Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 26. mars, hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá klukkan 7-13. FÓLK ER HVATT TIL AÐ HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU.
Veruleg röskun verður á skólastarfi. Í grunn- og leikskólum verður aðeins lágmarksopnun með fáu starfsfólki.
Þau sem nauðsynlega þurfa að fara með börn sín í grunnskóla og leikskóla eru beðin um að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.
Hefðbundið leikskóla- og frístundastarf hefst eftir að viðvörun fellur úr gildi. Fólk er hvatt til að fylgjast með fjölmiðlum.
Með kveðju,
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
IN ENGLISH
Storm warning tomorrow - schools only open for emergencies
Please note that an Orange Weather Warning has been issued for the Greater Reykjavik Area, effective from 07:00 until 13:00 on Thursday, 26 March. PEOPLE ARE URGED TO STAY AT HOME UNTIL THE STORM PASSES OVER TOMORROW AND NOT TO BE OUTSIDE UNLESS ABSOLUTELY NECESSARY.
Tomorrow, Thursday, there will be disruptions to all school operations. Kindergartens and primary schools will remain open but with limited staffing. If parents need to bring their children to school, we request that they notify school administrators via email. We encourage parents to monitor media for the latest information.
With regards,
The Department of Education and Youth
Ártúnsskóli
Ártúnsskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili. Ártúnsskóli er samrekinn grunnskóli, leikskóli og frístundaheimili.
Staðsettur í Ártúnsholti sem tilheyrir Árbæjarhverfi í Reykjavík.
25/03/2026
18/03/2026
Foreldrafélagið er með páskabingó seinnipartin
Jólahúfudagur á morgun
15/08/2025
Skólasetning grunnskóladeildar verður föstudaginn 22. ágúst kl. 10:00 á sal skólans. Nemendur ásamt foreldrum/forráðamönnum koma saman á sal og nemendur fylgja svo umsjónarkennurum inn í bekkjarstofur. Á meðan er fræðsla fyrir foreldra/forráðamenn á sal frá Heimili og skóla um skjánotkun barna. Áætlað er að fræðslunni ljúki kl. 11.
Foreldraviðtöl (nemenda og foreldra) verða í 1. bekk föstudaginn 22. ágúst. Boðun viðtalanna fer fram mánudag og þriðjudag 18. og 19. ágúst.
Kennsla hefst mánudaginn 25. ágúst skv. stundaskrá.
10/06/2025
Á föstudaginn voru nemendur í 7. bekk útskrifaðir frá skólanum og halda á nýjar slóðir á haustdögum. Foreldrar og starfsmenn skólans fögnuðu með börnunum og veitingar voru í boði að athöfn lokinni. Starfsfólk skólans þakkar fyrir árin sjö og óskar útskriftarnemum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
15/05/2025
Vorverkadagur foreldrafélagsins í dag :-)
11/04/2025
Menningarvaka 7.GB heppnaðist einkar vel í gærkvöldi. Nemendur og kennarar höfðu unnið hörðum höndum síðustu daga að því að setja upp metnaðarfulla sýningu. Boðið var upp á upplestur, stuttmynd, hljóðfæraleik og aðalatriðið var svo leikritið um Ronju Ræningjadóttur. Menningarvakan var vel sótt og það söfnuðust 150.000.- krónur sem rann til Ljónshjarta serm eru samtök til stuðnings fólki sem misst hefur maka og barna sem misst hafa foreldri.
08/04/2025
Árleg menningarvaka 7. bekkjar verður fimmtudaginn 10. apríl næst komandi kl. 19:00. Miðaverð er kr. 1500.- og eingöngu tekið við peningum (enginn posi á staðnum), veitingar innifaldar í miðaverði. Börn yngri en 12 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum. Ágóði miðasölu rennur til góðgerðarmála ár hvert og að þessu sinni völdu nemendur að styrkja Ljónshjarta sem eru samtök til stuðnings fólki sem misst hefur maka og barna sem misst hafa foreldri. Leikrit menningarvökunnar að þessu sinni er Ronja ræningjadóttir en einnig eru fleiri atriði á dagskrá.
04/04/2025
Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í Árbæ, Norðlingaholti, Grafarholti og Úlfarsárdal fór fram í Árbæjarkirkju í gær. Fjórtán nemendur úr sjö grunnskólum voru fulltrúar sinna skóla. Aþena Rut og Þórður Nói voru fulltrúar Ártúnsskóla og stóðu sig afar vel og Þórður Nói lenti í þriðja sæti.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Telephone
Website
Address
Árkvörn 4/6
Reykjavík
110