15/07/2026
Með sumrinu kemur sumarstarfsfólkið inn á vinnustaðina og í mörgum tilvikum er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Oft vantar upp á reynslu, þekkingu og réttindi og þá er ánægjulegt að segja frá því að fyrirtæki geta á fyrsta mánuði einstaklings í starfi sótt um styrk vegna þess einstaklings og fengið 90% endurgreiðslu á reikning.
Það ætti því ekki að vera nein hindrun að ráða inn unga fólkið okkar heldur hvati og góð fjárfesting, því mögulega koma þeir einstaklingar aftur til starfa síðar og þá með reynslu, þekkingu og réttindi, sem áður hefur verið aflað hjá viðkomandi fyrirtæki. Sjá nánar frétt á vef Starfsafls,www.starfsafl.is