Til að skrá ykkur á námskeið þá sendið okkur email á : [email protected]
með upplýsingum um:
Nafn:
Kennitölu:
Símanúmer:
Heimilisfang:
Netfang:
Annað: Endilega látið fylgja með upplýsingar sem gætu skipt máli. Námkeið í boði á haustönn 2016
Söngur og framkoma
10-12 ára
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að læra að þekkja röddina sína og hvernig á að beita henni. Öndun, líkamsbeiting, raddæfingar og hvað maður þarf að gera til að hita sig upp. Hvernig á að velja sér lög við sitt hæfi og hvernig á að túlka lögin og texta. Velja sér lög til að syngja einsöng til að syngja á tónleikum. Einnig verða æfð hóplög, jafnvel dúettar og tríó
Á haustönn teljum við í nokkur jólalög
Tímaflipp !! NÝTT
Allir nemendur koma saman og fá tækifæri til að syngja lögin sem þeir eru að æfa í tímum.
Þetta er ætlað sem vettvangur fyrir nemendur að kynnast á milli hópa, æfa sig í að syngja fyrir aðra og að syngja saman í hóp. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman og skemmta sér.
10 vikna námskeið Nemendur mæta í tíma einu sinni í viku
1 x Tímaflipp Föstudagur 28.október 16:00 - 17:30
1x tónleikar 25-27.nóvember
3-5 í hóp
Verð: 40,000,-
Kennsla verður í Síðumúla 29
Miðvikudaga og fimmtudaga
Kennari: Erla Jónatansdóttir
NÝTT !! Haustönn 10-12 ára
Teiknimyndalögin
Þessi hópur einblínir á lög sem kemur úr heimi teiknimyndanna.Nemendur velja sér lög af lista til að syngja einsöng og flytja á tónleikum. Einnig verða æfð lög sem nemendur syngja saman, hóplög, dúettar eða tríó. Allir nemendur koma saman og fá tækifæri til að syngja lögin sem þeir eru að æfa í tímum.
Þetta er ætlað sem vettvangur fyrir nemendur að kynnast á milli hópa, æfa sig í að syngja fyrir aðra og að syngja saman í hóp. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman og skemmta sér.
10 vikna námskeið Nemendur mæta í tíma einu sinni í viku
1 x Tímaflipp Föstudagur 28.október 16:00 - 17:30
1x tónleikar 25-27.nóvember
3-5 í hóp
Verð: 40,000,-
Kennsla verður í Síðumúla 29
Miðvikudaga og fimmtudaga
Kennari: Erla Jónatansdóttir
Söngur og framkoma - I
13-15 ára
Farið verður í gegnum æfingar, upphitanir til að styrkja röddina. Öndun, líkamsæfingar, túlkun, framkoma, og textameðferð eru hlutir sem farið verður í. Timarnir byggjast upp á aðferð Kristin Linklater “Freeing the Natural Voice”. Aðferðin byggist meðal annars á að getað notað röddina án óþarfa spennu og kvíða. Styrkja röddina og stækka með tækni sem styðst við öndun og líkmasliðkun. Einnig verður farið í hvernig á að velja sér lög við sitt hæfi og grafið verður í lög og texta. NÝTT Föstudagur 28.október
Allir nemendur koma saman og fá tækifæri til að syngja lögin sem þeir eru að æfa í tímum.
Þetta er ætlað sem vettvangur fyrir nemendur að kynnast á milli hópa, æfa sig í að syngja fyrir aðra og að syngja saman í hóp. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman og skemmta sér. Kennarar: Margrét Eir, Erla Jónatansdóttir
10 vikur - Nemendur mæta 1 x í viku
1 x tónleikar 25.-27.nóvember
Verð : 48.000-
Söngur og framkoma - II
13-15 ára
Haldið verður áfram með tækniæfingar. Nemendur verður að hafa verið í Söngur og Framkoma I
Kennarar: Margrét Eir, Erla Jónatansdóttir
Í lok annar eru tónleikar
Kennarar: Margrét Eir, Erla Jónatansdóttir
10 vikur - Nemendur mæta 1 x í viku
1 x tónleikar 25.-27.nóvember
Verð : 48.000-
Einsöngvaranám:
Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem eru að huga að alvarlegra tónlistarnámi. Kennarar eru Margrét Eir
12 vikur
Einkatími 10 x 1x viku 1 klst
2x master class tímar
2x samsöngur
2x tónleikar
Farið verður í gegnum æfingar, upphitanir til að styrkja röddin. Öndum, líkamsæfingar, túlkun, framkoma, og textameðferð er hlutir sem farið verður í. Nemendur læra að byggja upp söngmöppu sem að uppfyllir öll skylirði til að geta tekið stigspróf.