28/09/2026
Erasmus+ sem brú milli ólíkra hópa 🌿
Nýverið heimsótti sérfræðingurinn Emina Frljak frá Bosníu-Hersegóvínu Ísland í boði Landskrifstofu Erasmus+ og tók þátt í Starfsdögum Samfés, þar sem hún hélt erindi og vinnustofu um leiðir til að efla samtal, gagnkvæman skilning og þátttöku ungs fólks með ólíkan bakgrunn.
Heimsókn Eminu var dýrmætt tækifæri til að læra um málefni sem ekki er oft fjallað um í æskulýðsstarfi hér á landi en heimsóknin sýndi jafnframt fram á hvernig Erasmus+ getur verið vettvangur fyrir faglegt samstarf þvert á landamæri.
Nánar í fyrstu athugasemd ⬇️