hér:

Scratch er þróað af MIT tækniháskólanum og er verkfæri sem gerir forriturum kleift að skapa og læra að forrita.

viltu prjóna í samfélagshúsinu? Það er enn hægt að bætast við hópin sem hittist í samfélagshúsinu og prjónar. Upplýsinga...
26/05/2026

viltu prjóna í samfélagshúsinu? Það er enn hægt að bætast við hópin sem hittist í samfélagshúsinu og prjónar.
Upplýsingar um námskeiðið hér fyrir neðan

Námskeiðið er kennt á miðvikudögum kl 12 - 13 í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43. Strax á eftir eða kl 13 er prjónahittingur á vegum samfélagshússins á sama stað og því kjörið að sitja aðeins lengur með prjónana.

Upptaka af vortónleikum Fjölmenntar 2026! Tilvalið fyrir þau sem misstu af eða vilja sjá aftur:)
19/05/2026

Upptaka af vortónleikum Fjölmenntar 2026! Tilvalið fyrir þau sem misstu af eða vilja sjá aftur:)

00:00 Moonshine (forspil)10:01 Egill Steinþórsson12:55 Pálmi Sveinsson16:38 Jón Hlöðver Loftsson19:13 Ólafur Viggó Lárusson 22:18 Sunna Ósk Stefánsdóttir25:1...

viltu læra að gera myndasögur? stutt hagnýtt námskeið sem hefst í lok maí
18/05/2026

viltu læra að gera myndasögur? stutt hagnýtt námskeið sem hefst í lok maí

Address

Vínlandsleið 14
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545301300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjölmennt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fjölmennt:

Shortcuts

Share

Category