18/06/2026
Áhugi á meistaranámi í velsældarfræðum
Við erum að skoða áhuga á nýrri námslínu á meistarastigi, þetta er samstarfsverkefni milli Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík og Embætti landlæknis.
Hefur þú áhuga?
Meistaranám í velsældarfræðum - Online Surveys
Meistaranám í velsældarfræðum - Online Surveys
19/05/2026
Fyrrum nemendur okkar í hagnýtri atferlisgreiningu í viðtali á Bylgjunni í morgun að ræða spilið Endurminningar sem bætir tengsl milli starfsmanna og eldri vistmanna: https://www.visir.is/k/805a4e14-ad0a-491f-b4fb-a3d987210789-1779177563953/spil-sem-baetir-tengsl-milli-starfsmanna-og-eldri-vistmanna
09/04/2026
Í haust fer af stað Sérnám í klínískri taugasálfræði - nám sem er ætlað klínískum sálfræðingum sem vilja sérhæfa sig á sviðinu og stunda nám samhliða klínísku starfi. Námið er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Sjá nánar hér:
Sérnám í klínískri taugasálfræði | Háskólinn í Reykjavík
Klínísk taugasálfræði í HR er sérgrein innan sálfræðinnar sem fjallar um þau áhrif sem heilaskaði, heilasjúkdómar og taugaþroskafrávik hafa á hugræna færni, hegðun og líðan einstaklinga. Aukin þekking og sérhæfing á þessu sviði er lykilatriði til að bæta greiningu, me...
20/03/2026
Áhrif endurgjafar á virkni heilans - Vísir
Nám byggir að stórum hluta á því hvernig við bregðumst við afleiðingum hegðunar: við endurtökum það sem skilar árangri og drögum úr því sem gerir það ekki. Þess vegna skiptir endurgjöf – að fá skýr skilaboð um hvað er rétt og rangt – miklu máli þegar við erum að...
06/03/2026
Í tilefni Alþjóðlegrar heilaviku 16.–22. mars býður Háskólinn í Reykjavík upp á fjölbreytta dagskrá fyrir almenning. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi heilarannsókna og efla fræðslu um heilann og heilahreysti.
Alþjóðleg heilavika í Háskólanum í Reykjavík | Háskólinn í Reykjavík
Í tilefni Alþjóðlegrar heilaviku 16.–22. mars býður Háskólinn í Reykjavík upp á fjölbreytta dagskrá fyrir almenning. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi heilarannsókna og efla fræðslu um heilann og heilahreysti. Miðvikudagur 18. mars Nemendakynningar Kl. 10:10–11:50 ....
12/02/2026
Námskeið um geðheilsukvíða 👇
Hefur þú kvíða og áhyggjur af geðrænum einkennum, svo sem ótta við að missa stjórn á tilfinningum eða hugsunum eða veikjast andlega? Þá gætirðu haft áhuga á að taka þátt í fræðslunámskeiði um geðheilsukvíða. Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og verður stýrt af MSc nemum í klínískri sálfræði í HR sem eru í starfsþjálfun á Rannsóknar- og þjálfunarseturs Sálfræðideildar HR undir handleiðslu tveggja reyndra sálfræðinga.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiðinu og vilja meiri upplýsingar geta haft samband við Sævar Má Gústavsson, sálfræðing og stundakennara við Háskólann í Reykjavík, hér 📧 [email protected].
29/01/2026
Vilt þú taka þátt í rannsókn á geðheilsukvíða?
Óskað er eftir einstaklingum 18 ára og eldri sem upplifa kvíða og áhyggjur af geðrænum einkennum. Í rannsókninni felst þátttaka á námskeiði byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar fyrir geðheilsukvíða og að svara spurningalistum í upphafi og lok námskeiðs.
Námskeiðið verður s*x skipti og munu tveir MSc nemar í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík sjá um námskeiðið undir handleiðslu reyndra sálfræðinga.
Hafir þú áhuga á að taka þátt og vilt nánari upplýsingar vinsamlega hafðu samband við Sævar Má Gústavsson með því að senda póst á 📧[email protected]. Sævar Már er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar, sálfræðingur og stundakennari við HR.