16/03/2020
Fulltrúi Veritas sat fund með stjórn hugvísindasviðs í síðustu viku þar sem viðbrögð vegna útbreiðslu kórónuveirunnar voru rædd og viðbrögð sviðsins við samkomubanninu. Stjórn sviðsins er núþegar byrjað að bregðast við og viljum við ítreka að eins og stendur þurfa nemendur ekki að hafa áhyggjur af því að nám þeirra skerðist eða útskrift frestist vegna útbreiðslu veirunnar. Stjórn sviðsins, kennarar og nemendafulltrúar munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að veiran hafi sem allra minnst áhrif á gæði kennslu. ✌️
Ábyrgð hvers einasta einstaklings í íslensku samfélagi er mikil og þurfa öll að leggja sitt af mörkum til að hindra útbreiðslu veirunnar svo þau sem eru veikust fyrir sleppi algjörlega við hana. ❤️ Við bendum á mikilvægi handþvottar í því samhengi og á önnur tilmæli sem yfirvöld hafa sent frá sér. 💦
Það er þó engin ástæða til að örvænta og við biðjum nemendur um að halda ró sinni. Saman getum við tekist á við þessa áskorun. 💪
Við leggjum sérstaka áherslu á að allir nemendur fylgist sérstaklega vel með tölvupósti sínum og tilkynningum frá skólayfirvöldum vegna veirunnar. 🙌