Félagsráðgjafardeild HÍ

Félagsráðgjafardeild HÍ

Share

Félagsráðgjafar vinna með einstaklingum, hópum, fjölskyldum og samfélögum sem eru að takast á við vanda eða vilja breyta stöðu sinni.

19/06/2026

Félagsráðgjafafélag Íslands býður árlega nemum sem útskrifast úr MA námi til starfsréttinda í útskriftarhóf þar sem verðandi félagsráðgjöfum er boðið að skrifa undir heit félagsráðgjafa, hér má sjá hópmynd af kandidötum með deildarforseta og formannni FÍ, Steinunni Bergmann.

Verðandi félagsráðgjafar, útskriftarnemendur félagsráðgjafadeildar HÍ,mættu glaðbeittir í boð Félagsráðgjafafélagsins í Borgartún 27, fyrr í dag ásamt kennurum deildarinnar. Þessi árgangur er sá allra stærsti hingað til, vel á sjötta tuginn. Félagið óskar þeim öllum hjartanlega til hamingju með útskriftina og að bætast í hóp nærri 700 félagsráðgjafa, félaga í félagsráðgjafafélaginu.

17/06/2026

Þjóðhátíðardagurinn minnir okkur á mikilvægi samfélags þar sem öll hafa tækifæri til að taka þátt, tilheyra og njóta sín.

Í félagsráðgjöf vinnum við á hverjum degi að því að styrkja einstaklinga, fjölskyldur og samfélög svo enginn verði skilinn útundan.

Gleðilegan þjóðhátíðardag frá Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

04/06/2026

Umsóknarfrestur til að sækja um nám við Háskóla Íslands rennur út á morgun!
Ekki missa af tækifærinu til að taka næsta skref í námi.
Sæktu um á hi.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní.

14/05/2026

Frá starfsþjálfun yfir í starf

Þórdís, nemandi í félagsráðgjöf, fór í starfsþjálfun hjá Öryrkjabandalaginu og er nú komin með áframhaldandi starf hjá þeim eftir útskrift.

Í starfsþjálfun fá nemendur tækifæri til að tengja fræðin við raunveruleg verkefni, kynnast fjölbreyttum starfsvettvangi félagsráðgjafar og byggja upp dýrmæta reynslu.

Það er alltaf ánægjulegt að sjá að starfsþjálfun opna dyr að næsta skrefi og við óskum Þórdísi innilega til hamingju með áframhaldið og góðs gengis í starfi!

11/05/2026

Frá starfsþjálfun yfir í starf

Auður Gunnarsdóttir, nemandi í félagsráðgjöf, fór í starfsþjálfun hjá Barnavernd á Akureyri og er nú komin með áframhaldandi starf þar eftir útskrift.
Starfsþjálfunin er mikilvægur hluti af náminu þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja fræðin við raunveruleg verkefni, kynnast vettvanginum og stíga sín fyrstu skref sem fagfólk.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá nemendur okkar fá tækifæri til að halda áfram á þeim stöðum þar sem þau hafa sinnt starfsþjálfun sinni og láta gott af sér leiða í samfélaginu.

Við óskum Auði innilega til hamingju með áframhaldið og góðs gengis í starfi!

Photos from Félagsráðgjafardeild HÍ's post 06/05/2026

Síðasti tíminn fyrir útskrift!

Nemendur í félagsráðgjöf sem útskrifast í júní komu saman í sinn síðasta tíma á dögunum, nýkomin úr starfsþjálfun og tilbúin í næsta kafla.

Starfsþjálfunin er mikilvægur hluti námsins þar sem nemendur fá að tengja fræðin við raunveruleg verkefni, kynnast fjölbreyttum vettvangi félagsráðgjafar og stíga sín fyrstu skref sem fagfólk.

Það er sérstaklega ánægjulegt að margir nemendur hafa nú þegar fengið vinnu á þeim stöðum þar sem þau voru í starfsþjálfun. Það segir mikið um hæfni þeirra, fagmennsku og þörfina fyrir vel menntaða félagsráðgjafa í samfélaginu.
Við óskum verðandi félagsráðgjöfum innilega til hamingju með áfangann og hlökkum til að fylgjast með þeim láta gott af sér leiða.

Til hamingju, kæru útskriftarnemar!

Photos from Félagsráðgjafardeild HÍ's post 05/05/2026

Í gær 4. maí fór fram málþing meistaranemenda í félagsráðgjöf til starfsréttinda þegar um 50 nemendur kynntu lokaverkefni sín í fjórum málstofum. Dagurinn er einskonar uppskeruhátíð nemenda sem kveðja nú deildina eftir fimm ára nám og halda á ný mið sem starfandi félagsráðgjafar.

Um leið og við óskum þeim alls hins besta í næstu verkefnum viljum við þakka fyrir samfylgdina á liðnum árum. Til hamingju öll með brautskráninguna sem fram undan er í næsta mánuði!

Photos from Félagsráðgjafardeild HÍ's post 30/04/2026

María Björk Ingvadóttir, félagsráðgjafi, framkvæmdastjóri Félagsráðgjafafélags Íslands og fjölmiðlakona, kom í heimsókn til nemenda í félagsráðgjöf sem útskrifast í júní.

María Björk fór yfir helstu málefni og áskoranir félagsráðgjafa í fjölmiðlum og samfélagsumræðu, og deildi með nemendum dýrmætri innsýn úr starfi og reynslu sinni.

Frábært tækifæri fyrir verðandi félagsráðgjafa til að tengja námið við raunveruleg verkefni, ábyrgð og rödd fagstéttarinnar í samfélaginu.

Við þökkum Maríu Björk kærlega fyrir komuna og óskum nemendum félagsráðgjafar góðs gengis á lokametrunum í náminu.

Nordiska beredskapsplaner inom social- och äldreområdet 20/04/2026

Hvernig tryggjum við að enginn verði útundan þegar á reynir?
Norrænt verkefni á vegum Nordens välfärdscenter kortleggur hvernig Norðurlöndin taka mið af þörfum viðkvæmra hópa í viðbúnaðaráætlunum á félags- og öldrunarsviði. Fyrir Ísland situr Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands, í sérfræðihópi verkefnisins. Mikilvæg áminning um að viðbúnaður snýst ekki aðeins um kerfi heldur líka um fólk.
Nánar má lesa um verkefnið á vef Nordens välfärdscenter

Nordiska beredskapsplaner inom social- och äldreområdet De nordiska samhällena behöver ha en god beredskap, också då det gäller sårbara grupper. Ett ettårigt projekt kartlägger de nordiska ländernas insatser för att inkludera sårbara eller utsatta medborgares behov då beredskap planeras.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sæmundargötu 10
Reykjavík
102