19/08/2026
Fjármálavit gefur grunnskólum landsins eintak af glænýja borðspilinu Aur og Áhætta.
Spilið er afurð nýsköpunaráfanga nemenda í Verzlunarskóla Íslands og er hugsað sem skemmtilegt uppbrot í skólastarfi en einnig að það nái til sem flestra og þjóni þannig sínum tilgangi að efla almennt fjármálalæsi.
Þetta er skemmtilegt spil þar sem leikmenn kaupa fjárfestingar og taka áhættur, en notast er við svokölluð markaðs- og óvissuspil sem hafa áhrif á það hvernig leikurinn spilast. Allt getur gerst á ófyrirséðum markaði.
Aðrir áhugasamir geta keypt spilið af höfundunum með því að senda á netfangið [email protected].