Raftækniskólinn / Tækniskólinn
Raftækniskólinn er einn undirskóla Tækniskólans á Skólavörðuholti.
23/09/2020
https://www.si.is/frettasafn/rafvirkjar-og-rafeindavirkjar-med-bestan-arangur-a-sveinsprofi
Rafvirkjar og rafeindavirkjar með bestan árangur á sveinsprófi Viðurkenningar fyrir bestan árangur á sveinsprófi voru veittar rafvirkjum og rafeindavirkjum í móttöku hjá Rafmennt síðastliðinn fimmtudag. Vegna COVID var ekki hægt að halda hefðbundna móttöku fyrir alla útskriftarnema og var þeim því öllum sent gjafabréf á hótelgistingu fyr...
24/01/2020
Gjöf frá Reykjafelli.
Þau heimsóttu okkur í Hafnarfjörðin Geir og Hildur frá Reykjafelli og afhentu skólanum formlega 3 Eaton Easy iðntölvur til nota við kennslu í stýritækni. Þetta er frábær stuðningur frá Reykjafelli og ekki veitir af því þróun í þessum geira er mjög mikil og full þörf á að vera á tánum í kringum framfarir sem eru að verða í iðnaði og stýritækni. Við hjá Raftækniskólanum þökkum Reykjafelli þennan stuðning og fyrir stuðning undanfarinna ára því þeir hafa staðið við bakið á okkur lengi.
Á myndinni má sjá Hildi Ýr Þráinsdóttur starfsmann Reykjafells, Björgúlf Þorsteinson kennara og Geir Arnar Geirsson starfsmann Reykjafells.
12/12/2019
Nemendur sem luku sveinsprófi í rafeindavirkjun ætla að sýna smíðaverkefni sín í sal Raftækniskólans milli 11.00 og 13.30 á morgun föstudaginn 13.12. Þetta verður fróðlegt því þarna er merkilegir hlutir eins og þessi magnari eftir Auði Rögnvalds. HiFi græja eins og þær gerast bestar.
04/12/2019
Það var ekki jólasveinn sem heimsótti okkur þriðjudaginn 3. Desember heldur var það Helgi Guðlaugsson viðskiptastjóri Rönning og kom hann með marga pakka til okkar. Þetta er sannkölluð veisla fyrir okkur. Rönning gefur Raftækniskólanum rafmagnsefni frá Berker til nota í verkefnavinnu að verðmæti nálægt tveimur milljónum. Ekki veitir af því þetta er búnaður sem þarf að endurnýja reglulega enda rúmlega 420 nemendur skráðir í nám hjá Raftækniskólanum og þurfa margar hendur að meðhöndla allt okkar raflagnaefni. Á myndinni er Helgi Guðlaugsson að afhenda Helga Þórði Þórðarsyni fagstjóra á sterkstraumssviði Raftækniskólans pakkana. Við starfsmenn Raftækniskólans þökkum Rönning innilega fyrir veittan stuðning.
28/11/2019
Electric Engine PRODUCTION - Audi e-tron MOTOR Electric Engine Audi e-tron - PRODUCTION. Car Factory Audi. How It's Made the Electric Engine Audi in the new e-tron quattro SUV. Engineering explained luxur...
20/04/2019
27/11/2018
Napo er meðþetta
Napo in shocking situations - episode 008 - Lock out To download the videos, visit our website http://www.napofilm.net/en/napos-films
02/10/2018
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/09/30/asbjorn_hlaut_silfur_a_euroskills/
Ásbjörn hlaut silfur á EuroSkills Ásbjörn Eðvaldsson hlaut silfurverðlaun í Evrópukeppni í iðn- og verkgreinum, EuroSkills, sem fram fór í Búdapest í síðustu viku. Ásbjörn keppti í rafeindavirkjun og hlaut 710 stig en s*x keppendur tóku þátt í greininni.
24/07/2018
Ætti þetta ekki að vera söngur rafveituvirkjans
Wichita Lineman - Glen Campbell Wichita Lineman" is a song written by American songwriter Jimmy Webb in 1968. It was first recorded by American country music artist Glen Campbell with backi...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Telephone
Address
Skólavörðuholti
Reykjavík
101
Opening Hours
| Monday | 07:00 - 18:00 |
| Tuesday | 07:00 - 18:00 |
| Wednesday | 07:00 - 18:00 |
| Thursday | 07:00 - 18:00 |
| Friday | 07:00 - 18:00 |
| Saturday | 09:00 - 13:00 |