10/04/2021
Fyrsta skrefið til að takast á við fíkn sína er að átta sig á að maður hafi misst stjórnina á henni. Það getur verið mjög erfitt að stíga það skref og mín reynsla er sú að það er alltaf erfitt. Að sjá vandamálið í réttu ljósi og viðurkenna það fyrir sjálfum sér og hvað þá öðrum að staðan sé sú sem hún er. Það sem mér sýnist oft reynast einstaklingum erfiðast við að opna á þetta er óttinn við að mistakast við að takast á við stöðuna og gera þær breytingar sem þarf að gera til að ná tökum á fíkninni og lífi sínu, ef manni mistekst þá vita það fleiri en maður sjálfur. Mikilvægt er að átta sig á að mistök eru yfirleitt til góðs því lærdómurinn liggur í mistökunum, ef maður nær að nýta mistökin sín þá er maður enn nær markmiði sínu.
Orðið mistök er neikvætt, en einhvern vegin notar maður það alltaf og í raun væri fallegra að nota orðið lærdómur.
Um leið og vissan fyrir vanmættinum gagnvart fíkninni sinni, hver sem fíknin er s.s. áfengi, vímuefni, matur og fram eftir götunum, þá er fyrst hægt að gera breytingar og þær eru alltaf til góðs og bæta lífsgæði lygilega fljótt. Mun fljótar en maður trúir á þessum tímapunkti.
Fyrsta skrefið eftir þessa opinberun gagnvart sjálfum sér er að leita sér aðstoðar, þegar maður fer af stað í þetta verkefni þá eru óteljandi hendur á lofti sem geta og eru tilbúnar að hjálpa.
Næsta skref er að þiggja hjálpina sem í boði er, hvort sem maður velur að ræða við prest eða trúnaðarvin, fara í 12 spora samtök, eða hitta annan óháðan aðila s.s. ráðgjafa.
Það er alltaf einhver leið, brekkan getur verið brött í fyrstu en hún jafnast þegar fram í sækir.
Ef þessi skrif snerta við þér á einhvern hátt þá hvet ég þig til að horfa á stöðu þína á heiðarlegan hátt. Allt hefst þetta á einu skrefi, breytingar og betra líf eru handan við hornið.
Ef það er eitthvað sem þú telur að ég geti aðstoðað þig við, hvort sem það er að átta þig á hvort vandamál sé til staðar, skoða leiðir sem eru í boði og hvernig best sé að ná árangri þá tek ég við tímapöntunum í gegnum skilaboð hér á síðunni. Ég hef aðstöðu á Bíldshöfða og einnig er mögulegt að nýta zoom til samtala.