HÖFÐI Friðarsetur er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og er vettvangur fyrir þverfaglegt og alþjóðlegt samstarf með áherslu á hlutverk borga, smáríkja og almennra borgara í að stuðla að friði, friðarmenningu og friðarfræðslu. Í ljósi sögunnar þótti við hæfi að setrið fengi nafnið HÖFÐI og hefði því skírskotun til þess tíma er Ísland gegndi veigamiklu hlutverki í hugum margra sem hlutlaust ríki í deilum tveggja stórvelda. Hlutverk HÖFÐA Friðarseturs er að styrkja Reykjavík sem borg friðar og vera til ráðgjafar um hvernig borgin geti unnið að friðarmálum hér heima og að heiman. Stór þáttur í starfsemi setursins felst einnig í því að efla rannsóknir á friðar- og öryggismálum, og byggja þannig upp fræðigrunn sem nýtist langt út fyrir fræðasamfélagið, en eitt af markmiðum setursins er að koma á fót námsbraut í átaka- og friðarfræðum við Háskóla Íslands. HÖFÐI Friðarsetur starfar innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands en stofnunin er þverfræðileg stofnun á sviði alþjóðamála sem tilheyrir Félagsvísindasviði og Hugvísindasviði við Háskóla Íslands. Önnur setur sem heyra undir stofnunina eru Rannsóknasetur um norðurslóðir og Rannsóknasetur um smáríki. Stofnunin stendur fyrir fjölda málþinga og fyrirlestra innanlands sem utan, gefur út fræðirit og kennslubækur, tekur þátt í rannsóknastörfum á sviði alþjóðamála og rekur sumarskóla undir hatti Rannsóknaseturs um smáríki ár hvert. Eitt af þeim verkefnum sem stofnunin vinnur nú að er úttekt á þjónustu við innflytjendur og greining á aðlögun þeirra að íslensku samfélagi sem unnin er í samstarfi við innanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti. Áætluð útgáfa skýrslunnar er í desember 2016. nefna úttekt og aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu í borginni sem nýtt verður til að stuðla að vitundarvakningu á málefninu. Eitt af helstu verkefnum setursins verður að koma á fót sumarnámskeiði fyrir börn af ólíkum uppruna sem haldið verður í fyrsta sinn sumarið 2017. Námskeiðið er unnið í samstarfi við fagaðila. Með því að efla færni barna í að greina og leysa úr átökum á friðsamlegan hátt er hægt að vinna markvisst að því langtímamarkmiði að byggja upp friðarmenningu, sem síðar mun skila sér út í samfélagið. Aukinn skilningur á alþjóðamálum og átökum í heiminum eykur meðvitund um mikilvægi friðsamlegra samskipta og hvernig leysa megi úr deilumálum án þess að komi til átaka. Með stofnun HÖFÐA Friðarseturs gefst Alþjóðamálastofnun færi á að víkka út rannsóknarsvið stofnunarinnar og mun í framhaldinu beina sjónum í auknum mæli að þeim áskorunum sem nútímasamfélög standa frammi fyrir, eins og loftslagsbreytingum, málefnum flóttamanna, auknum fjölbreytileika og aukinni þjóðernishyggju og lýðskrumi í samfélagsumræðu. HÖFÐI Friðarsetur kemur til með að standa fyrir opnum fundum innan Háskóla Íslands þar sem umræða um hlutverk borga og almennra borgara í að stuðla að friði og friðarmenningu verður í brennidepli. Einnig mun Alþjóðamálastofnun árlega standa fyrir ráðstefnu í samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila um þau mál sem eru efst á baugi innan rannsóknasviða stofnunarinnar hverju sinni.
*********************************************
HÖFÐI Reykjavík Peace Centre, a collaborative effort of the City of Reykjavik and the University of Iceland, is a forum for international multidisciplinary cooperation, with an emphasis on the role of small states, cities and citizens in promoting peace. HÖFÐI is the name of the house where Reagan and Gorbachev met in Reykjavik in 1986 and refers to the role Iceland played as a small neutral state in the conflict between two superpowers. The objective of HÖFÐI Reykjavik Peace Centre at the University of Iceland is to support Reykjavik in its mission of becoming a city of peace, and to advise on how Reykjavik can promote peace at home and abroad. The Peace Centre will promote non-violent communications, the eradication of interpersonal violence and peaceful relations between states and organizations. Additionally, it will promote peace through research and education, including the development of a graduate programme in peace and conflict studies at the University of Iceland. HÖFÐI Friðarsetur is run under the auspices of the Institute of International Affairs (IIA) at the University of Iceland, a multidisciplinary organisation, housed within the University of Iceland’s School of Social Sciences but with close links to the School of Humanities. The Institute of International Affairs runs two research centres, the Centre for Small State Studies (CSSS) and the Centre for Arctic Policy Studies (CAPS). The role of the Institute of International Affairs is to provide education, promote research, and carry out service projects in the field of international relations. One of the projects currently being carried out by the Institute, on behalf of the Ministries of Interior and Welfare, is a survey on possible improvement to the service provided for immigrants and refugees and an analysis of their integration into Icelandic society. HÖFÐI Reykjavík Peace Centre will carry out diverse projects during the first years of its operation, such as an analysis and action plan against hate speech and hate crimes, to be utilized in raising awareness on the issue. Among other important projects of HÖFÐI Reykjavík Peace Centre is the development of a four‐day summer school for children of diverse origin, where they will learn from each other the importance of peaceful communication and constructive dialogue, in an interactive environment. The summer school will be organised in collaboration with experts in the field. Education has a crucial role in contributing to building a culture of peace. A culture of peace and non-violence goes to the substance of fundamental human rights including social justice, democracy, respect and dignity for all, gender equality, respect for cultural identity and diversity, the rights of minorities and the preservation of the natural environment. The creation of HÖFÐI Reykjvík Peace Centre provides the Institute of International Affairs with the opportunity of expanding its research areas that will lead to a greater emphasis on the challenges now facing modern societies, such as climate change, immigration and refugee issues, increased diversity, as well as rising nationalism and populism in the mainstream discourse. HÖFÐI Reykjavík Peace Centre will also organise open seminars at the University of Iceland, focused on the role of cities and citizens in promoting peace. To promote the different research fields within the Institute, an annual international conference will be organised by HÖFÐI Reykjavík Peace centre, in collaboration with local and international partners, bringing together different actors in a dialogue on current international affairs and issues related to peace.