17/10/2024
🎈Klébergsskóli 95 ára og leikskólinn Berg 20 ára 🎈
Um þessar mundir eru 20 ár síðan leikskólinn Berg var vígður og á laugardaginn eru 95 ár frá því barnaskólinn á Klébergi var vígður.
Undanfarna daga hafa börnin á Bergi og nemendur í Klébergsskóla unnið verkefni í tengslum við afmælið.
Á morgun - föstudaginn 18. september - er opið hús í Klébergsskóla kl. 8:15-9:00 þar sem nemendur eru leiðsögumenn foreldra sinna og það eru allir velkomnir. Nemendur eru búnir að baka og bjóða í morgunkaffi. Svo er foreldrum boðið að kíkja við í leikskólanum kl. 15:30 og fá sér kaffi.
12/08/2024
Nú leitum við að kennara til að kenna á píanó við tónlistarskólann á Klébergi!
Reykjavík störf
Á þessari síðu má finna lista yfir laus störf hjá Reykjavíkurborg.
15/09/2023
Aðalfundur foreldrafélags Klébergsskóla verður mánudaginn 18. september kl. 17 📌
25/08/2023
Skólasetning Klébergsskóla var þriðjudaginn 23. ágúst í sól og blíðu ☀️
95. skólaárið er hafið og spennandi starf framundan 🍀
24/05/2023
🎈📖Borgarbókasafn opnar á Klébergi fimmtudaginn 25. maí kl. 16:00 📚🎈
borgarbokasafn.is
28/04/2023
👏🌿🌿🌿🌿👏
Í vikunni fengum við á Klébergi viðurkenningu fyrir að hafa náð fjórum skrefum í verkefninu Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar.
En það er ekki þar með sagt að við ætlum að staldra við þar - við þurfum að viðhalda þessu góða starfi og vera vakandi yfir því hvað við getum gert enn betur.
Uppfylling 4. græna skrefsins og umhverfisdagur - Kleberg
Í dag fékk Klébergsskóli afenda viðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir að hafa tekið öll 4 grænu skrefin sem stofnanir hennar eru hvattar til að uppfylla til að vera umhverfisvænar stofnanir. Viðurkenningin var veitt rétt áður en nemendur ásamt starfsfólki fór út í blíðviðri....
17/10/2022
Fimmtudaginn 20. október kl. 9-10:30 verður opið hús í Klébergsskóla. Nemendur verða í hlutverki leiðsögumanna og leiða gesti sína um skólann og í matsalnum verður kaffihús.
Þessa vikuna eru þemadagar og eru nemendur að vinna að ýmsum verkefnum sem tengjast grænfánanum enda er Klébergsskóli skóli á grænni grein 🌿
Hlökkum til að taka á móti ykkur!
Nemendur og starfsfólk Klébergsskóla
20/10/2021
Fimmtudaginn 21. október verður opið hús í Klébergsskóla frá kl. 8:15-8:55. Þar verður til sýnis á veggjum skólans afrakstur þemavinnu nemenda varðandi grænfánaviðfangsefnið okkar sem er HNATTRÆNT JAFNRÉTTI. Nemendur eru leiðsögumenn foreldra sinna, opið verður inn í allar stofur en verkefni nemenda hanga uppi á veggjum vítt og breytt um skólann.
Allir foreldrar og aðrir áhugasamir eru velkomnir í heimsókn. Við erum spennt að bjóða gestum í húsið og biðjum alla gesti að spritta hendur við innganginn og vera með grímu, þrátt fyrir almenna afléttingu grímuskyldu í samfélaginu.
Hlökkum til að taka á móti ykkur!
Nemendur og starfsfólk Klébergsskóla
19/10/2021
Klébergsskóli er 92 ára í dag og ber aldurinn vel 🎈
23/04/2021
Í dag er umhverfisdagur í Klébergsskóla. 🌍 Af því tilefni munu nemendur ganga um og tína rusl 🚮 Elstu nemendurnir fara í fjöruna í átt að Saltvík, miðstigið verður við Vallargrundina og Brautarholtsveg og yngstu krakkarnir taka umhverfi skólans, fótboltavöllinn og leikvöllinn í hverfinu. Börnin á Bergi taka umhverfi leikskólans ♻️ Ég hvet svo hverfisbúa til að taka við keflinu og halda áfram. Gleðilegt og hreint sumar! 🍀🌼🌞
20/03/2020
Hér eru leiðbeiningar frá embætti landlæknis og sálfræðingi Rauða krossins um samkomubann og börn utan skólatíma.
Reykjavík 20. mars 2020
Efni: Samkomubann og börn
Skólar, leikskólar og íþróttafélög hafa skipulagt vandlega fyrirkomulag næstu daga og vikur til að fara eftir fyrirmælum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi og samkomum.
Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi á sama tíma úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma til að vinna ekki gegn þessum ráðstöfunum. Gott er að hafa eftirfarandi í huga:
Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi í skólastarfinu ættu ekki að vera í návígi utan skóla.
Hafi börnin þroska til að fara eftir leiðbeiningum sem snúa að minni snertingu við vini er ekki útilokað að þau geti hist í leikjum. Leikirnir mega ekki fela í sér beina snertingu, notkun á sameiginlegum leikföngum eða búnaði sem snertur er með berum höndum.
Börn og ungmenni ættu ávallt að þvo sér vel um hendur bæði áður en þau hitta félaga sína og eftir að þau koma heim.
Fjölskyldur ættu að hafa í huga að ef börnin umgangast mikið vini eða frændsystkini úr öðrum skólum eða skólahópum þá verður til tenging milli hópa sem annars væru aðskildir. Slíkt ætti að forðast eins og kostur er.
Fjölskyldur eru hvattar til að nýta sér tæknina til að halda góðum tengslum við ástvini sem eru í áhættuhópum vegna COVID-19 sýkinga, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma.
Einnig væri hægt að nota tækifærið að kenna börnunum að skrifa sendibréf og æfa í leiðinni skrift, stafsetningu, virkja ímyndunaraflið og hugsa í lausnum þegar kemur að samskiptum við ástvini okkar.
Varðandi heimili þar sem sumir eru í sóttkví en aðrir ekki:
Börn sem hafa þroska og getu til að sinna eigin hreinlæti og halda viðeigandi fjarlægð við foreldra sem eru í sóttkví sem og við skólafélaga geta áfram sinnt námi í skólastofu. Mikilvægt er að gæta að hreinlæti t.d. nota sér salernisaðstöðu.
Foreldrar stálpaðra barna sem eru í sóttkví og geta haldið viðeigandi fjarlægð frá börnunum meðan á sóttkví stendur geta áfram sinnt vinnu á vinnustað ef fjarvinna er ekki í boði.
Heimilið verður allt að fara í sóttkví ef börn hafa ekki þroska eða getu til að virða þær ráðstafanir sem gilda í sóttkví. Önnur leið til að leysa slíkt væri ef þeir sem ekki eru í sóttkví færu eitthvað annað á meðan á henni stendur.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Deildarstjóri almannavarna höfuðborgarsvæðisins
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.
(+354) 8626375 (+354) 528 3000 [email protected] http://shs.is Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, Ísland
www.ahs.is