Iðan fræðslusetur

Iðan fræðslusetur Iðan fræðslusetur Við erum fræðslusetur í eigu Samtaka iðnaðarins og stéttarfélaga í iðnaði. Hjá okkur starfa 25 manns á 6 sviðum.

24/09/2026

"Lykilatriðið er að afla sér þekkingar." 💡

Við kíktum í heimsókn á Ljónsstaði, fengum að skoða starfsemina og ræða við starfsfólkið þar. Jakob Nielsen Kristjánsson, bifvélavirki, ræddi meðal annars um nýja tækni og mikilvægi þess að geta haldið áfram að afla sér þekkingar í grein sem er í stöðugri þróun.

Það skiptir okkur miklu máli að eiga gott samtal við fólk og fyrirtæki í iðngreinum um allt land.
Við viljum heyra hvað er að gerast, hvaða breytingar eru fram undan og hvar við getum stutt við með fræðslu og þekkingu.

Takk fyrir okkur, Ljónsstaðir! 🛞

Ungt fagfólk fær tækifæri til að kynnast íslenskum byggingariðnaði í gengum Erasmus+ verkefni Iðunnar 🌐🔨Clément og Titou...
24/09/2026

Ungt fagfólk fær tækifæri til að kynnast íslenskum byggingariðnaði í gengum Erasmus+ verkefni Iðunnar 🌐🔨

Clément og Titouan eru nýlega útskrifaðir smiðir frá Frakklandi og munu starfa hjá ÞG Verk fram í desember við uppbyggingu Nýja Landspítalans við Hringbraut. Þar fá þeir tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni og öðlast reynslu sem bætir við þá þekkingu sem þeir hafa úr námi sínu í Frakklandi.

ÞG Verk tók einnig þátt í verkefninu í fyrra og tók þá á móti tveimur nýútskrifuðum smiðum frá Frakklandi. Við erum virkilega ánægð með samstarfið 👏

👇 Lestu meira um Erasmus+ samstarfið

ÞG Verk tekur þátt í Erasmus+ Sep 22, 2026 Fyrir um ári síðan tók ÞG Verk í fyrsta sinn þátt í Erasmus+ sem er verkefni sem Iðan Fræðslusetur heldur utan. Við tókum á móti þremur nýlega útskrifuðum smiðum frá Frakklandi og störfuðu þeir við uppbyggingu á Ný...

🚍 Er kominn tími á endurnýjun atvinnuréttinda hjá þér?Á þessu endurmenntunarnámskeiði er áhersla lögð á örugga og vandað...
24/09/2026

🚍 Er kominn tími á endurnýjun atvinnuréttinda hjá þér?

Á þessu endurmenntunarnámskeiði er áhersla lögð á örugga og vandaða farþegaflutninga, góða þjónustu og ábyrgð bílstjórans. Námskeiðið hentar bílstjórum með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 og fer alfarið fram í fjarnámi.

👉 Skráðu þig á idan.is

Þarft þú að endurnýja réttindi þín til atvinnuaksturs ?

Vantar þig auka hendur í eldhúsið? 🤖Námskeiðið er sérstaklega sniðið að fólki í matvæla- og veitingagreinum og sýnir á m...
23/09/2026

Vantar þig auka hendur í eldhúsið? 🤖

Námskeiðið er sérstaklega sniðið að fólki í matvæla- og veitingagreinum og sýnir á mannamáli hvernig hægt er að nýta gervigreind við raunveruleg verkefni.

Í lok námskeiðsins nýta þátttakendur gervigreind til að takast á við verkefni úr eigin starfi og fara heim með tilbúna lausn sem einfaldar dagleg störf.

👉 Tryggðu þér sæti á idan.is

Á þessu víðtæka gervigreindar námskeiði sleppum við flóknu tæknimáli. Við kennum á mannamáli með raunhæfum dæmum og sýnum þér hvernig gervigreind verður þinn öflugasti aðstoðarmaður í daglegu starfi.

Iðan og Rafmennt bjóða til umræðufundar um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum 👷‍♂️Markmið fundarins e...
22/09/2026

Iðan og Rafmennt bjóða til umræðufundar um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum 👷‍♂️

Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir opna umræðu um ávinning og áskoranir við uppbyggingu og rekstur vottaðs gæðakerfis og hvort ávinningurinn vegi upp þann tíma, kostnað og vinnu sem innleiðingin krefst.

👉 Kynntu þér viðburðinn og skráðu þig hér

14.10.2026 kl. 12:00 - Iðan fræðslusetur og Rafmennt bjóða til umræðufundar um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum.

Ert þú í Matvís? Þá ert þú líka félagsmaður Iðunnar 🙌Félagsaðild fylgja ýmsir kostir sem vert er að þekkja og nýta. Meða...
21/09/2026

Ert þú í Matvís? Þá ert þú líka félagsmaður Iðunnar 🙌

Félagsaðild fylgja ýmsir kostir sem vert er að þekkja og nýta. Meðal annars fær félagsfólk námskeið Iðunnar niðurgreidd um allt að 80%.

Í matvæla- og veitingagreinum er sérstaklega fjölbreytt dagskrá fram undan; allt frá gervigreind og nútímamatargerð yfir í ramen, viskí, hnífabrýnslu og matvælaöryggi.

MATVÍS tók saman góða umfjöllun um aðildina að Iðunni, námskeiðin sem eru fram undan og hvernig félagsfólk getur sjálft haft áhrif á fræðsluframboðið 👇

Félagsfólk MATVÍS er jafnframt félagsfólk Iðunnar fræðsluseturs og hefur þar með aðgang að fjölbreyttum námskeiðum í iðngrein sinni á verulega niðurgreiddu verði. Ný könnun Iðunnar bendir hins vegar til þess að stór hluti félagsfólks þekki hvorki aðild sína né réttin...

🏠 Fræðsla um viðgerðir og verndun eldri húsa í veturAlla miðvikudaga í vetur verður hægt að sækja fræðslu og ráðgjöf hjá...
20/09/2026

🏠 Fræðsla um viðgerðir og verndun eldri húsa í vetur

Alla miðvikudaga í vetur verður hægt að sækja fræðslu og ráðgjöf hjá Húsverndarstofu í Árbæjarsafni. Þar koma saman húseigendur, iðnaðarmenn og annað áhugafólk um húsvernd til að miðla þekkingu og reynslu.

Húsverndarstofa er samstarfsverkefni Iðunnar fræðsluseturs, Minjastofnunar Íslands og Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Fyrsti fræðslufundur vetrarins verður 23. september kl. 17:00, þar sem Ólafur Halldórsson segir frá áratuga reynslu af viðhaldi og endurbótum tveggja eldri húsa við Þingholtsstræti í Reykjavík og Eyrargötu á Siglufirði.

👉 Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Nánar um fyrsta fundinn og dagskrána í vetur 👇

Húsverndarstofa er samstarfsverkefni Iðunnar fræðsluseturs, Minjastofnunar Íslands og Borgarsögusafns Reykjavíkur. Þar geta húseigendur, iðnaðarmenn og annað á…

🥃 Ert þú áhugamanneskja um viskí?Kynntu þér ólíkt viskí Skotlands, Japans og Taívans og smakkaðu fimm tegundir sem sýna ...
20/09/2026

🥃 Ert þú áhugamanneskja um viskí?

Kynntu þér ólíkt viskí Skotlands, Japans og Taívans og smakkaðu fimm tegundir sem sýna vel hvað einkennir hvert land. Um að gera að nýta föstudagskvöldið að ferðast um viskíheiminn 🌏

👉 Kynntu þér námskeiðið og skráðu þig á idan.is

Með skoskt viskí sem útgangspunkt bera þátttakendur saman viskí frá Skotlandi, Japan og Taívan og kynnast því hvernig sambærilegar framleiðsluaðferðir geta skilað mjög ólíkum stíl og karakter. Í leiðsagðri samanburðarsmökkun er skoðað hvernig skosk viskíhefð hefur haft á...

Leiðtogar iðngreinanna hjá Iðunni fóru um Suðurland í vikunni, heimsóttu fyrirtæki og ræddu við félagsfólk um símenntun ...
19/09/2026

Leiðtogar iðngreinanna hjá Iðunni fóru um Suðurland í vikunni, heimsóttu fyrirtæki og ræddu við félagsfólk um símenntun og þarfir atvinnulífsins. Heimsóknirnar gáfu góða innsýn í þær áskoranir og þarfir sem fyrirtæki og starfsfólk standa frammi fyrir og hvar tækifæri liggja til frekari fræðslu og færniþróunar.

Ferðinni lauk með viðburðinum Hafðu áhrif á Hótel Selfossi þar sem gestir fengu fræðslu um gervigreind í iðnaði og áttum gott samtal við fólk í iðngreinum á svæðinu.

Takk fyrir okkur, Suðurland! 🚗

Leiðtogar iðngreinanna hjá Iðunni fræðslusetri fóru um Suðurland í vikunni, heimsóttu fyrirtæki og ræddu við félagsfólk um símenntun og þarfir atvinnulífsins. …

Address

Vatnagarðar 20
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 14:00

Telephone

+3545906400

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Iðan fræðslusetur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Iðan fræðslusetur:

Shortcuts

Share