21/06/2026
Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forseti Akademias, var kjörinn heiðursfélagi EURAM, EURAM Fellow, og er nú meðlimur College of Fellows hjá European Academy of Management. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur hlýtur þessa viðurkenningu.
Fellowship of EURAM er æðsta viðurkenning European Academy of Management og er veitt fræðimönnum sem hafa skilað framúrskarandi framlagi til stjórnunar- og viðskiptafræða, til evrópsks fræðasamfélags og til EURAM samfélagsins. Með inngöngu í College of Fellows kemst Eyþór í hóp reyndustu og virtustu fræðimanna Evrópu á sviði viðskiptafræða.
„Ferill hans endurspeglar fyllilega allt það sem EURAM stendur fyrir. Framúrskarandi framlag hans felst sérstaklega í samþættingu fræðistarfa, forystu innan stofnana, stjórnendamenntunar, frumkvöðlastarfs, stjórnarhátta og samfélagslega þátttöku. Það er mitt mat að samstarfsmaður okkar, Eyþór Ívar Jónsson, sé fulltrúi þeirrar ábyrgu og hagnýtu fræðimennsku sem EURAM metur mikils og viðurkennir meðal sinna heiðursfélaga (Fellows).“
- Kathrin M. Möslein – EURAM Fellow og fyrrverandi forseti EURAM
European Academy of Management, EURAM, eru ein helstu fræðasamtök Evrópu á sviði stjórnunar- og viðskiptafræða. Samtökin voru stofnuð árið 2001 og vinna að því að efla rannsóknir, kennslu og samfélagslega umræðu um stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, og stjórnarhætti. College of Fellows er sérstakur hópur innan EURAM sem styður hlutverk samtakanna með ráðgjöf, leiðtogahlutverki og framlagi til þróunar rannsókna, menntunar og framkvæmdar á sviði stjórnunar.
Eyþór hefur gegnt fjölmörgum leiðtogahlutverkum innan EURAM. Hann hefur verið í framkvæmdastjórn EURAM í átta ár og verið ábyrgur fyrir ráðstefnum EURAM. Hann var ráðstefnustjóri EURAM-ráðstefnunnar í Reykjavík árið 2018 og annar tveggja ráðstefnustjóra fyrir EURAM Dublin Online ráðstefnuna árið 2020, Vice President Conferences hjá EURAM 2020–2026, ráðstefnustjóri EURAM Special Online Pre-Conference 2022–2026, fyrsti National Representative Íslands og var stjórnarmaður hjá EURAM 2018 - 2021.
Eyþór hefur um árabil unnið að því að tengja þekkingu við framkvæmd í atvinnulífinu, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hann hefur verið leiðandi í stjórnarháttum, stjórnendamenntun og frumkvöðlamenntun. Hann hefur byggt upp rannsóknarmiðstöðvar, skóla, hraðla í Danmörku, á Íslandi og víðar. Í gegnum störf sín við Copenhagen Business School, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Seed Forum International, World Business Angel Investment Forum, Klak, Akademias, BAM og EURAM hefur hann byggt brýr milli fræðasamfélags, atvinnulífs og menntunar þvert á landamæri.
Eyþór er forseti og annar stofnenda Akademias sem hefur byggt upp vettvang fyrir stjórnendamenntun, símenntun og vinnustaðaskóla. Hann hefur skrifað hundruð greina um viðskipti, efnahagsmál, nýsköpun og stjórnarhætti.
Við óskum Eythor Ivar Jonsson til hamingju!
Akademias er vettvangur fyrir menntun og þjálfun framtíðarinnar. Akademias vinnur með einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum til þess að efla þekkingu, hugvit og færni með það að markmiði að skapa verðmæti.