Foreldrafélag Réttarholtsskóla

Foreldrafélag Réttarholtsskóla er vettvangur foreldra barna í skólanum til að hafa áhrif á starf og umhverfi skólans. Þeir sem vilja hafa samband við fulltrúa í stjórn foreldrafélagsins, skólaráði eða bekkjarfulltrúa geta nálgast upplýsingar á vefsíðu foreldrafélagsins.

30/09/2026

Foreldrarölt💛✨
Óskum eftir foreldrum úr öllum árgöngum í foreldrarölt eftir ball í kvöld.
Hittumst við íþróttahús Réttó kl.21:45

30/09/2026

Foreldrarölt💛
Óskum eftir foreldrum úr öllum árgöngum í foreldrarölt eftir ball í kvöld.
Hittumst við íþróttahús Réttó kl.21:45

Nú er komið að fjáröflun haustsins sem nemendur geta nýtt upp í fyrirhugaðar ferðir hjá 9. og 10. bekk. Nemendum í 8. be...
11/09/2026

Nú er komið að fjáröflun haustsins sem nemendur geta nýtt upp í fyrirhugaðar ferðir hjá 9. og 10. bekk. Nemendum í 8. bekk er einnig velkomið að taka þátt og nýta ágóðann upp í ferð á næsta skólaári.

🥕 Brakandi ferskar gulrætur

Við ætlum að selja ferskar og góðar gulrætur frá bænum Fljótshólum við ósa Þjórsár.

1,5 kg poki kostar 2.000 kr.
Nemandi fær 1.000 kr. í ágóða fyrir hvern seldan poka.

🐟 Gjafabréf frá Hafinu fiskverslun

Auk gulrótanna geta nemendur selt gjafabréf frá Hafinu fiskverslun.
Nemandi fær 1.000 kr. í ágóða fyrir hvert selt gjafabréf.

📩 Skil á sölutölum

Sölutölum skal skila á netfang foreldrafélagsins; [email protected], fyrir kl. 12:00 þann
25. september 2026.

Afhending verður um það bil viku síðar. Nákvæm dagsetning og fyrirkomulag verða auglýst þegar nær dregur.

💳 Greiðsla
Athugið að greiða þarf fyrir vörurnar samhliða pöntun með millifærslu:

Reikningsnúmer: 0313-26-080920
Kennitala: 511208-0920

Takk fyrir þátttökuna og gangi öllum vel með söluna! 🥕🎣

Með kveðju,
Stjórn foreldrafélags Réttarholtsskóla

26/08/2026

Kunngerist hér með að aðalfundur foreldrafélags Réttarholtsskóla verður haldinn þriðjudaginn
8. september nk. Klukkan 18:00.

Aðalfundurinn hefst strax að lokinni dagskrá skólans fyrir foreldra nemenda í 8. bekk.

Að loknum aðalfundi verður farið yfir fyrirkomulag og skipulag fjáröflunar fyrir nemendur í 9. og 10. bekk sem fara í skólaferðalag á vegum skólans á þessu skólaári.

Aðalfundurinn verður með hefðbundnu sniði þar sem farið verður yfir starf félagsins, helstu verkefni síðasta starfsárs og það sem fram undan er.

Við viljum sérstaklega hvetja nýja og áhugasama foreldra til að gefa kost á sér til starfa í stjórn foreldrafélagsins. Það er bæði gefandi og skemmtilegt að taka þátt í starfinu, kynnast öðrum foreldrum og eiga þannig þátt í að efla skólasamfélagið og skapa nemendum okkar góða umgjörð.

Foreldrafélagið gegnir mikilvægu hlutverki í skólastarfinu og framlag hvers og eins skiptir máli. Við hvetjum því foreldra til að mæta, taka þátt og leggja sitt af mörkum.

Við hlökkum til að sjá sem flesta og bjóðum alla foreldra hjartanlega velkomna!

💞
22/08/2026

💞

📌
21/08/2026

📌

📍
26/06/2026

📍

Kæru foreldrar.Framundan er sumarið með öllum sínum ævintýrum og breyttu skipulagi. Ágætt er að hafa í huga að foreldraá...
09/06/2026

Kæru foreldrar.

Framundan er sumarið með öllum sínum ævintýrum og breyttu skipulagi. Ágætt er að hafa í huga að foreldraábyrgðin nær til 18 ára aldurs og tekur sér aldrei frí. Viðsamlegast lesið meðfylgjandi viðhengi.

Sumarkveðjur,
Reykjavíkurborg

Stjórn foreldrafélagsins þakkar 10. bekk fyrir vel lukkaða óvissuferð í gærkvöldi. Virkilega skemmtilegur hópur. Við þök...
09/06/2026

Stjórn foreldrafélagsins þakkar 10. bekk fyrir vel lukkaða óvissuferð í gærkvöldi. Virkilega skemmtilegur hópur. Við þökkum fyrir árin í Réttó🎊

Address

Réttarholtsvegur 21/25
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Foreldrafélag Réttarholtsskóla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Foreldrafélag Réttarholtsskóla:

Shortcuts

Share

Category