27/03/2024
✨Barnaheimilið Ós auglýsir eftir leikskólastjóra.✨
Barnaheimilið Ós er lítill sjálfstætt starfandi leikskóli með stórt hjarta. Leikskólinn er sjálfseignarstofnun og eini foreldrarekni leikskólinn í Reykjavík. Starfsmenn eru að jafnaði um 15 og börnin um 40. Lögð er áhersla á heimilislegt umhverfi og tækifæri foreldra til að taka þátt í starf leikskólans með það að markmiði að virk tengsl séu milli heimilislífs barnanna og lífsins á Ósi.
Einkunnarorð Óss eru samvera, leikur og gleði!
Leitað er að manneskju sem hefur brennandi áhuga á kennslu barna og býr yfir leiðtoga- og skipulagshæfileikum, vinnur vel í teymi og getur leitt gott og metnaðarfullt starf á Ósi.
Barnaheimilið Ós hélt í fyrra upp á 50 ára afmæli. Saga skólans er bæði löng og falleg og starfið hefur mótast og þróast í takt við breytta tíma. Nýjum leikskólastjóra mun gefast færi á að byggja á þeim góða og gamla grunni sem þegar er fyrir hendi og móta framtíðarstefnu Ós og leiða þannig áfram frekari þróunarvinnu.
Meginhlutverk leikskólastjóra:
✨ Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leikskóla
✨ Faglegur leiðtogi og mótar framtíðarsýn í samræmi við lög um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla
✨ Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu, þróunar og skipulagningu uppeldisstarfsins
✨ Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
✨ Tekur þátt í ýmis konar samstarfi um leikskólamáls
✨ Náið samstarf og samvinna við stjórn og foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur:
⭐️Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara
⭐️ Reynsla af kennslu barna
⭐️ Reynsla af stjórnun æskileg
⭐️ Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð
⭐️ Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
⭐️ Og síðast en ekki síst brennandi áhugi á að starfa með börnum og vinna að málefnum þeirra.
Upplýsingar um starfið veitir Sigríður Harðardóttir, stjórnarmaður í stjórn Barnaheimilisins Óss, s: 866-0720. Áhugasöm eru hvött til að hafa samband með spurningar.
Umsóknir skulu berast með tölvupósti á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2024.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá og kynningarbréf sem greinir frá helstu áherslum sem viðkomandi sér fyrir sér í starfinu.