10/09/2026
Um 40 kennarar frá Norðurlöndunum, Benelux-löndunum og Þýskalandi taka nú þátt í alþjóðlegri eTwinning-vinnustofu í Reykjavík, dagana 9.–11. september.
Yfirskrift vinnustofunnar er STEAM Education and the Union of Skills. Áhersla er lögð á STEM-menntun, þróun lykilhæfni og nýsköpun í kennslu.
Í gær hófst dagskráin með áhugaverðum fyrirlestri frá STEM Iceland. Í dag fengu þátttakendur síðan bæði fyrirlestur og vinnustofu frá Hagstofu Íslands.
Mikilvægur hluti vinnustofunnar er tengslamyndun. Kennararnir fá tækifæri til að kynnast kollegum frá öðrum löndum, skiptast á hugmyndum og finna samstarfsaðila til að þróa og hefja ný eTwinning-verkefni sín á milli.
Það er ánægjulegt að fylgjast með nýjum hugmyndum og alþjóðlegu samstarfi verða til hér á Íslandi! 🌍🇮🇸✨