25/09/2026
Úlfhildur Melkorka 🩵
Úlfhildur byrjaði í JSB þegar hún var sjö ára gömul. Hún lauk bæði grunn- og framhaldsstigi listdansbrautar og útskrifaðist af listdansbraut MH og JSB árið 2023.
Samhliða náminu tók hún þátt í alls kyns verkefnum fyrir hönd skólans, svo sem nemendasýningum, verkefnum fyrir RÚV, Unglist og fleiru.
Úlfhildur hefur kennt jazzballett í JSB frá haustinu 2023, en áður var hún aðstoðarkennari hjá yngri hópum.
Hún leggur áherslu á metnað, styrk, gleði og dansfærni í tímum sínum. Í kennslunni nýtir hún bæði þá þekkingu sem hún aflaði sér í dansnáminu og þá reynslu sem hún hefur öðlast í fjölbreyttum störfum með börnum undanfarin ár.
Úlfhildur stundar nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og starfar einnig sem hjúkrunarnemi á Barnaspítala Hringsins og sem frístundaleiðbeinandi í Selinu.
Úlfhildur kennir bæði E1 og F1 jazzballett í vetur og hlakkar til að sjá nemendur vaxa og dafna í dansinum sem og í öllu öðru sem þau taka sér fyrir hendur.