Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) er samstarfsvettvangur og verkfærasmiðja í fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði.

TAKIÐ DAGINN FRÁ!ÁRSFUNDUR FA VERÐUR HALDINN 12. NÓVEMBER N.K.
22/09/2026

TAKIÐ DAGINN FRÁ!
ÁRSFUNDUR FA VERÐUR HALDINN 12. NÓVEMBER N.K.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt tvo fundi á dögunum með samstarfsaðilum um framþróun og gæði ráðgjafar og raunfærnima...
07/09/2026

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt tvo fundi á dögunum með samstarfsaðilum um framþróun og gæði ráðgjafar og raunfærnimats:

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt tvo fundi á dögunum með samstarfsaðilum um framþróun og gæði ráðgjafar og raunfærnimats. Fyrri fundurinn var árlegur haustfundur náms- og starfsráðgjafar á vettvangi framhaldsfræðslunnar þar sem sjónum var beint að leiðum til aukinnar i...

Lærum, vinnum, vöxum – Norræn ráðstefna um símenntun í atvinnulífinu.Ráðstefnan leiðir saman sérfræðinga sem starfa við ...
19/08/2026

Lærum, vinnum, vöxum – Norræn ráðstefna um símenntun í atvinnulífinu.
Ráðstefnan leiðir saman sérfræðinga sem starfa við fullorðinsfræðslu og starfsþróun víðs vegar á Norðurlöndunum.

Megináhersla ráðstefnunnar er nám á vinnustað sem lykilþáttur í símenntun. Á ráðstefnunni verður skoðað hvernig fyrirtæki, stofnanir og fræðsluaðilar stuðla að starfsþróun á vinnustað og hvernig menntastofnanir leggja sitt af mörkum með faglegum stuðningi, samstarfi og nýsköpun.
Ráðstefnan er opin öllum sem áhuga hafa á fræðslumálum á breiðum vettvangi fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík 20. október kl. 9:30-16:00. Fyrirlestrar fara fram á ensku. Erindi í málstofum eru ýmist á ensku eða íslensku.
Lesið meira:

Lærum, vinnum, vöxum – Norræn ráðstefna um símenntun í atvinnulífinu. Ráðstefnan leiðir saman sérfræðinga sem starfa við fullorðinsfræðslu og starfsþróun víðs vegar á Norðurlöndunum. Megináhersla ráðstefnunnar er nám á vinnustað sem lykilþáttur í símenntun. Á ...

Í nýrri grein í Gátt, veftímariti framhaldsfræðslunnar, er fjallað um verkefnið Færni á vinnumarkaði og talað við nokkra...
24/06/2026

Í nýrri grein í Gátt, veftímariti framhaldsfræðslunnar, er fjallað um verkefnið Færni á vinnumarkaði og talað við nokkra af þeim nemendum sem sóttu námið. Námið Færni á vinnumarkaði er fyrir fólk með fötlun á Íslandi til að auka tækifæri þeirra til að verða virkir þátttakendur í samfélaginu.

Í greininni kemur fram að námið hafi verið vel sótt og hafi opnað dyr fyrir marga þátttakendur sem nýttu tækifærið til að fara í frekara nám eða út á vinnumarkaðinn, en nú er verkefnið í hættu vegna skorts á fjármagni og stuðningi frá yfirvöldum.

Lesið greinina á vef Gáttar:

– Færni á vinnumarkaði er nám sem opnar dyr að atvinnulífinu fyrir fólk með fötlun á Íslandi Fyrir tveimur árum var hrint í framkvæmd náminu Færni á vinnumarkaði fyrir fólk með fötlun á Íslandi til að auka tækifæri þess til að verða virkir þátttakendur í samfélagin...

28/05/2026

👉 Góðar fréttir fyrir leiðsögufólk – nú er hægt að fara í raunfærnimat á móti námskrá Leiðsöguskólans sem starfar í Menntaskólanum í Kópavogi.
Þetta er langþráð tækifæri fyrir þau sem hafa byggt upp mikla reynslu í starfi og vilja fá staðfestingu á færni sinni, hvort sem er til að styrkja stöðu á vinnumarkaðnum eða stytta leiðina í námi.
Skilyrði:
✔️ 23 ára eða eldri
✔️ Að lágmarki 3 ára starfsreynsla í greininni
✔️ Stúdentspróf eða sambærileg menntun
Raunfærnimat eykur sýnileika á færni, styður við fagmennsku og hefur jákvæð áhrif á gæði íslenskrar ferðaþjónustu.
Hæfnisetrið var ráðgefandi við undirbúning verkefnisins en framkvæmd raunfærnismats verður í höndum Mímir Símenntun.
➡️ Nánar má fræðast á vef leiðsögufólks hjá VR.

Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fyrir árið 2025 er komin út á rafrænu formi. Þar má lesa um starfsemi FA, he...
22/05/2026

Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fyrir árið 2025 er komin út á rafrænu formi. Þar má lesa um starfsemi FA, helstu verkefni og árangur á liðnu ári.
Árið einkenndist af mikilli eftirspurn eftir námi, þar sem þátttaka jókst um 9% og nærri 3.000 einstaklingar luku námi. Breytt samsetning nemendahópsins er einnig áberandi, en erlendir ríkisborgarar eru nú meirihluti þátttakenda. Þessi þróun undirstrikar mikilvægi sveigjanlegs og aðgengilegs náms sem tengist beint störfum og skilar beinum ávinningi á vinnumarkaði.
Um leið og framhaldsfræðslan sækir í sig veðrið blasir við skýr áskorun: fjármagn nær ekki að fylgja eftir vaxandi þörf.
👉 Lesið ársskýrsluna hér:

Ársskýrsla Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) fyrir árið 2025 er komin út á rafrænu formi. Í árskýrslunni er farið yfir starfsemi FA og árangur starfsins á árinu. Árið 2025 hjá FA einkenndist af mikilli eftirspurn eftir símenntun, fjölgun í námi og breyttum nemendahópi...

11/05/2026

Hvernig mætir Ísland vaxandi eftirspurn eftir sérhæfðri færni?

Þessari spurningu var velt upp á vefstofunni Færni, framtíð og Evrópa: Stefnumótun og tækifæri Íslands fór fram þann 6. maí síðastliðinn. Vefstofan var hluti af ársfundi Erasmus+ þar sem færni og framtíðarþarfir vinnumarkaðarins voru í brennidepli.

Vefstofan þótti afar gagnleg og veitti mikilvæga innsýn í tengsl menntunar, færni og þarfa vinnumarkaðarins á Íslandi. Ljóst er að áframhaldandi samstarf menntayfirvalda og atvinnulífs verður lykilatriði til að mæta þeim áskorunum sem fram undan eru.

Nánar frá vefstofunni í fyrstu athugasemd ⬇️

Í nýrri grein í Gátt, veftímariti framhaldsfræðslunnar, fjallar Steinunn Björk Jónatansdóttir, náms- og starfsráðgjafi o...
14/04/2026

Í nýrri grein í Gátt, veftímariti framhaldsfræðslunnar, fjallar Steinunn Björk Jónatansdóttir, náms- og starfsráðgjafi og deildastjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, um vel heppnað verkefni sem miðaði að því að ná til og efla konur af arabískum uppruna sem eru innflytjendur hér á landi.

Markmið þessa verkefnis var að bjóða uppá námskeið sem væri valdeflandi rými fyrir konur þar sem áherslan var meðal annars á sjálfstyrkingu, starfsfræðslu og heilsueflandi fræðslu þátttakendum til hagsbóta. Í verkefninu tóku þátt konur með fjölbreyttan bakgrunn. Sumar höfðu þegar einhverja reynslu af íslenskum vinnumarkaði, aðrar voru að stíga sín fyrstu skref en engin þeirra var í föstu starfi þegar þær komu á námskeiðið. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við félagsþjónustu Reykjanesbæjar og Vinnumálastofnun.

Lesið um þetta á vef Gáttar:

Samkvæmt Hagstofu Íslands árið 2025 var hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum rúm 30%1 (Hagstofa Íslands, 2025). Þar á meðal er hópur kvenna af arabískum uppruna, með margvíslegan bakgrunn, menntun og starfsreynslu. Margar þeirra eiga það þó sameiginlegt að hafa e...

Framkvæmdastjórar allra 14 fræðslu- og símenntunarmiðstöðva landsins komu nýverið saman til vinnufundar hjá Fræðslumiðst...
13/04/2026

Framkvæmdastjórar allra 14 fræðslu- og símenntunarmiðstöðva landsins komu nýverið saman til vinnufundar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA):

Framkvæmdastjórar allra 14 fræðslu- og símenntunarmiðstöðva landsins komu nýverið saman til vinnufundar hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA). Auk þeirra sátu fundinn fulltrúar eigenda FA, frá Samtökum atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambandi Íslands (ASÍ), ásamt formanni ...

,,Færni á vinnumarkaði opnar ekki einungis ný tækifæri fyrir nemandann, heldur vinnumarkaðinn, menntakerfið og samfélagi...
11/03/2026

,,Færni á vinnumarkaði opnar ekki einungis ný tækifæri fyrir nemandann, heldur vinnumarkaðinn, menntakerfið og samfélagið. Við erum eitt samfélag með fjölbreytta færni og mikilvægt að allir finni til sín í lífi, námi og starfi. Við þurfum því að tryggja þessu námi varanlegan farveg."

Starfstengda námskráin Færni á vinnumarkaði hefur veitt einstaklingum sem hafa staðið höllum fæti, tækifæri til að fara út á vinnumarkaðinn og nýta sína færni. Færni á vinnumarkaði er starfstengd námskrá sem lítur að námi og þjálfun til að efla færni fatlaðra einstakli...

Address

Skipholt 50 B
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fræðslumiðstöð atvinnulífsins posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category