27/08/2026
Sígrænt námskeið? Hvað táknar það?
Að undanförnu hef ég verið að undirbúa að setja á netið svokölluð sígræn námskeið sem eiga öll grunn í efninu mínu "Blómstraðu í einkalífi og starfi! Njóttu þess að vera þú!
Þetta eru allt námskeið sem eru ætluð konum í mismunandi aðstæðum, konum sem vilja ná að breyta því hvernig daglegt líf er orðið í dag, konur sem vilja leyfa sér að blómstra og njóta sín betur.
Við getum sagt að meginþráðurinn sé mikilvægi þess að við eflum sjálfstraust okkar, sjálfsímynd og sjálfsvirðingu, að við setjum okkur í fyrsta sætið og hugum að vellíðan, eldmóði, hugrekki og gleði okkar sjálfra áður en við getum með réttu unnið að aukinni vellíðan, velgengni og gleði fólksins okkar.
Þú þarft að geta blómstrað til að hjálpa fólkinu þínu til að blómstra.
Þessi námskeið sem ég kalla sígræn verða aðgengileg á netinu og eru mislöng, 4 - 6 - 8 - 10 vikur, hverju námskeiði er skipt niður í 4 - 6 - 8 eða 10 viur og í flestum tilvikum eru 10 verkefni fyrir hverja vikur. myndbönd fylgja þar sem ég fjalla um efni námskeiðanna og efni hvers þáttar eða viku.
Ég hlakka til að opna nýja vefsvæðið í næsta mánuði. Við munum bjóða upp á áskrift að vefsvæðinuþar sem hægt er að nýta ýmis stafræn verkfæri auk pistla og örnámskeiða.
Við styrkjum meðvitund okkar varðandi það sem okkur er mikilvægast - og hvað í daglegu lífi við getum svo hæglega verið án. Við þurfum ekki að bera bakpoka fulla af einhverju sem hindrar för okkar að markmiðum okkar. Við getum fundið fleiri leiðir en við sáum áður.
Á nýja vefsvæðinu býðst þér að nota ýmis stafræn verkfæri sem geta gert alla aðra námskeiðsvinnu enn dýpri og öflfugri.
Næstu daga ætla ég að ljúka við myndbandsupptökurnar til að við getum "dregið tjöldin frá" núna í næsta mánuði. Það verður virkilega spennandi.
Já þetta verður spennandi þegar við getum opnað nýja vefsvæðið því þá geta fleiri náð að fara í gegnum efnið mitt og valið sér hvaða þætti þær hafi mesta þörf fyrir þessa stundina.
Þessi sígrænu námskeið getur þú farið í gegnum á þínum hraða og þó svo að ég komi ekki beint nærri þá fylgi ég þér í raun í gegnum hvert og eitt námskeið.
Meira um það síðar.
Þangað til skaltu skoða hvaða möguleikar bjóðast þér á vefnum okkar namstaekni.is
Bestu kveðjur
Jóna Björg.