20/09/2026
Það er gaman að fara í frí og koma heim aftur.
Kastljós hafði heilan þátt um ávanabindandi snjallsímanotkun og birti þáttinn á vefnum og gaf upp eftirfarandi:
00:00:10 Skjáfíkn
00:01:09 Guðmundur Jóhannsson um skjáfíkn
00:05:32 Skúli Bragi og Halldóra Mogensen
00:17:11 Davíð Berndsen um skjáfíkn
Ávanabindandi snjallsímanotkun er nefnilega skjáfíkn - af því að við vitum það öll.
En skemmtilegra dæmi er í gangi.
Anna Laufey tölvunarfræðingur er búin að messa mikið um hvað stríks séu hættuleg og slæm og allar þessar leiðir sem fá börn til að vera í snjallsímum. Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur svo réttilega bent á að sömu aðferðir eru notaðar og í forritinu Læsir. Hann ályktar út frá því að forritið sé samfélagsmiðill fyrir börn og hefur skrifað Ingu Sæland opið bréf.
Nú bíð ég eftir því að Læsir verði bannaður börnum með samfélagsmiðlabanninu væntanlega.
Ég vona svo innilega að einkunnir verði bannaðar næst sem og stjörnugjöf og hrós.
Ég veit ekki á hvaða vitleysingahæli ég er stödd. Er enginn geðlæknir á hælinu?
https://www.visir.is/g/20262937286d/opid-bref-til-ingu-thetta-er-lausn-a-ein-hverju-sem-var-aldrei-vanda-mal-
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/kastljos/39455/bo8mo2/skuli-bragi-og-halldora-mogensen