Heimspekivefurinn

Heimspekivefurinn

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Heimspekivefurinn, Education, Sæmundargötu 10, Reykjavík.

http://heimspeki.hi.is

… góður byrjunarreitur fyrir þá sem vilja kynna sér heimspeki á netinu, hvort sem það eru heimspekinemar í háskólanum eða áhugasamur almenningur.

14/06/2025

Efnisákall!

Hugur, tímarit um heimspeki, lýsir eftir efni í 36. árgang, 2026. Þema Hugar 2026 verður „heimspeki menntunar“.

„Menntun er lykill að tækifærum framtíðar og eitt helsta hreyfiafl samfélaga og velsældar mannkyns,“ segir í Menntastefnu til ársins 2030.[1]

Frá einni kynslóð til annarrar breytast áherslur þegar kemur að því hvað þyki vænlegast til að skapa nemendum farsæld í námsumhverfi þar sem hlúð er að sérhverjum einstaklingi og mismunandi þörfum hvers og eins. Kennurum hefur verið legið á hálsi fyrir slaka frammistöðu íslenskra nemenda, einkum stráka, í PISA könnuninni. Uppi eru hugmyndir um farsæld sem markmið menntunar[2]. Á sama tíma hverfist tilfinningaleg greind í menntun um færni nemenda til að ná árangri í framtíðarstörfum sínum (sbr. Goleman[3] og Armstrong[4]) enda þótt þau hafa ennþá ekki orðið til eða verið skilgreind. En krafan er skýr um að standast samanburð við aðra og að ná árangri.

Hvernig bregst heimspeki menntunar við þversögninni sem felst í að menntun eigi að rækta gagnrýnar verur en steypir á sama tíma alla í sama mót? Hver er tilgangur menntunar?

Eftirfarandi getur nýst sem hugmyndaspretta fyrir þemað en listinn er ekki tæmandi:
- Heimspeki með börnum.
- Menntun tilfinninga
- Námskrár og þróun náms og kennslu.
- Siðferðilegt uppeldi.
- Mannkostamenntun.
- Menntun, siðfræði og listir.
- Gervigreind sem aðstoðarkennari.
- Skapandi kennslufræði.

Efni 36. árgangs afmarkast ekki við þemað. Greinar og þýðingar um margvísleg heimspekileg efni eru velkomnar. Allar frumsamdar greinar sem birtast í Hug, hvort sem þær eru utan eða innan þema, fara í gegnum nafnlausa ritrýni og ákvarðanir um birtingu eru teknar á grundvelli hennar. Viðmiðunarlengd greina er 8000 orð að hámarki. Höfundar eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningar um frágang sem finna má á Heimspekivefnum.

Sjá nánari leiðbeiningar um frágang hér: https://heimspeki.hi.is/fah-hugur/leidbeiningar-fyrir-hofunda/

Einnig er hægt að senda styttri texta eða hugleiðingar sem fara ekki í gegnum blint ritrýniferli. Hér verður horft til þess að birta greinar sem innlegg inn í umræðu um heimspeki og heimspekileg málefni eða heimspekilegar hugleiðingar um málefni líðandi stundar. Viðmiðunarlengd er 1500 til 4000 orð.

Hugur birtir einnig ritdóma um nýlega útkomnar bækur um heimspeki á íslensku eða eftir íslenska heimspekinga á erlendum tungumálum. Hægt er að fá titla frá útgáfum í samráði við ritstjóra. Þá birtir Hugur einnig þýðingar á erlendum verkum, svo sem greinum og bókarköflum. Þeir þýðendur sem hafa áhuga á að þýða efni fyrir Hug eru beðnir um að hafa samband fyrirfram við ritstjóra.

Skilafrestur efnis fyrir Hug 2026 er 30. nóvember 2025. Efni skal senda á ritstjóra, Kristian Guttesen, [email protected]

Þangað má einnig senda fyrirspurnir um hvaðeina sem snýr að Hug.

Tilvísanir:

1. Mennta- og barnamálaráðuneyti. 2022. Menntastefna til ársins 2030. https://www.stjornarradid.is/verkefni/menntamal/menntastefna/

2. Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir og Kristján Kristjánsson. 2023. Farsæld sem markmið menntunar: ákall um aðgerðir. Timarit um uppeldi og menntun, 32(1-2), 3-106. doi: 10.24270/tuuom.2023.32.5 https://www.researchgate.net/publication/377245840_Farsaeld_sem_markmid_menntunar_Akall_um_adgerdir

3. Goleman, D. 2011. Working with Emotional Intelligence. Bantam.

4. Armstrong, T. 2009. Multiple Intelligences in the Classroom (3. útg.). ASCD.

World Philosophy Day 2024 21/11/2024

Gleðilegan dag heimspekinnar

World Philosophy Day 2024 This edition will focus on "Philosophy: bridging social gaps," highlighting philosophy's vital role in mending the social fabric and fostering a more cohesive society

Aðalfundur og heimspekiæfing 12/10/2023

Á mánudag, 16. október, kl. 19:30-21, verður árlegur aðalfundur Félags heimspekikennara í Listaháskólanum í Laugarnesi. Gengið er inn vestan megin, seinni inngangur, eftir að hafa keyrt niður rampinn.

Stjórn verður ráðin til starfa og lagt á ráðin um næstu skref.

Einnig verður heimspekiæfing. Formaður félagsins, Guðmundur Arnar, segir dæmisögu af meistara og lærisveini, þátttakendur svara spurningum og svo verða umræður um svörin. Markmiðið með æfingunni er að þátttakendur efli færni sína í að færa rök fyrir máli sínu með því að vísa í textann sem unnið er með, að þátttakendur tjái hugmyndir sínar á skýran og einfaldan hátt og séu opnir fyrir hugmyndum annarra.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Sjá nánar: https://www.facebook.com/events/653865203479414

Aðalfundur og heimspekiæfing Hvar: Listaháskólinn Laugarnesi 91, 105 Reykjavík, Stofu L210 Hvenær: 16.10.2023 – 19:30-21:00 Að færa rök fyrir máli sínu Á mánudag, 16. október, kl. 19:30-21, verður árlegur aðalfundur Félags heimspekikennara í Listaháskólanum í Laugarnesi. Gengið er inn vestan

Heimspekiæfing um blekkingu í leik og starfi 16/09/2023

Heimspekiæfing um blekkingu í leik og starfi Hvar: Listaháskólinn Laugarnesi 91, 105 Reykjavík, Stofu L210 Hvenær: 18.09.2023 – 19:30-21:00 Að koma auga á ólíkar leiðir til að blekkja Á mánudag, 18. september 2023, tökum við upp þráðinn og höldum heimspekiæfingum áfram í húsakynnum Listaháskólans í Laugarnesi.

Námskeið: Heimspeki í skólastarfi 20/10/2022

Námskeið: Heimspeki í skólastarfi Heimspeki í skólastarfi HVAR: LHÍ, Laugarnesvegi 91, 105 Reykjavík HVENÆR: fimmtudaginn 17. nóvember 2022, kl. 15-18, föstudaginn 18. nóvember 2022, kl. 15-18 og laugardaginn 19. nóvember 2022, kl. 9-12 VERÐ: kr. 15.000 (greiða verður þátttökugjald að fullu fyrirfram, ath. að mörg

25/10/2021

Hugur, tímarit um heimspeki, kallar eftir efni!

10/10/2021

Listkennsludeild LHÍ býður upp á ókeypis heimspekinámskeið fyrir ungmenni 13-15 ára

Sjá nánar: https://www.facebook.com/listkennsludeild/posts/1788457971352903

Skráning stendur yfir í Heimspekiskóla LHÍ, ókeypis námskeið fyrir 12-15 ára.

Í Heimspekiskóla listaháskólans taka nemendur þátt í heimspekilegri samræðu um margvíslegar spurningar. Kennarar og kennaranemar í listaháskólanum sjá um kennslu en taka líka þátt í öllum verkefnum. Þátttakendur fá þjálfun í að spyrja stórra spurninga, hlusta á aðra, segja skoðun sína og gagnrýna hugmyndir. Dæmi um spurningar sem glímt verður við: Hvað er fegurð? Í hverju felst réttlæti o.s.frv.

Námskeiðið er 6 skipti, hefst mánudaginn 11. október og stendur til 22. nóvember. (Ekki er tími 1. nóvember). Tímarnir verða á mánudögum kl. 15:00 - 15:45 í húsnæði listkennsludeildar, LHÍ Laugarnesvegi 91. Seinasti skráningardagur er 10. október.

Nánari upplýsingar og skráning: https://www.lhi.is/frettir/okeypis-heimspekinamskeid-fyrir-ahugasom-ungmenni-a-aldrinum-13-15-ara

TROUBLED TALK | Norræna Húsið 16/09/2021

Austurríski-afganski heimspekingurinn Fahim Amir er gistihugsuður (e. thinker in residence) í Norræna húsinu og tekur þátt í viðburðinum TROUBLED TALK, þ. 19. september nk.

TROUBLED TALK | Norræna Húsið TROUBLED TALK er samtalsviðburður sem er hluti af hugmyndarheim sýningarinnar TIME MATTER REMAINS TROUBLE.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Sæmundargötu 10
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00