Menntaskólinn við Sund

Menntaskólinn við Sund Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Menntaskólinn við Sund, High School, Gnoðarvogur 43, Reykjavík.

09/09/2026

Í dag er flaggað í hálfa stöng við skólann vegna útfarar Haralds Noregskonungs

Í dag flöggum við í hálfa stöng, hugsum til allra þeirra sem misst hafa ástvin og hlúum að hvert öðru💕.
01/09/2026

Í dag flöggum við í hálfa stöng, hugsum til allra þeirra sem misst hafa ástvin og hlúum að hvert öðru💕.

Nýir MSingar fóru í frábæra nýnemaferð í Vatnaskóg í gær ☀️Rúmlega 200 nýnemar nutu dagsins í góða veðrinu, tóku þátt í ...
28/08/2026

Nýir MSingar fóru í frábæra nýnemaferð í Vatnaskóg í gær ☀️

Rúmlega 200 nýnemar nutu dagsins í góða veðrinu, tóku þátt í leikjum, bátasiglingum, fótbolta, söng og gleði. Ferðinni lauk svo með grilluðum sykurpúðum í ágúströkkrinu áður en haldið var heim 🚣⚽️🎶

Takk fyrir frábæran dag, kæru nýnemar, og velkomin í MS! 💙🦢

Velkomið haust!Við hlökkum til að hitta nemendur og hefja skólaárið 2026-2027 í MS 💙🦢
17/08/2026

Velkomið haust!

Við hlökkum til að hitta nemendur og hefja skólaárið 2026-2027 í MS 💙🦢

Hvorki meira né minna en þrír fyrrum stjórnendur MS fagna sjötugsafmælum sínum í dag og í gær 🎉Már Vilhjálmsson fyrrum r...
19/06/2026

Hvorki meira né minna en þrír fyrrum stjórnendur MS fagna sjötugsafmælum sínum í dag og í gær 🎉

Már Vilhjálmsson fyrrum rektor skólans varð sjötugur í gær, 18. júní, og þær Margrét Haraldsdóttir og Sigurrós Erlingsdóttir, báðar fyrrum kennslustjórar og kennarar við skólann, fagna sjötugsafmælum sínum í dag. Á einni myndinni má sjá Þorbjörn Guðjónsson, fyrrum kennara við skólann, sem einnig fagnaði sjötugsafmæli fyrr í sumar☀️

Við sendum þeim öllum hlýjar kveðjur í tilefni dagsins 🎈🎉

04/06/2026
🎓✨ Brautskráning 30. maí 2026 ✨🎓159 nemendur útskrifuðust í dag við hátíðlega athöfn í Háskólabíó 💙 Þar á meðal var fyrs...
30/05/2026

🎓✨ Brautskráning 30. maí 2026 ✨🎓

159 nemendur útskrifuðust í dag við hátíðlega athöfn í Háskólabíó 💙

Þar á meðal var fyrsti hópurinn sem útskrifast af starfsbraut í sögu skólans 🎉

Dúx var Enok Hjörvarsson og semídúx Freyja Dís Hreinsdóttir 👏

Helga Sigríður Þórsdóttir rektor flutti ávarp og hvatti nemendur til að grípa tækifærin sem gefast. Lovísa Una Bryngeirsdóttir flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema 🎙️

Dagurinn einkenndist af tónlist – Ingibjörg Hafdís Gestsdóttir söng og Elsa María Indriðadóttir spilaði á píanó. Lilja Dögg Gunnarsdóttir íslenskukennari og kórstýra leiddi svo nemendur og gesti í fjöldasöng 🎶💫

Til hamingju með áfangann, kæru útskriftarnemar! 🎓💙🦢

➡️ Meira á www.msund.is


📸 Sigurjón Ragnar / srphoto

Hátíðleg og falleg stund á fardegi í gær þegar útskriftarnemar kvöddu skólann sinn 💙🦢
Á kveðju á sal fluttu nokkrir neme...
22/05/2026

Hátíðleg og falleg stund á fardegi í gær þegar útskriftarnemar kvöddu skólann sinn 💙🦢

Á kveðju á sal fluttu nokkrir nemenda ræður og rifjuðu upp góðar minningar frá skólagöngunni 🧑‍🏫

Að lokum æfðu nemendur Gaudeamus Igitur fyrir útskriftarathöfnina og svo var haldið út í sólina og skálað í eplasíder 🎶🥂

Við þökkum útskriftarnemum fyrir samveruna í MS og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni ✨

16/05/2026

Langar þig í MS? 💙🦢

Innritun nemenda úr 10. bekk stendur yfir frá 24. apríl til 10. júní 🗓️

👉 Allar upplýsingar um námið og skólann á www.msund.is

MS hefur hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli í samvinnu við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi 🎉Skólinn er því orðinn ...
16/05/2026

MS hefur hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli í samvinnu við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi 🎉

Skólinn er því orðinn hluti af alþjóðlegu neti skóla sem vinna að fræðslu um starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, mannréttindi, frið og alþjóðasamvinnu 🫶

Viðurkenningin er mikilvægur gæðastimpill fyrir skólann og felur í sér aukin tækifæri til alþjóðlegs samstarfs, aðgang að fjölbreyttu námsefni og þátttöku í verkefnum og ráðstefnum erlendis 🌏

Frétt í fyrstu athugasemd.

Address

Gnoðarvogur 43
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:00 - 14:00
Tuesday 08:00 - 14:00
Wednesday 08:00 - 14:00
Thursday 08:00 - 14:00
Friday 08:00 - 14:00

Telephone

+3545807300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menntaskólinn við Sund posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category