Specialisterne á Íslandi

Specialisterne á Íslandi

Share

Specialisterne á Íslandi eða Sérfræðingarnir ses. Ætla að meta, þjálfa og veita einstaklin Heimasíða Sérfræðinganna ses.

12/12/2025

Nú er komið að okkar árlegu jólahátíð og af því tilefni verður opið hús í Síðumúlanum fimmtudaginn 18. desember milli kl. 15:00 - 17:30.

Við bjóðum upp á heitt súkkulaði með rjóma og jólaöl ásamt öðru góðgæti um leið og við verðum með sölu á ýmsum varningi frá okkar skjólstæðingum. Einnig verða til sölu nýbökuð krydd- og döðlubrauð.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Grétar Örn Hjartarson 22/08/2025

Grétar Örn ætlar að hlaupa fyrir Specialisterne á Íslandi. Endilega hvetjið hann til dáða með styrkjum. Hvert framlag og hvatning skiptir máli

Grétar Örn Hjartarson Hleypur fyrir Specialisterne á Íslandi

16/12/2024

Jólin eru á næsta leyti og af því tilefni verðum við með opið hús í Síðumúlanum fimmtudaginn 19. desember milli kl. 15:00 - 17:30

Við bjóðum upp á, eplaskífur og jólaöl um leið og við verðum með sölu á ýmsum varningi frá okkar skjólstæðingum. Þá verða einnig til sölu nýbökuð krydd- og döðlubrauð.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

Katrín Viktoría Hjartardóttir 18/08/2024

Katrin Viktoria Hjartardóttir, ætlar að hlaupa til styrktar Specialisterne á Íslandi. Hvet alla til að heita á Katrínu

Katrín Viktoría Hjartardóttir Hleypur fyrir Specialisterne á Íslandi

08/12/2023

Það styttist í jólin og venju samkvæmt bjóðum við öllum áhugasömum að koma til okkar í smá jólakaffi.

Fimmtudaginn 14. desember verðum við með opið hús hjá okkur í Síðumúlanum, á milli kl. 14:45 - 18:00
Við bjóðum upp á,eplaskífur og jólaöl um leið og við verðum með sölu á ýmsum varningi frá okkar skjólstæðingum. Þá verða einnig til sölu nýbökuð krydd- og döðlubrauð.
Hlökkum til að sjá sem flesta.

Photos from Specialisterne á Íslandi's post 29/11/2023

Starfsfólk Specialisterne á Íslandi, ásamt formanni stjórnar Specialisterne, heimsóttu stór einhverfusamtöku í Rúmeníu fyrr í þessum mánuði. Heimsóknin var hluti af samstarfsverkefni Specialisterne á Íslandi og Help autism í Rúmeníu.
Það var gaman að sjá þann kraft sem er í starfi þessara samtaka en þar starfa um 130 einstaklingar, en samtökin huga að enn frekari sókn í þessum mikilvæga málaflokki.
Við heimsóttum vinnustaði fyrir fatlaða einstaklinga, kaffihús sem rekið er af einstaklingum með Downs heilkenni, gisti- og atvinnuúrræði fyrir fatlaða og kynntum okkur starfsemi Help autism í Bucharest.
Þá vorum við þátttakendur í vinnustofu þar sem um 40 manns, sem vinna að því að bæta aðstæður og lífskjör fatlaðar einstaklinga, mættu og tóku þátt.
Hér er umfjöllun um heimsókn okkar á síðu Help autism https://www.facebook.com/media/set/?vanity=helpautism.ro&set=a.728493279313010

23/11/2023

Skemmtilegt uppboð á Lettnesku handverki þar sem allur hagnaður rennur til starfsemi Specialisterne á Íslandi

VELKOMIN Á UPPBOÐ Á EIÐISTORGI kl. 16.00 fimmtudaginn 24. nóvember. Uppboðið er skipulagt af samtökunum Landsbyggðin lifi og félagsamtökunum Pieriga Partnernership í Lettlandi og er það styrkt af ACF - Uppbyggingarsjóði EES. Á uppboðinu verður boðið upp fjölbreytt og fallegt handverk frá Lettlandi og renna allar tekjur til SPECIALISTERNE Á ÍSLANDI.

Nánar um Specialisterne á Íslandi:
https://www.facebook.com/people/Specialisterne-%C3%A1-%C3%8Dslandi/100031130845367/

Photos from Specialisterne á Íslandi's post 17/10/2023

Nú í október fengum við góða gesti frá Rúmeníu þegar starfsfólk frá Help Autism þar í landi komu til að kynna sér hvernig unnið er með einstaklinga sem glíma við fatlanir hérlendis. Þar í landi er unnið að því að bæta lífskjör fatlaðra einstaklinga og heimsókn til okkar og annarra aðila hér á landi var til þess að máta sig við það sem við gerum fyrir okkar skjólstæðinga.
Við heimsóttum marga góða staði, t.d. Ás vinnustofu, Fjölsmiðjuna, Félagsmálasvið Reykjavíkurborgar, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auk þess sem við skoðuðum nýjan íbúðakjarna á Seltjarnarnesi fyrir fatlaða einstaklinga og fengum svo heimboð á Bessastaði þar sem hópurinn heilsaði upp á þjóðhöfðingja okkar, Guðna Th Jóhannesson.
Svo fengu okkar gestir auðvitað útsýnistúr á Gullfoss og Geysi.
Rúmensku gestirnir voru mjög ánægðir með það sem þau sáu og upplifðu hér á landi og fóru vel "nestuð" af hugmyndum til síns heima.
Í lok nóvember fer svo starfsfólk Specialisterne á Íslandi í heimsókn til Rúmeníu og kynnir sér það sem þar er í gangi.

Specialisterne á Íslandi - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 05/07/2023

Nú styttist í Reykavíkurmarþonið og við hvetjum auðvitað alla til að hlaupa og í leiðinni að hlaupa til góðs. Eins og undanfarin ár verður hægt að heita á Specialisterne á Íslandi sbr linkinn hér að neðan.

Specialisterne á Íslandi - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka Specialisterne á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem vinnur með einstaklingum, 18 ára og eldri, sem hafa greiningu á einhverfurófinu. Marmið okkar er að hjálpa og styðja við einstaklinga sem þurfa aðstoð og auka möguleika þeirra á því að komast á vinnumarkaðinn.

Photos from Specialisterne á Íslandi's post 17/05/2023

Við fórum í velheppnaða vorferð til Sólheima í gær og fengum leiðsögn og fræðslu um þennan merkilega stað🌻

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Síðumúli 32
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 15:00