Menntavísindasvið HÍ

Menntavísindasvið HÍ Umsóknarfrestur um framhaldsnám er til 15. apríl og grunnnám og viðbótardiplómur til 5. júní.

Menntavísindasvið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Til hamingju með áfangann, meistaranemar!Þessi hópur kynnti meistaraverkefni sín á málþingi Menntavísindasviðs 22. septe...
24/09/2026

Til hamingju með áfangann, meistaranemar!

Þessi hópur kynnti meistaraverkefni sín á málþingi Menntavísindasviðs 22. september. Að baki hverju verkefni liggur mikil vinna og á málþinginu gafst nemendum tækifæri til að kynna afraksturinn fyrir öðrum.

Viðfangsefnin snerta daglegt líf barna, foreldra og starfsfólks í menntastofnunum. Meðal þeirra voru málþroski og þátttaka barna í leikskólum, skólaforðun, foreldrafræðsla og forysta í menntastofnunum.

Við óskum nemendunum innilega til hamingju og þökkum þeim fyrir að deila verkefnum sínum og þekkingu!

Vatnið kom heim með bikarinn!Vatnið, félag íþrótta- og heilsufræðinema, sigraði Anima, félag grunnnema í sálfræði, í úrs...
14/09/2026

Vatnið kom heim með bikarinn!

Vatnið, félag íþrótta- og heilsufræðinema, sigraði Anima, félag grunnnema í sálfræði, í úrslitaleik fótboltamóts Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Jafnt var að loknum venjulegum leiktíma og réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni.

Með flutningi Menntavísindasviðs í Sögu hefur samfélagið okkar færst nær miðju Háskólalífsins. Það er því sérstaklega gaman að sjá nemendurna okkar setja svip sinn á félagslífið á háskólasvæðinu og taka bikarinn með heim í Sögu.

Við óskum Vatninu innilega til hamingju með sigurinn!

Það var mikill áhugi á kynningarfundi um nýjar niðurstöður PISA sem haldinn var hjá okkur í Sögu á þriðjudaginn – bæði m...
10/09/2026

Það var mikill áhugi á kynningarfundi um nýjar niðurstöður PISA sem haldinn var hjá okkur í Sögu á þriðjudaginn – bæði meðal þeirra sem mættu á staðinn og þeirra fjölmörgu sem fylgdust með í streymi.

Fræðafólk okkar á Menntavísindasviði, ásamt fræðafólki frá Háskólanum á Akureyri, rýndi í niðurstöðurnar og setti þær í samhengi við íslenskt skóla- og menntastarf.

Við þökkum öllum sem fylgdust með og tóku þátt.

🎥 Upptaka frá fundinum er nú aðgengileg á vef HÍ – hlekkur í athugasemd.

Níu nýir lektorar hafa verið ráðnir til starfa við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þau koma úr fjölbreyttum fræðigrei...
28/08/2026

Níu nýir lektorar hafa verið ráðnir til starfa við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þau koma úr fjölbreyttum fræðigreinum og búa yfir víðtækri reynslu af kennslu, rannsóknum og faglegu starfi.

Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa!
Nánar í athugasemdum 👇

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að foreldrafærniúrræðið SPARE geti reynst mikilvægur stuðningur fyrir fjöls...
25/08/2026

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að foreldrafærniúrræðið SPARE geti reynst mikilvægur stuðningur fyrir fjölskyldur sem hafa flúið stríð og neyð.

Margrét Sigmarsdóttir og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessorar við Menntavísindasvið HÍ, hafa metið fýsileika þess að aðlaga úrræðið að þörfum úkraínskra foreldra á Íslandi. Niðurstöðurnar eru jákvæðar.

🔗 Nánar í athugasemd.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að foreldrafærniúrræðið SPARE geti reynst mikilvægur stuðningur fyrir fjölskyldur sem hafa flúið stríð og neyð. Rannsakendur við Háskóla Íslands, þær Margrét Sigmarsdóttir og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessorar við Menntavísindasvið, hafa nýlega metið fýsileika þess að aðlaga úrræðið að þörfum úkraínskra foreldra á Íslandi og eru niðurstöðurnar jákvæðar.

Nánar í athugasemdum.

VIÐ KYNNUM NÝJAN DOKTORÓlafur Örn Bragason varði doktorsritgerð sína í Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Ís...
24/08/2026

VIÐ KYNNUM NÝJAN DOKTOR

Ólafur Örn Bragason varði doktorsritgerð sína í Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands 14. ágúst kl. 13.00 í Hátíðarsal.

Heiti doktorsritgerðar:

Fagþekking á krossgötum: Umbætur í lögreglumenntun og endurmótun þekkingar íslenskrar lögreglu

Til hamingju með áfangann, Ólafur!

📷 Gunnar Sverrisson

Tekið var á móti nýnemum á Menntavísindasviði dagana 17.-18. ágúst í Sögu en í ár var móttakan með nýju sniði og hluti a...
20/08/2026

Tekið var á móti nýnemum á Menntavísindasviði dagana 17.-18. ágúst í Sögu en í ár var móttakan með nýju sniði og hluti af vinnu Menntavísindasviðs við fyrsta árs upplifun nemenda.
Það var líf og góð stemning í Sögu þessa daga og ánægjulegt að taka á móti nýjum nemendum.
Við bjóðum nýnema hjartanlega velkomna!
📸 Kristinn Ingvarsson

Address

Saga/Hagatorg 1
Reykjavík
107

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menntavísindasvið HÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Menntavísindasvið HÍ:

Shortcuts

Share