Pétur Jóhannes - Markþjálfun

Pétur Jóhannes - Markþjálfun

Share

I'd like to expand people to become better people (for their definitions of “better”)

29/11/2023

Áfram klisjur.
Sadhguru JV er einhver yoga-dúddi sem ég kann ekki frekari deili á, en það sem hann segir hér er eitthvað sem er býsna mikilvægt.

Ég þekki þessa hugsun úr heimspekinni, úr dyggðasiðfræðinni nánar tiltekið. Aristóteles skrifaði bók um þessa hugsun, Siðfræði Níkómakkusar (hún er til á íslensku og ókeypis á netinu á ensku - Nicomachean Ethics). Í grunninn er sumsé hugsunin sú að allt hafi dyggð, ef það sinnir hlutverki sínu vel þá er það dyggðugt - hnífur er dyggðugur ef hann er beittur, skipið er dyggðugt ef það siglir vel, manneskjan er dyggðug ef hún sinnir sínu hlutverki sem manneskja vel.
Svo kannski vandast málið þegar kemur að því að skilgreina "hlutverk manneskju". Og þar kemur sjálfsvinnan inn. Hver er þín hugmynd um "hlutverk manneskju" og hvernig ert þú að sinna því? Viltu sinna því betur? Viltu prófa eitthvað nýtt?

Fyrsta skrefið er að spyrja sig.

03/11/2023

Það er klisja að segja að þegar einar dyr lokast að þá opnist aðrar, en samt svo satt. Ég er reyndar á þeirri skoðun að þegar einar dyr lokast og við getum ekki lengur gengið þar um, þá neyðumst við til að horfa í kringum okkur og fyrst þá getum við tekið eftir öllum hinum tækifærunum. Þetta er býsna nálægt mér núna því ég er að skipta um vinnu. Spennandi en svolítið ógnvekjandi - eins og það á að vera :)

06/10/2023

Að hverju stefnir þú?
Ef þú veist svarið, þá er um að gera að halda ferðinni áfram.
Ef þú veist ekki svarið, þá er um að gera að komast að svari svo þú getir lagt af stað.

27/09/2023

Stundum er orkan sem fer í að viðhalda núverandi ástandi meiri en að fara inn í breytingar. Ert þú að nota orkuna þína rétt? 🧐

18/09/2023

Velkomin á síðuna mína. Ég er markþjálfi og ég er tilbúinn að aðstoða þig við að skýra, setja og ná markmiðum þínum.

Pétur Jóhannes 18/09/2023

Endilega hafðu samband eða bókaðu tíma á

Pétur Jóhannes Við getum unnið saman svo þú komist nær markmiðum þínum.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Reykjavík