25/09/2026
Haustmisseri er svo sannarlega komið á flug hjá okkur í Endurmenntun HÍ, því að í næstu viku hefjast hvorki meira né minna en 9 námskeið!
Guðrún Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir ríða á vaðið mánudagsmorguninn 28. september með „Mannauðsstjórnun fyrir nýja stjórnendur“, staðnámskeið þar sem fjallað er um helstu þætti mannauðsstjórnunar frá ráðningu til starfsloka. (Sjá hér: https://t.ly/xHwSj)
Seinna sama dag verður námskeiðið „Fagleg forysta í umsjónarkennslu“, vandað staðnámskeið þeirra Hrafnhildar Karlsdóttur og Ólínu Þorleifsdóttur fyrir umsjónarkennara. (Sjá hér: https://t.ly/ccxBL)
Því næst er geysivinsælt staðnámskeið Signýjar Gyðu Pétursdóttur, „Verkfærakista jákvæðrar sálfræði“, þar sem þátttakendur fá að kynnast ýmsum aðferðum jákvæðrar sálfræði. Uppselt er á námskeiðið, en hægt er að skrá sig á biðlista. (Sjá hér: https://t.ly/8c31E)
Síðasta námskeið mánudagsins er svo „Spænska I“, þar sem Svanhildur Guðmundsdóttir kennir grunnatriði í spænsku. Einnig er uppselt á þetta námskeið, en hægt er að skrá sig á biðlista. (Sjá hér: https://t.ly/NxPxM)
Þriðjudagurinn 29. september hefst á hagnýtu námskeiði Unnar Eddu Sveinsdóttur, lögmanns, „Gervigreind — regluverk og stefnumótun“ um lagalega hlið gervigreindar og innleiðingu hennar. Aðeins örfá sæti laus! (Sjá hér: https://t.ly/xiDh9)
Seinna þann sama dag hefst „Íslenskt nútímasamfélag“. Hér gefur Guðmundur Björnsson, ferðamálafræðingur og leiðsögumaður, þátttakendum gott yfirlit yfir mótun og þróun íslensks nútímasamfélags. (Sjá hér: http://t.ly/dTYoC)
Síðasta námskeið dagsins er svo „Ítalska I“ með Maurizio Tani og enn eru örfá sæti laus! (Sjá hér: http://t.ly/44wzP)
Fimmtudaginn 1. október hefjast svo tvö námskeið. Það fyrra er „Fjöláfalla- og tengslavandi hjá börnum“ með Jóhönnu Jóhannesdóttur, hagnýtt og mikilvægt námskeið fyrir fagfólk sem starfar m.a. við leik- og grunnskóla, frístundaheimili og heilsugæslu. Aðeins örfá sæti laus! (Sjá hér: http://t.ly/WIWIv)
Síðast en ekki síst er svo fjörugt fjarnámskeið Ársæls Arnarssonar, „Listin að vera leiðinlegt foreldri“! Örfá sæti eru laus, svo skráðu þig sem fyrst! (Sjá hér: http://t.ly/MADTg)
Komdu huganum á hreyfingu með Endurmenntun HÍ!