Víkurskóli - nýsköpunarskóli

Víkurskóli - nýsköpunarskóli Víkurskóli er unglingaskóli í norðanverðurm Grafarvogi sem ætlaður er nemendum úr Borga-, Engja, Staða- og Víkurhverfi. Grunnskóli

Víkurskóli er nýsköpunarskóli með áherslu á samþættingu og sköpun í hvívetna.

Á starfsdegi Víkurskóla í dag kynntu Renate og Björk fyrir samstarfskennurum alþjóðlegt Erasmusverkefni „ESC4SDG: Flótta...
30/09/2026

Á starfsdegi Víkurskóla í dag kynntu Renate og Björk fyrir samstarfskennurum alþjóðlegt Erasmusverkefni „ESC4SDG: Flóttaleikir og leikjavæðing út frá heimsmarkmiðunum. Auk Íslands taka Ítalía, Litháen, Spán, Tyrkland og Grikkland þátt í verkefninu. Verkefnið snýst um hönnun og notkun námsleikja út frá heimsmarkmiðunum sautján

Í umsjónartímum finnst nemendur gaman að brjóta upp tímann með leikjum. Um daginn voru tveir hópar saman og þá stýrðu 10...
29/09/2026

Í umsjónartímum finnst nemendur gaman að brjóta upp tímann með leikjum. Um daginn voru tveir hópar saman og þá stýrðu 10. bekkingar Varúlfi.

28/09/2026

Við í Víkurskóla og Vígyn erum að vinna að því að verða Réttindaskóli UNICEF. Markmið þess er að grunnforsendur Barnasáttmálans séu útgangspunktur fyrir allar ákvarðanir í skóla- og félagsmiðstöðvastarfi og að þær endurspeglist í samskiptum barna, ungmenna, kennara, frístundaráðgjafa sem og annarra starfsmanna.
Hér kynnum við því Aðgerðaráætlun Víkurskóla og Vígyn 2026 um innleiðingu Barnasáttmálans.
Meginmarkmið og áherslur:
• Barnasáttmálinn í öllu starfi: Lögð er áhersla á að samþætta Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í daglega skóla- og félagsmiðstöðvastarfsemi, námskrár og samskipti.
• Aukið nemendalýðræði og þátttaka: Nemendum er veitt virkt rými til að láta raddir sínar heyrast og hafa áhrif á eigið umhverfi (t.d. með skólaþingi, réttindaráði, samráði um matseðil og mótun reglna).
• Fræðsla og vitundarsköpun: Öllum nemendum og starfsfólki er tryggð regluleg fræðsla um réttindi barna.
• Öryggi, jafnrétti og velferð: Áætlanir og aðgerðir miða að því að tryggja öruggt umhverfi, forvarnir gegn fordómum og að börn viti alltaf hvert þau geta leitað eftir stuðningi.
Aðgerðaráætlunin er lifandi langtímaverkefni sem tryggir að réttindi, virðing og velferð barna séu alltaf í forgangi í skóla- og frístundastarfinu.

Aðgerðaráætlun Víkurskóla og Vígynjar má finn á heimasíðu skólans.

Í morgun var vinnufundur hjá kennurum vegna nýs matskvarða.  Innleiðingarteymi nýs matskvarða skipa Þuríður, Kristín Hal...
28/09/2026

Í morgun var vinnufundur hjá kennurum vegna nýs matskvarða. Innleiðingarteymi nýs matskvarða skipa Þuríður, Kristín Halla, Vala Nönn, Fiona og Markús. Þau kynntu fyrir kennurum hvernig Víkurskóli mun vinna að breytingum eftir að hafa setið upplýsinga- og innleiðingafundi með MMS.
Í dag voru kennarar að meta vægi hvers flokks innan hverrar greinar og unnu þeir í hópum í tveimur umferðum.
Að vanda sökkti okkar fólk sér í verkefnið, en þetta er fyrsti fundurinn í okkar vegferð í breytingu matskvarðans.

Nemendur í 9. bekk létu reyna á þekkingu og færni sína í Uglunni Stríð og friður. Nemendur voru "læst inni" og þurftu að...
23/09/2026

Nemendur í 9. bekk létu reyna á þekkingu og færni sína í Uglunni Stríð og friður. Nemendur voru "læst inni" og þurftu að leysa nokkrar þrautir. Það reyndi á lesskilning þeirra á ensku, rökhugsun og samvinnu, og þekkingu þeirra á fyrri heimstyrjöldinni. Flóttaherbergi (escape room) er skemmtileg kennsluaðferð sem nemendur hafa gaman að.

Vel heppnaður morgun með Birgi frá Reiðhjólabændur í Víkurskóla í dag. Valverið er nú komið með átta hjól klár í ferðalö...
22/09/2026

Vel heppnaður morgun með Birgi frá Reiðhjólabændur í Víkurskóla í dag.
Valverið er nú komið með átta hjól klár í ferðalög um nærumhverfi okkar :)

List- og verkgreinar eru stór hluti af skólastarfi Víkurskóla, við trúum því að sköpunin skil sér inn í allar námsgreina...
22/09/2026

List- og verkgreinar eru stór hluti af skólastarfi Víkurskóla, við trúum því að sköpunin skil sér inn í allar námsgreinar.
Hér má sjá fyrstu uppskeru af Picasso-andlitum sem 9. Bekkur var að vinna í lotu C.

Nemendur í 8. bekk hafa nú lokið við fyrsta stóra Ugluverkefnið **Heillandi heimsálfur** 🌎🌍🌏Í verkefninu unnu nemendur s...
21/09/2026

Nemendur í 8. bekk hafa nú lokið við fyrsta stóra Ugluverkefnið **Heillandi heimsálfur** 🌎🌍🌏

Í verkefninu unnu nemendur saman í hópum við að rannsaka heimsálfu, leituðu að upplýsingum, skráðu heimildir og settu saman vefsíðu í Google Sites. Í síðustu viku kynntu hóparnir vefsíðurnar sínar fyrir bekkjarfélögunum.

Það var virkilega gaman að sjá hversu mikla vinnu, sköpun og samvinnu nemendur lögðu í verkefnið. Nemendur voru ekki bara að læra um heimsálfur heldur líka að æfa mikilvæga færni í samvinnu, heimildavinnu, miðlalæsi, upplýsingavinnslu og miðlun.

👏 Frábær vinna hjá 8. bekk – og vel gert að klára fyrsta stóra verkefnið ykkar í Uglu! 🦉💚

21/09/2026

Minnum á foreldrasamtölin í dag!

Í gær tóku nemendur og starfsfólk þátt í Ólympíuhlaupinu ÍSÍ  og létu veðrið svo sannarlega ekki á sig fá. Markmið hlaup...
18/09/2026

Í gær tóku nemendur og starfsfólk þátt í Ólympíuhlaupinu ÍSÍ og létu veðrið svo sannarlega ekki á sig fá. Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla um leið að góðri heilsu og vellíðan.

Þátttakendur gátu valið um að hlaupa 3, 6 eða 9 km leið um fallegt umhverfi hverfisins. Allir lögðu sig fram og stóðu sig með mikilli prýði og stemningin var frábær 👏

Takk fyrir góða þátttöku og skemmtilegan dag 🫶🏃‍➡️🏃🏽‍♀️🏃🏻‍♂️

Address

Hamravík 10
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Víkurskóli - nýsköpunarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category