Lífspekifélagið

Lífspekifélagið Í yfir 100 ár hafa Lífspekifélagar stúderað heimspeki, lífsgildi, vísindi, listir og andleg málefni. www.lifspekifelagid.is
(1)

Lífspekifélagið, The Theosophical Society, er alþjóðlegur félagsskapur sem helgar sig alheims bræðra og systralagi mannkyns og hvetur til rannsókna og samanburðar trúarbragða, heimspeki og náttúruvísinda í þá veru að maðurinn megi betur skilja sjálfan sig og stöðu sína í alheiminum. Lífspekifélagið stendur fyrir algeru hugsana og trúfrelsi einstaklingsins. Lífspekifélagið boðar engar kenningar en hvetur til hugsana- og skoðanafrelsis. Því eru þær hugmyndir sem hér koma fram ekki á ábyrgð félagsins eða bindandi fyrir félagsmenn, en settar fram til að hvetja til umræðu og stúdíu um sjálfsrækt og andlega iðkun. Starfsemi félagsins fer fram á fundum, með fyrirlestrum, umræðum, í námshópum og námskeiðum og er öllum opin.

Í Lífspekifélaginu geta menn kynnst á tiltölulega stuttum tíma, straumum og stefnum í andlegum málum, þeir frétta um athyglisverðar bækur og tímarit og kynnast öðru fólki sem hefur svipuð áhugamál, þeir læra af reynslu annarra og miðla um leið sínum eigin skilningi. Lífspekifélagið er ekki varnargarður utan um einhverjar kenningar eða átrúnað; það boðar enga kenningu og getur þar af leiðandi ekki sóst eftir áhangendum. Það er því ekki trúfélag né “dulspekifélag" eins og margir virðast halda. Félagið er samtök venjulegs fólks sem hefur það óvenjulega áhugamál að vilja kanna leyndardóma mannsins og vitundar hans, fólks sem vill nema eftir sinni eigin getu og í samræmi við eigin persónulega hæfileika. Forsenda slíkrar leitar eða náms er innra frelsi, frelsi til að leita, sem er að vera óbundinn af trúarsannfæringu og frelsi til að tjá skilning sinn. Lífspekifélagið er vettvangur einstaklinga sem vilja sameinast um spurningar en ekki um svör, sem vilja leita eftir skilningi en ekki sannfæringu. The Theosophical Society, founded in 1875,
is a worldwide body whose primary object is Universal Brother & Sisterhood without distinction based on the realization that life, and all its diverse forms, human and non-human, is indivisibly One. The Society imposes no belief on its members, who are united by a common search for Truth and desire to learn the meaning and purpose of existence through study, reflection, self-responsibility and loving service. Theosophy is the wisdom underlying all religions when they are stripped of accretions and superstitions. It offers a philosophy which
renders life intelligible and demonstrates that justice and love guide the cosmos. Its teachings aid the unfoldment of the latent spiritual nature in the human being, without dependence.

30/09/2026
Í átt að heiðnum sögnum og helgisiðum spinnur Ómun saman orðum og tónlist og skapar sínar eigin sögur og goðafræði. Á re...
22/09/2026

Í átt að heiðnum sögnum og helgisiðum spinnur Ómun saman orðum og tónlist og skapar sínar eigin sögur og goðafræði. Á reki milli enskrar og íslenskrar orðlistar afhjúpast frásagnirnar undir yfirborði hversdagsleikans og opna leiðir inn í torræðari rými vitundarinnar.
Kunnuglegar myndir taka breytingum þegar innsæi og táknmál leysa rökvitund af hólmi og bjóða áhorfendum að ferðast um lagskiptar lendur minninga, goðsagna og ósvaraðra tilvistarspurninga. Tónlistin sprettur fram úr fíngerðri hljóðáferð. Brotnir gítarhljómar þróast áfram á meðan strokinn rafbassinn gefur frá sér langa, ómandi tóna sem svífa um loft og vitund.

Tríóið skipa þau Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Nico Guerrero og Tristan Sand.

Stúkan Mörk stendur fyrir viðburði þessum. Aðgangur er ókeypis en eftir viðburðinn er að vanda boðið upp á kaffi og veitingar gegn vægu gjaldi á efri hæð hússins.

Við hlökkum til að sjá ykkur 🎶

05/08/2026

Gamall Gangleri verður allur skannaður inn hjá Tímarit.is. Okkur vantar svolítið inn. Ef þið eigið kíkið á hvort þið hafið.
Eldri Ganglera vantar 1922 1923 1924 og 1926 1 og 2/8
Nýrri
2. Árgangur 1928 fyrra
3. Árgangur 1929 fyrra
3. Árgangur 1929 seinna
7. Árgangur 1933 seinna
11. Árgangur 1937 fyrra
25. Árgangur 1951 fyrra
27. Árgangur 1953 fyrra
36. Árgangur 1962 fyrra
36. Árgangur 1972 seinna
41 Árgangur 1967 1/4
52. Árgangur 1978 seinni

04/08/2026

GUÐSPEKIFÉLAGIÐ/Lífsspekifélagið, samanstendur af nemum, sem tilheyra öllum trúarbrögðum heims, eða engum þeirra, sem sameinast um samþykki við stefnuskrá þess, vegna óska um að afmá trúarlegan fjandskap, til að fylkja saman velviljuðum einstaklingum, vegna löngunar til að nema trúarleg sannindi og til að deila afrakstri náms síns með öðrum. Sameiginleg bönd þeirra eru ekki tilkomin vegna sameiginlegrar sannfæringar, heldur vegna sameiginlegrar leitar og þrár eftir sannleikanum. Þeir álíta að sannleikann eigi að nálgast með námi, með íhugun, með flekklausu líferni, með tryggð við hugsjónir og þeir líta á sannleikann sem dyggð, sem er þess virði að sækjast eftir, ekki kreddu til að þröngva upp á aðra. Þeir líta svo á að sannfæring eigi að vera afrakstur einstaklingsbundins náms eða innsæis, en ekki forsenda þess, og eigi að hvíla á þekkingu en ekki fullvissu. Þeir eru fordómalausir gagnvart öllum, einnig þeim sem fordæma, ekki sem forréttindi sem þeir útdeila, heldur sem skylda sem þeir ástunda, og þeir reyna að eyða fávísi en ekki að refsa fyrir hana. Þeir líta á öll trúarbrögð sem tjáningu hinnar guðlegu visku, kjósa að kynna sér þau fremur en fordæma og taka iðkun þeirra fram yfir trúboð. Friður er þeirra einkunnarorð eins og sannleikurinn er þeirra takmark.

23/04/2026

Við munum líka dansa föstudagskvöldið 24. Apríl 2026 🌟

Föstudaginn 10 apríl er dagskráin tileinkuð okkar kæra Sigvalda Hjálmarssyni. Sýnt verður myndband þar sem Sigvaldi Hjál...
09/04/2026

Föstudaginn 10 apríl er dagskráin tileinkuð okkar kæra Sigvalda Hjálmarssyni.

Sýnt verður myndband þar sem Sigvaldi Hjálmarsson fjallar um Rödd þagnarinnar eftir H. P. Blavatsky.

-
Reykjavíkurdeildin stendur fyrir þessum viðburði. Öll hjartanlega velkomin og endilega bjóðið sem flestum með.

26/03/2026

ATH Erindið um gervivitund fellur niður á morgun. Þess í stað flytur Haraldur Erlendsson erindi sem er auglýst hér á síðunni.

Address

Ingólfsstræti 22
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lífspekifélagið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Lífspekifélagið:

Shortcuts

Share