21/04/2026
Hinar árlegu Menntabúðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Menntavísindasviðs HÍ voru haldnar í gær. Þar miðlar starfsfólk í skóla- og frístundastarfi verkefnum og hugmyndum um fjölbreytt starf. Vinagarður var að þessu sinni með bás um tónlistarstarfið sem nýlega fékk hvatningarverðlaun. Á básnum var kennarinn okkar Gerður Bolladóttir gestgjafi ásamt Hildi aðstoðarleikskólastjóra. Á básnum var hægt að sjá myndband um starfið, bækling og nokkur hljóðfæri sem gestir gátu prófað. Margir komu við og kynntu sér tónlistarstarfið og fékk skólinn mikið hrós fyrir faglegt starf. Hér eru myndir og bæklingurinn sem við gáfum út.