Færni til framtíðar

Færni til framtíðar Færni til framtíðar
Allt um hreyfifærni, hreysti og
skynþroska barna í náttúrunni. Fræðsla og námskeið.

Færni til framtíðar er handbók um örvun hreyfifærni barna úti í nánast umhverfi. Sabína Steinunn Med Íþróttafræðingur hefur unnið með hugmyndafræði sína í 10 ár með góðum árangri og ætlar nú að miðla þekkingu sinni. Færni til framtíðar - fyrirlestrar, námskeið og ráðgjöf varðandi útikennslu og hreyfifærni barna.

Förum út með börnunum okkar! Út í náttúruna, niður að sjó, upp á fjöll, út í móa, vaða í læk – hvert sem leiðin liggur.G...
30/09/2026

Förum út með börnunum okkar!

Út í náttúruna, niður að sjó, upp á fjöll, út í móa, vaða í læk – hvert sem leiðin liggur.

Gefum þeim tíma!

Tíma til að ráfa, skoða, rannsaka, prófa, skapa og jafnvel leiðast aðeins. Já það má ♡

Leyfum þeim að hlaupa, klifra, vaða, sulla, verða skítug og finna sjálf út úr hlutunum.

Við þurfum ekki alltaf að fylla tímann þeirra, vera skemmtanastjórar stýra leiknum eða finna næsta verkefni.

Stundum er besta verkefnið ekkert verkefni - ekkert plan.

Bara tími, rými, samvera og náttúran. Þar fær forvitnin að ráða för, ímyndunaraflið að njóta sín, líkaminn að læra og bernskan einfaldlega að vera bernska.

Njóta – ekki þjóta!

Þannig byggjum við færni til framtíðar.

Gleðilegan miðvikudag

Gleðilegan mánudag 🤎Þarf alltaf að kaupa eitthvað til að styðja við þroska barna?Markaðsaflið er duglegt að segja okkur ...
28/09/2026

Gleðilegan mánudag 🤎

Þarf alltaf að kaupa eitthvað til að styðja við þroska barna?

Markaðsaflið er duglegt að segja okkur að börn þurfi „þroskaleikföng“, sérhönnuð áhöld, ákveðna litapallettu og alls konar græjur til að efla færni sína, þroska og skynjun.

Það er hins vegar erfitt að selja okkur eitthvað sem er ókeypis!

Náttúran kostar ekki krónu – en býður upp á ótal tækifæri til að örva jafnvægi, þjálfa samhæfingu, hreyfifærni, styrk og skynjun. Ójafnt undirlag, brekkur, steinar og síbreytilegt veður og umhverfi kalla á að líkaminn aðlagi sig, prófi og læri. Standi upp og eflist 🌿 öðlast sjálfstraust og trú á eigin getu.

Kannski þurfum við ekki alltaf fleiri „þroskagræjur“. Kannski þurfum við meiri tíma, meira rými og fleiri tækifæri til að hreyfa okkur frjáls úti í náttúrunni.

Barnið sér leik - líkaminn lærir.
Þannig byggjum við færni til framtíðar.

Njótið dagsins

Njóta – ekki þjóta 🌿Tími og rými til að vera, skapa og njóta samverunnar.Oft verða bestu minningarnar til þegar ekkert s...
27/09/2026

Njóta – ekki þjóta 🌿

Tími og rými til að vera, skapa og njóta samverunnar.

Oft verða bestu minningarnar til þegar ekkert sérstakt var á dagskrá.

Gleðilegan sunnudag 🤎

Má klifra upp rennibrautina? Veit ekki hve oft ég hef heyrt forráðamenn banna börnunum sínum að klifra upp rennibrautina...
25/09/2026

Má klifra upp rennibrautina?

Veit ekki hve oft ég hef heyrt forráðamenn banna börnunum sínum að klifra upp rennibrautina. En áttum okkur á því að leiktæki og leikvellir eru hannaðir af fullorðnum. Börnin sjá hins vegar ótal möguleika sem okkur dettur ekki einu sinni í hug að prófa!
Þótt ég sé mikil áhugakona um náttúrulega leikvelli og vilji gjarnan sjá meira af þeim, er staðan enn sú á Íslandi að manngerðir leikvellir eru fleiri – takið eftir, ENN fleiri!
Vonandi breytist það með tímanum, en á meðan
skulum við nýta þau tækifæri sem þessir leikvellir bjóða upp á og leyfa börnunum að klifra, prófa sig áfram, reyna á sig og öðlast færni á eigin forsendum.

Þau klifra, skríða, toga, ýta, renna sér og prófa sig áfram. Þannig þjálfa þau styrk, jafnvægi, samhæfingu og hreyfistjórnun. Þau læra á eigin líkama, finna fótfestu og öðlast færni og öryggi með hverri nýrri áskorun.
Gefum börnum tækifæri til að reyna á sig, þjálfa hreyfifærni og læra að meta eigin getu – með stuðningi okkar þegar þörf krefur. Þannig eflum við sjálfstraust, seiglu og gróskuhugarfar, þar sem hver áskorun verður tækifæri til að læra og vaxa.
Hreysti barna skiptir máli! Hreyfing hefur minnkað og við þurfum að skapa fleiri tækifæri fyrir börn til að reyna á sig, ekki færri.

Trúið mér, þau munu prófa sig áfram, líka þegar við sjáum ekki til! Er þá ekki betra að þau hafi fengið tækifæri til að æfa sig, öðlast færni og læra að meta hvað þau ráða við?

Áhættuleikur snýst ekki um að leyfa allt, heldur að gefa börnum tækifæri til að takast á við viðráðanlegar áskoranir, með stuðningi okkar þegar þörf krefur.

Styðjum og styrkjum í stað þess að stýra öllu með boðum og bönnum.
Sterk börn skipta máli – og þannig byggjum við færni til framtíðar!

Góða helgi flotta fyrirmynd

Miðvikudag 🌿Þegar dauður fugl verður á vegi barns vakna spurningar um lífið og dauðann. Lítil athöfn getur orðið að stór...
23/09/2026

Miðvikudag 🌿

Þegar dauður fugl verður á vegi barns vakna spurningar um lífið og dauðann.

Lítil athöfn getur orðið að stórri stund þar sem ábyrgð, samkennd og virðing fyrir náttúrunni fá að njóta sín.

Ég elska þegar svona verkefni koma upp í hendurnar á okkur. Óvæntar stundir úti í náttúrunni, þar sem ferskt loft, samvera og forvitni skapa dýrmæt tækifæri til að staldra við, hlusta, ræða og leiðbeina.

Gefum börnum tíma til að upplifa, spyrja og leita svara á sínum forsendum. Því nám og þroski felast ekki eingöngu í leik og gleði, heldur líka í því að takast á við alvöru lífsins.

Þannig byggjum við færni til framtíðar! 🤎

Gleðilegan mánudag!Einn daginn munu börnin okkar segja frá því hvernig það var að alast upp - bernskan þeirra!Gefum þeim...
21/09/2026

Gleðilegan mánudag!

Einn daginn munu börnin okkar segja frá því hvernig það var að alast upp - bernskan þeirra!
Gefum þeim tækifæri til að safna minningum um samveru, útiveru, leik og ævintýri. Tíma til að prófa sig áfram, takast á við áskoranir og uppgötva eigin styrkleika.

Bernskan er ekki bara undirbúningur fyrir framtíðina ♡ Hún er lífið hér og nú – og grunnurinn að færni til framtíðar!

Njótið dagsins saman – á ykkar eigin forsendum!

Samveru-Sunnudags-Sæla!Ekki gera ekki neitt – gerðu eitthvað í dag sem fær hjartadæluna til að dansa af gleði úti í nátt...
20/09/2026

Samveru-Sunnudags-Sæla!

Ekki gera ekki neitt – gerðu eitthvað í dag sem fær hjartadæluna til að dansa af gleði úti í náttúrunni!

Njótið samverunnar, ferska loftsins og litlu augnablikanna sem verða að dýrmætum minningum.

Njótið dagsins með bros á vör, flottu fyrirmyndir! 🌿

Af hverju byrja snemma? Hreyfingin byrjar löngu áður en fyrstu skrefin eru tekin. Strax í móðurkviði upplifir barn hreyf...
18/09/2026

Af hverju byrja snemma?

Hreyfingin byrjar löngu áður en fyrstu skrefin eru tekin. Strax í móðurkviði upplifir barn hreyfingu og eftir fæðingu heldur reynslan áfram – í fangi, burðarpoka og jafnvel veltandi um holt og hæðir í barnavagni.

Smám saman tekur barnið sjálft við - fyrst stutt skref, svo lengri vegalengdir, fjölbreyttara undirlag, fleiri og meiri áskoranir. Líkaminn skynjar, upplifir, les, lærir og reynslan byggist upp skref fyrir skref.

Við erum nefnilega líka að byggja upp eitthvað annað – eða....venjur! Þegar útivera, hreyfing og gönguferðir verða eðlilegur hluti af hversdagslegu lífi geta þær orðið að lífsstíl sem fylgir barninu áfram. Milli kynslóða ♡

Það þarf ekki að fara hratt eða langt - engar flugeldasýningar. Við gefum tíma til að stoppa, skoða, spjalla og upplifa – á hraða hægasta manns. Þar verða oft til bestu samtölin, samveran og gæðastundirnar 🤎

Byrjum snemma – góðar venjur vaxa með barninu 🌿

Góða útiveru helgi flotta fyrirmynd 🙏

Dagur íslenskrar náttúru  🌿🌱Í dag er góður dagur til að njóta útiveru í íslenskri náttúru. Við eigum auðvitað að gera þa...
16/09/2026

Dagur íslenskrar náttúru 🌿

🌱Í dag er góður dagur til að njóta útiveru í íslenskri náttúru. Við eigum auðvitað að gera það alla daga en í dag er sérstakt tilefni. 16.september er Dagur íslenskrar náttúru og því mikilvægt að hvetja öll til að bera virðingu fyrir náttúrunni og sameinast um að ganga vel um hana - alltaf;)

Því er við hæfi að hafa í huga að við skulum ávallt,

• Bera virðingu fyrir náttúrunni.
• Aldrei fleygja rusli í náttúrunni.
• Njóta í náttúrunni og ganga vel um.

🍁Færni til framtíðar hvetur öll til að ganga vel um. Taka ávallt allt rusl með heim ef þið eruð með nesti á ferðum ykkar. Það sem þið finnið á göngu ykkar má einnig nýta í leik og spennandi hindranir til að yfirvinna áður en þið takið það með heim, henda og flokka, fyrir þau sem "gleymdu" að taka það með heim;)

🍂Margar flugur í einu höggi - örvun hreyfifærni í íslenskri náttúru, útivera, umhverfisvitund og síðast en ekki síst samvera;)

Grípið tækifærið og fræðið hvert annað - verkefni sem öll græða á:)

Gleðilegan 16.september flottu fyrirmyndir 🤎

Gleðilegan miðvikudag 🌿Bernskan þarf ekki alltaf dagskrá  - hún þarf meiri:- Tíma til að dunda- Tíma til að uppgötva- Tí...
16/09/2026

Gleðilegan miðvikudag 🌿

Bernskan þarf ekki alltaf dagskrá - hún þarf meiri:

- Tíma til að dunda
- Tíma til að uppgötva
- Tíma til að gleyma sér í leiknum
- Tíma til að vera saman
- Tíma til að njóta
- Tíma í náttúrunni
- Tíma til að vera - ekki alltaf gera!

Börn þurfa ekki flugeldasýningu alla daga ❤️

Njóta – ekki þjóta! 🌿

Address

Reykjavík

Telephone

+3548982279

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Færni til framtíðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Færni til framtíðar:

Shortcuts

Share