16/12/2023
Gömul en góð áminning um hægri rétt
Nokkrir punktar sem ég vil bæta við þetta og það sem ég kenni mínum nemum
- Hægri réttur gildir þegar engin skilti, ljós eða lögreglu er að sjá sem stjóra umferð
- Algengast er að finna hægri rétt í íbúðarhverfi með 30km hámarkshraða, en þó ekki alltaf. Þá er gott að leita vel að því hver á forgang þegar ekið er inná 30km svæði
- Bílar inná bílastæði gefa hægri rétt til annara inná bílastæði
- Bílastæði bíða alltaf eftir umferð á götunni
- Stundum er að finna hægri rétt í iðnaðarhverfum, ss Dugguvog, Desjarmýri og Gylfaflöt
- Svona merkingar eins og sjást á myndinni er einungis að finna á þrem stöðum í Reykjavík. Það er í Langarima, Eirhöfða og á Selásbraut/Brekknaás og mættu vera algengari að mínu mati
Gleðileg jól 🎄🎅
Hægri réttur.
Hér er sérstakt merki.
Það er blanda af viðvörunarmerki A99.11 önnur hætta og J. undirmerki.
Í raun ætti þetta merki að vera óþarft enda er hægriréttur meginregla umferðarlaga á Íslandi sbr. 4. mgr. 25. umferðarlaga 50/1987 sem segir:
Þegar ökumenn stefna svo, að leiðir þeirra skerast á vegamótum, opnum svæðum eða svipuðum stöðum, skal sá þeirra, sem hefur hinn sér á hægri hönd, veita honum forgang.
Hætta til hægri, var oft sagt í umferðarfræðslu fyrr á árum, en setningin vísar til þess sem við köllum oft hægri rétt. Sumir virðast telja að þar fari samheiti yfir að „hafa rétt fyrir sér“, eða „eiga rétt á“, en svo er ekki. Hægri réttur er að sá á að víkja sem hefur annað ökutæki sér á hægri hönd. Þannig er oft sagt til skýringar að sá sem er á hægri hönd, eigi réttinn.
Í íbúahverfum er margar götur þar sem hægri réttur reglan gildir og því er gott að ökumenn muni eftir að aðgæta hvort að umferðarmerki gildi eða hægri reglan. Þannig krefst aksturinn fullrar einbeitingar. Í umferðarsáttmálanum segir að ég sem vegfarandi taki mið af aðstæðum og á það vel við í þessu tilliti.
Hinsvegar er það svo í dag að mörg gatnamót í íbúðabyggð eru með öðrum umferðamerkjum eða ljósastýringu og meginreglan vill gleymast. Af þeirri ástæðu kemur fyrir að slíkar merkingar eru settar upp til að minna á meginregluna. Í almennum umferðarreglum þá gildir hægri réttur nema þegar umferðarmerki eru til staðar.
Sektin myndi vera að “virða ekki almennan forgang á vegamótum“ og er hún 10.000 kr. og 2 punktar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun taka fyrir umferðaskylti hér á næstu vikum og hvetjum við áhugasama til að fylgjast með. Endillega deilið líka á nýja ökumenn sem þið þekkið.