Félag háskólakvenna

Félag háskólakvenna

Share

Markmið félagsins er að hvetja og styrkja konur til mennta, að virða og hlúa að vináttu þei

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta var stofnað árið 1928 með það að markmiði að hvetja og styrkja konur til mennta, að virða og hlúa að vináttu þeirra og berjast fyrir sameiginlegum hagsmunamálum sem snerta bætta stöðu kvenna og stúlkna. Félagið hefur sannarlega haft áhrif, það hefur virkað sem öflugt tengslanet fyrir konur, það hefur styrkt konur fjárhagslega og staðið fyrir fræðslu og útgáfu og þannig haft áhrif á aðstöðu og skilyrði kvenna til menntunar í samfélaginu.

04/06/2026

Aðalfundur Félags háskólakvenna var haldinn 21. maí 2026.

Á liðnu starfsári stóð félagið fyrir fjölbreyttum fræðslu-, menningar- og tengslaviðburðum sem nutu góðrar þátttöku félagskvenna.

Á fundinum var núverandi stjórn endurkjörin fyrir starfsárið 2026–2027:

Formaður: Guðmunda Smáradóttir
Varaformaður: Vala Georgsdóttir
Gjaldkeri: Vilborg Einarsdóttir
Ritari: Ásgerður Halldórsdóttir
Meðstjórnandi: Guðrún Gunnarsdóttir

Varastjórn:
Jónína Ingvadóttir og Linda Vilhjálmsdóttir

Við þökkum félagskonum fyrir stuðning og þátttöku á liðnu starfsári og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi starfsári.

29/05/2026

Félag háskólakvenna veitti rannsóknarstyrk að fjárhæð 500.000 krónur í kjölfar aðalfundar félagsins. Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og doktorsnemi í krabbameinshjúkrun við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, hlaut styrkinn að þessu sinni.

Doktorsverkefni Önnu Kristínar beinist að því að kanna samspil heilsutengdra lífsgæða, einkenna og heilsulæsis meðal einstaklinga sem greinst hafa með blóðkrabbamein á Íslandi. Rannsóknin er hluti af rannsóknarverkefninu „Lífsgæði, langvinn og síðbúin áhrif krabbameins og krabbameinsmeðferðar“, sem er undir stjórn dr. Sigríðar Gunnarsdóttur og unnið í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Háskóla Íslands og Landspítalann.

Félag háskólakvenna óskar Önnu Kristínu innilega til hamingju með styrkinn og óskar henni velfarnaðar í rannsóknarstörfum sínum.
Anna Kristín B. Jóhannesdóttir

Photos from Félag háskólakvenna's post 01/05/2026

Dr. Ásta Dís Óladóttir og Katrín Jakobsdóttir kynntu í gær Rannsóknarsetur um jafnrétti fyrir Félagi háskólakvenna. Tilgangur setursins er að efla þekkingu og stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku atvinnulífi, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.

Þrjár kynslóðir kvenna mættu á fundinn og voru umræður kröftugar og málefnalegar. Það er ljóst að enn er verk að vinna í jafnréttisbaráttunni og verður áhugavert að fylgjast áfram með öflugu starfi Rannsóknarsetursins með þeim Ástu Dís og Katrínu í broddi fylkingar.

Takk fyrir frábæran fund Ásta Dís og Katrín Jakobsdóttir

27/04/2026

📢 Rannsóknarstyrkur til umsóknar!

Félag háskólakvenna auglýsir eftir umsóknum um rannsóknarstyrk að upphæð 500.000 kr. 💡

Styrkurinn er ætlaður háskólakonu í framhaldsnámi (MSc eða PhD).

Umsókn þarf að fylgja:
• Grunnupplýsingar um umsækjanda
• Stutta lýsingu á rannsókn (hámark 500 orð)
• Vísindalegt gildi og framlag rannsóknarinnar

Markmið Félags háskólakvenna er að styðja og hvetja konur til aukinnar menntunar og þátttöku í vísindum 🌍

📧 Umsóknir sendist á: [email protected]

📅 Umsóknarfrestur: 20. maí 2026.

Forsíða - Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi 16/04/2026

Minnum á: Dr. Ásta Dís Óladóttir, deildarforseti Viðskiptadeildar Háskóla Íslands og Háskólakona ársins, býður háskólakonum í heimsókn í Viðskiptadeild HÍ í Gimli, 2. hæð, þann 30. apríl kl. 15:00.

Ásta Dís og Katrín Jakobsdóttir kynna Rannsóknarsetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi.

Tilgangur setursins er að efla þekkingu og stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku atvinnulífi, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. https://genderequality.hi.is/

📍 Staður: Viðskiptadeild Háskóla Íslands, Gimli 2. hæð, MBA kaffistofa
🕒 Tími: 15:00–16:00
☕ Léttar kaffiveitingar í boði
✉️ Skráning: [email protected]

Fjölmennum og tökum með okkur vinkonur!

Forsíða - Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi Við töpum öll á einsleitni Jafnrétti er ákvörðun. Ísland er í fararbroddi jafnréttismála og hefur árið 2023 náð að loka rúmlega 91% af því kynjabili sem hefur ríkt í samfélaginu.

19/03/2026

Félag háskólakvenna hefur valið Dr. Ástu Dís Óladóttur, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, sem háskólakonu ársins.

18/03/2026

Dr. Ásta Dís Óladóttir valin Háskólakona ársins 2025.

Félag háskólakvenna hefur valið Dr. Ástu Dís Óladóttur, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, Háskólakonu ársins 2025. Ákvörðunin var samhljóða í valnefnd eftir yfirferð á sterkum og fjölbreyttum tilnefningum. Valnefnd skipuðu Ásgerður Halldórsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Vala Georgsdóttir

Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Ásta Dís hafi með störfum sínum sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika og haft veruleg áhrif á tengsl fræða og atvinnulífs á Íslandi. Hún hafi markvisst unnið að uppbyggingu náms og rannsókna, auk þess að skapa ný tækifæri fyrir nemendur og efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir.

Undanfarin fimm ár hefur Ásta Dís stýrt uppbyggingu MBA-náms við Háskóla Íslands og haft frumkvæði að starfsþjálfun innan viðskiptafræðideildar sem nú nær til yfir 70 samstarfsaðila. Á annað hundrað nemenda hefur nýtt sér úrræðið á síðustu árum og margir þeirra fengið starf á sínu sviði í kjölfarið.

Ásta Dís er einnig öflugur fræðimaður og rannsakandi. Hún hefur ritað fjölda vísindagreina og bóka um stjórnun, stefnumótun og þróun sjávarútvegs og fiskeldis. Þá leiðir hún rannsóknir á jöfnum tækifærum kynja til efnahagslegrar þátttöku og ákvarðanatöku í atvinnulífinu.

Árið 2025 stofnaði Ásta Dís Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi sem hefur það markmið að efla þekkingu og stuðla að auknu jafnrétti á vinnumarkaði.

Að lokum kemur fram í umsögn að valnefndar að með starfi sínu hafi Ásta Dís haft áhrif á stefnumótun bæði innan fræðaheims og atvinnulífs og verið öflug fyrirmynd fyrir háskólakonur.

Innilegar hamingjuóskir Ásta Dís.

04/03/2026

Minnum á: Stjórn Félags háskólakvenna býður til samkomu í tilefni af afhendingu viðurkenningarinnar, Háskólakona ársins 2025.

Afhendingin fer fram á Hótel Holti, Þingholti, miðvikudaginn 18. mars kl. 18:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og ljúfa tóna í kjölfar afhendingar.

Við val á Háskólakonu ársins er horft til þess að viðurkenningarhafi hafi lokið háskólanámi, að hún sé brautryðjandi á sínu fagsviði og góð fyrirmynd fyrir aðrar háskólakonur.

Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á fjölbreyttum starfsvettvangi háskólakvenna, beina kastljósinu að störfum þeirra og rannsóknum og undirstrika mikilvægt framlag þeirra til samfélagsins. Með viðurkenningunni vill félagið jafnframt fagna áræðni, framgangi og sérstökum árangri háskólakvenna.

Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á
📧[email protected]

Photos from Félag háskólakvenna's post 06/02/2026

Kæru háskólakonur,

Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 14:00 fáum við tækifæri til að heimsækja Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Gestgjafi okkar verður Guðrún Nordal, forstöðumaður stofnunarinnar og prófessor við Háskóla Íslands. Hún tekur á móti hópnum við inngang stofnunarinnar í Eddu (við hlið Þjóðarbókhlöðunnar) kynnir starfsemina og í kjölfarið skoðum við húsið undir leiðsögn Guðrúnar.

🔎 Um stofnunina
Hlutverk Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er að stunda rannsóknir í íslenskum fræðum og skyldum greinum, einkum á sviði íslenskrar tungu og bókmennta, miðla þekkingu og varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin.

📩 Skráning: [email protected]

Við hvetjum félagskonur eindregið til að fjölmenna!

Með kærri kveðju 🌿
Stjórnin

Photos from Félag háskólakvenna's post 20/11/2025

Vel heppnaður jólafundur Félags háskólakvenna á Hótel Holti í kvöld! 🎄✨

Gestir kvöldsins voru rithöfundarnir Þórunn Valdimarsdóttir og Soffía Bjarnadóttir.
Þórunn las úr nýju bókinni sinni Stúlka með fálka og Soffía las úr hinu femíníska skáldverki Áður en ég brjálast – Játningar á miðjunni.

Sérstakar þakkir til gestanna – og til Hótel Holts fyrir ljúffengar veitingar að hætti hússins.

Kærar þakkir fyrir yndislega kvöldstund❤️

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Reykjavík