DagMamma

DagMamma Eyja Rós Að sjálfsögðu gengur dagurinn með litlu krílunum út á að skemmta þeim, leika og bralla ýmislegt bæði inni og úti höfum gaman af því að vera til.

Velkomin Kæru foreldrar,

Hver eru Eyja Rós og Alli
Eyja Rós og Alli eru fólkið sem gætir okkar á daginn á meðan mamma og pabbi sinna sínum daglegu störfum. Eyja Rós hefur starfað sem dagmóðir síðan í Apríl 2011, an Alli síðan í Apríl 2013 og hafa þau alltaf haft gaman af starfi sínu sem gengur fyrst og fremst út á að sína lítlu krílunum ástúð, hlýju, alúð og frábæra umönnun. Eyja Rós er fædd 1976 í Vestmannaeyjum, og maðurinn hennar er Alhagie Jasseh er fæddur í Gambíu, og við búum á Dalseli 34, þar sem við erum með litlu krílin á daginn. Ef þig vantar að ná sambandi við Eyju Rós og Alla þá eru hér upplýsingar til þess:

Heimasími: 588-1894
GSM sími 867-1894
Netfang [email protected]

Við bjóðum ykkur velkomin til okkar. Alls geta dvalið um 10 börn á aldrinum s*x mánaða og úppúr hjá okkur. Við bjóðum upp á vistunartíma frá 7:45-16:15. Ekki er boðið upp á hálfsdagsvistun. Aðlögun:

Það er stór stund í lífi barns og foreldra þegar barnið þarf að aðlagast nýjum stað og nýju fólki. Aðlögunin hjá okkur er ein vika og byrjar aðlögunin á mánudegi
Dagur 1: 30 min með foreldri
Dagur 2: 30 min án foreldris
Dagur 3: 60 min. Dagur 4: 3 klst. frá þá 9 - 12
Dagur 5: 6 klst. frá 9-3. Barnið á alltaf að koma til okkar búið að borða og vel hvílt, fyrstu vikuna borðar barnið ekki hjá okkur morgunmat. Hornsteinar okkar eru: SAMVINNA OG LEIKUR

Lítil börn þurfa að læra það að vera í daggæslu/leikskóla og að vinna í hópum. Aðlögun barna að leik með öðrum börnum stendur oftast yfir í þó nokkurn tíma. Þau eru að kynnast okkur og börnunum, ásamt því að kanna hvað hægt er að gera saman. Ekki líður langur tími þangað til barnið er farið að deila leikföngum með vinum sínum og ber umhyggju fyrir öðrum. Við kennum börnum umhyggju með því að sýna hana í verki. Persónuleg tengsl og náin samskipti eru mikilvæg í því samhengi. Munum það að gott samstarf foreldra tryggir vellíðan barnanna. Dagskipulagið okkar:
---------------------------------
7:45-8:30 Opnun/Morgunverður
8:30-11:00 Frjáls leikur/Útivera
11:00-12:00 Hádegisverður
12:00-14:30 Hvíld
14:30-15:30 Kaffitími / Frjáls leikur/Útivera
15:30-16:15 Samvera/Heimför

Starfsemi:
Við leitumst við að aðlaga dagskipulagið eftir aldri, þroska og samsetningu barnahópsins hverju sinni. Dagskipulagið einkennist nú að miklu leyti af frjálsum leik sem þýðir að barnið þroskar færni sína félags og vitsmunalega. Leikurinn er þeirra vinna og nám. Leikurinn fær bæði tíma og rými fyrir börnin til að leyfa þeim að huga að áhugasviði sínu.
Ávallt eru fastir liðir í dagskipulaginu s.s. matmálstímar, samverustundir, vinnustundir, hvíld og útivera. Dvalartímar:
Boðið er upp á dvöl frá 7:45-16:15. Athugið að virða dvalartíma barnanna. Gjöld:
Dagvistunargjöld eru innheimt fyrsta hvers mánaðar. Greiðslu ber að inna af hendi 1. virka dag mánaðarins. Niðurgreiðslur eru misjafnar eftir bæjarfélögum. Hægt er að fá upplýsingar um það inn á vef hvers bæjarfélags eða hjá okkur. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og gildir þá 1.dagur mánaðarins, uppsögnina ber að tilkynna einum mánuði fyrr, og tekur hún gildi 1. Heimilt er að krefjast greiðslu í mánuð hafi ekki verið sagt upp með mánaðar fyrirvara. Skipulagsdagar:
Skipulagsdagar eru tveir á ári og
eru meðal annars nýttir til símenntunnar, fyrirlestra, skipulagningar og mats á starfinu. Þessa daga er lokað en skipulagsdagar eru auglýstir með mánaðar fyrirvara. Fjarvistir
Tilkynna þarf fjarvistir barns daglega, hvort sem það er vegna fría eða veikinda. Fatnaður og vagnar
Nauðsynlegt er að barnið hafi meðferðis þann fatnað sem þarf til að nota bæði inni og úti. Lögð er áhersla á að merkja allan útifatnað barnanna. Vert er að athuga að við berum ekki ábyrgð á fatnaði barnanna. Vagna má geyma hjá okkur frá mán til föst. Bringubeisli, flugnanet og regnplast verða að fylgja með vagninum. Dagforeldri ber ekki ábyrgð á vagninum né aukahlutum svo sem neti, plast, eða beisli. Slys
Ef barn verður fyrir slysi er strax haft samband við foreldra. Veikindi
Þegar barn veikist er hringt í foreldra og þau látin sækja barnið. Hiti miðast við 38¨C.. Fái barn bakteríusýkingu sem meðhöndla þarf með sýklalyfjum þarf barnið að vera heima í sólarhring eftir að lyfjataka hefst. Afmæli:
Barnið má koma með eitthvað með sér á afmælisdaginn til að gæða sér á og gefa hinum ef foreldrar vilja það. Svefn barnanna:
Við bjóðum upp á það að sofa bæði inni og úti. Flest börn sofa úti í vagninum sínum þegar þau eru svona lítil en einnig erum við með dýnu inni sem hægt er að kúra á. Bleyjur:
Foreldrar koma með bleyjur fyrir barnið. Fatnaður:
Barnið þitt þarf að hafa aukasett af fötum í körfunni sinni, best er að hafa bara eitt sett þar sem börnin stækka svo hratt, betra er því að skipta reglulega. Útiföt og skór þurfa líka að vera til staðar. Matseðill:
Við bjóðum upp á þrjár máltíðir á dag ásamt ávaxtastundum á milli mála. Heitur matur er í hádeginu nema á föstudögum. Sumarfrí
Við munum fara í sumarfrí í fjórar-fimm vikur. Ákveðið er hvenær það verður í mars mánuði. Þegar við erum í sumarfríi eru ekki greidd dagvistunargjöld. Hins vegar ef barn fer í sumarfrí á öðrum tíma en dagforeldrar, er það ekki frádráttarbært frá gjaldinu. Nauðsynlegt er að láta okkur vita með fyrirvara um það. Vonumst til að eiga frábærar stundir með börnunum. Eyja Rós og Alli

21/09/2020

Komið sæl.
Er með laust pláss
Er í seljahverfinu 109.rek
Opið mán-fim 07:45-16:15
Föstudaga frá 07:45-14:00

Eyja Rós 8671894

26/03/2018

Er núna að taka við umsóknum með pláss fyrir haustið 2018.
Endilega hafa samband í síma 8671894

05/05/2014

Erum með eitt laust pláss 1.júní.
Vinnutími 07:45 - 16:15
Erum í Dalseli 34
Ef þig vantar dagforeldra fyrir litla krílið þitt, þá endilega hringdu :D
Eyja og Alli 867-1894 / 588-1894

09/01/2014

Vantar þér pláss fyrir litla krílið þitt núna í haust 2014,
Erum að taka við umsóknum núna
Hafðu samband í síma 867-1894
Eyja og Alli

30/07/2013

Erum enn með laust fyrir haustið,
Ef þú vilt fá pláss fyrir krílið þitt í haust endilega hafðu samband við okkur í síma 588-1894 / 867-1894
Kv Eyja og Alli

Smá kveðjugjöf fyrir stóru skvísurnar okkar sem eru að fara frá okkur í leikskóla :D
15/07/2013

Smá kveðjugjöf fyrir stóru skvísurnar okkar sem eru að fara frá okkur í leikskóla :D

Kerti með mynd

14/07/2013

Erum með 2 laus pláss fyrir haustið, endilega ef þér, eða ef þú veist um einhvern sem vantar pláss fyrir litla krílið, endilega hafa samband við okkur :D
Eyja og Alli
867-1894

12/07/2013
20/06/2013

Erum með 2 laus pláss fyrir haustið, endilega ef þér, eða ef þú veist um einhvern sem vantar pláss fyrir litla krílið, endilega hafa samband við okkur :D
Eyja og Alli
867-1894 :D

Address

Dalsel 34
Reykjavík
109

Opening Hours

Monday 19:45 - 16:15
Tuesday 19:45 - 16:15
Wednesday 19:45 - 16:15
Thursday 19:45 - 16:15
Friday 19:45 - 16:15

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when DagMamma posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to DagMamma:

Shortcuts

Share

Category