22/02/2023
í tilefni öskudagsins umbreyttist skólasafn Seljaskóla í dýraspítala með vaska dýralækna að störfum! Tæplega 400 dýr voru innlögð á dýraspítalann og biðu þess óþreyjufull að fá nýja eigendur; umhyggjusöm Seljaskólabörn sem væru tilbúin að annast þau, hjúkra þeim og lesa fyrir þau.
Og sem betur fer þurftu þau ekki að bíða lengi, því í dag, sprengidag, komu nemendur í 2., 3., 5. og 6. bekk á dýraspítalann og tóku afar spennt á móti dýrinu sínu en á morgun, öskudag, koma nemendur í 1. og 4. bekk. Hverju dýri fylgir spjald þar sem fram kemur nafn dýrsins (ekkert dýranna ber sama nafn), afmælisdagur, ástæða innlagnar á dýraspítalann og svo hvenær dýrin vilja láta lesa fyrir sig ásamt auðvitað nafni nýja eigandans.
Ómæld gleði ríkti og kærleikur blómstraði þegar börnin tóku við dýrinu sínu. Mörg hver tengdu mikið við sjúkdóma dýranna sinna líkt og kvíða, eyrnabólgu eða magapínu. Eins fannst þeim fæðingardagar dýranna sinna spennandi því sum dýrin áttu afmæli í sama mánuði og eigendur sínir. Einum dýraeigandanum fannst það stórkostleg staðreynd að dýrið hans ætti afmæli á aðfangadag; "þetta er líka jóladýr!!".
Einhverjir hófu þegar að áforma afmælisveislur fyrir dýrin sín og önnur spáðu mikið í hvenær best væri að lesa fyrir dýrið sitt og hvort þau myndu ekki örugglega koma því við að lesa fyrir þau á tilsettum tímum.
Eftir móttöku á dýrunum þá hófust eigendur handa við að meðhöndla dýrin við kvillum sínum með allskyns lyfjum, sprautum, sárabindum og plástrum. Þá var líka mældur í þeim hitinn, greitt í gegnum feldinn, klær klipptar, peli gefinn og tennur burstaðar.
Í 2. bekk þá hófust síðan nýir gæludýraeigendur strax handa við að teikna dýrið sitt og áforma að skrifa um það dagbók.
Markmið Dýraspítala-verkefnisins eru eftirfarandi:
• Skemmtilegur viðburður á skólasafninu í tengslum við öskudag.
• Nemendur fá að eiga og taka með sér heim „lestardýr“ sem verður þeim vonandi hvatning til þess að lesa upphátt fyrir dýrin.
• „Ég er eins og ég er“. Nemendur samþykkja að taka að sér og annast dýrið, burtséð frá því hvernig það er. Stórt eða lítið, bleikt eða blátt, veikt eða heilbrigt. Nemendur draga númer og taka því dýri sem þeim er úthlutað af dýraspítalanum. Þetta tengist jafnframt verkefninu sem unnið verður með nemendum í 1.-3. bekk á þemadögum í næsta mánuði, „ég er eins og ég er“ og gengur út á að temja sér umburðarlyndi og að vinna gegn fordómum.
Strax í kvöld fór Dýraspítala Seljaskóla að berast fallegar myndir frá hamingjusömum dýrum heima hjá nýjum eigendum, sem sinntu þeim og lásu fyrir þau líkt og dýrin höfðu svo lengi þráð. Dýraspítalinn óskar öllum fallegu dýrunum til hamingju með nýja ástríka eigendur.
Meðfylgjandi eru myndir frá Dýraspítala Seljaskóla (myndbönd í athugasemdum)