Sumaropnun!
Ritver er nú opið á þriðjudögum og föstudögum klukkan 9.00-13.00.
Sumarlokun verður dagana 20. júlí til 4. ágúst, samhliða sumarlokun Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
Gleðilegt sumar!
Ritver Háskóla Íslands
Ritver Háskóla Íslands veitir nemendum og starfsfólki HÍ aðstoð við stórar og smáar ritsm? Ritverið er með viðtalsborð á 2.
Ritverið býður upp á viðtalsfundi og námskeið tengd ritun og ritgerðasmíð. Markmið ritversins er meðal annars að stuðla að því að nemendur skrifi betur og meira um viðfangsefni sín í náminu og styðja kennara í því að gera kröfur til ritsmíða og meta þær.
Í ritverinu geta allir nemendur HÍ pantað viðtalsfund (http://ritverhug.hi.is/panta_vidtalsfund_0) og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefn
07/05/2026
Alþjóðlegir kennsludagar standa nú yfir í Tækniháskólanum í Kaunas í Litháen og Ritver Háskóla Íslands lætur sig ekki vanta!
Undanfarna daga hafa farið fram líflegar umræður um allt milli himins og jarðar sem snertir fræðilega ritun. Það hefur verið virkilega gagnlegt og gaman að sjá hvað er efst á baugi í ritunarkennslu í háskólum um víða veröld og samstarfsmöguleikar víða.
Labai ačiū, mieli draugai!
🦔🌳📝💛💚❤️
20/04/2026
Ertu að skila ritgerð á morgun? Er allt uppbókað í Ritverinu?
Það verður aukavakt hjá okkur frá kl. 8.30 og fram að ritgerðaskilum klukkan 12.00. Ef þig vantar stuðning við að ganga frá sniðmátinu, heimildaskránni eða einhverjum af þessum síðustu handtökum verðum við til staðar fyrir þig!
Þarf ekkert að panta, bara mæta!
26/02/2026
Það er verkefnavaka í kvöld!
Starfsfólk Nemendaráðgjöf HÍ, Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og Ritvers verður á bókasafninu í Sögu klukkan 17:00-21:00 og aðstoðar nemendur við verkefnavinnu.
Það verður ritstund í gangi, ráðgjafar á vakt, hressing í boði og hundur frá Rauða krossinum kemur og verður þeim innan handar sem vilja fá smá ró í taugakerfið.
Hlökkum til að sjá ykkur!
09/02/2026
Í tilefni af alþjóðlegri viku ritvera, sem IWCA (International Writing Center Association) stendur fyrir, hefur Ritver Háskóla Íslands haslað sér völl á sjálfu instagram! Fylgið okkur hér:
https://www.instagram.com/ritverhi/
To celebrate the International week of writing centers, the University of Iceland Center for Writing has launched its brand new instagram profile! Follow along!
Ritver Háskóla Íslands (@ritverhi) • Instagram photos and videos 3 Followers, 8 Following, 1 Posts - See Instagram photos and videos from Ritver Háskóla Íslands ()
19/12/2025
Eru lokaritgerðaskil í janúar? Ertu að skrifa styrkumsókn? Þarftu að ganga frá nokkrum lausum endum fyrir frí?
Þá er kjörið að skella sér á laugardagsritstund á morgun! Náttföt eru engin fyrirstaða, því vegna lokunar á Landsbókasafni hittumst við á Teams og skrifum saman á milli 10.00 og 14.00. Ritunarráðgjafi verður á staðnum og heldur utan um ritstundina. Skráning hér: https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11252
Is your thesis due in January? Are you working on a grant application? Do you have just a few small things to take care of before the holidays?
If any of these apply, you are the perfect candidate for a Saturday write-in. The library is closed, so we will meet on Teams, which is great news for all of you pyjama-lovers out there. We will meet at 10.00 and write together until 14.00. A writing tutor from the University of Iceland Center for Writing will be there to facilitate. Please register on Ugla: https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11252
18/12/2025
Gleðilega hátíð, kæru nemendur og starfsfólk!
Við bendum nemendum sem eru að keppast við að ljúka lokaritgerðum að það verður opið hjá okkur dagana 22., 23., 29. og 30. desember. Við opnum svo aftur að loknu fríi mánudaginn 5. janúar.
[email protected]/?ismsaljsauthenabled=true" rel="ugc" target="_blank">https://outlook.office365.com/book/[email protected]/?ismsaljsauthenabled=true
Hlökkum til að sjá ykkur!
11/12/2025
Vinir okkar í Spretti fengu styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála til verkefnisins "Cultivating an Ecology of Belonging at the University of Iceland" - sem miðar að því að styðja betur við nemendur okkar með erlendan bakgrunn. Við hjá Ritveri Háskóla Íslands og Nemendaráðgjöf HÍ erum stoltir þátttakendur í verkefninu, en því var hleypt af stað á fundi okkar núna rétt fyrir hádegið. Við hlökkum til samstarfsins!
24/11/2025
Lengd opnun hjá Ritveri Háskóla Íslands
Nú þegar líður að misserislokum og stúdentar keppast við að leggja lokahönd á ritgerðir og verkefni ætlum við að lengja opnunartímann. Til að byrja með verður boðið upp á fjarviðtöl á þriðjudögum frá klukkan 17.00-21.00, með möguleika á meiri kvöldopnun ef vel gengur.
Tímapantanir fyrir verkefni af öllu tagi, stór og smá á https://ritver.hi.is/is
14/11/2025
Fréttir úr ritveri!
Nú þegar er farið að síga á seinni hluta misserisins minnum við nemendur og starfsfólk á þjónustu ritvers. Hjá okkur geta nemendur komið með eigin verkefni af öllum stærðum og gerðum, á hvaða vinnslustigi sem er. Starfsfólk ritvers kappkostar að aðstoða nemendur að skila sem bestu verki, og byggja upp eigin færni í fræðilegri ritun.
Við bjóðum upp á einstaklingsráðgjöf bæði á íslensku og ensku, auk ráðgjafartíma fyrir nemendur sem skrifa á íslensku sem erlendu máli.
Við tökum á móti nemendum á þriðju hæð á Landsbókasafni. Athygli er vakin á því að nú þegar styttist í misserislok eru nemendur hvattir til að bóka tíma í ráðgjöf hér: https://ritver.hi.is/is
Laugardagsritstund verður á sínum stað á morgun. Nemendur sem vilja mæta til okkar í kennslustofu á þriðju hæð á Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn geta bókað sætið sitt hér: https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11120 en einnig verður hægt að taka þátt í gegnum teams og þá er engin skráning nauðsynleg.
Í næstu viku bjóðum við upp á örnámskeið í uppbyggingu fræðilegra ritgerða á ensku, sjá hér https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11079
Góða helgi!
Ritver
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Website
Address
Sæmundargötu 2
Reykjavík
102