23/10/2025
𝐒𝐭𝐚𝐫𝐜𝐨𝐝𝐞𝐬 𝐀𝐜𝐚𝐝𝐞𝐦𝐲 𝐞𝐫 í 𝐬𝐭öð𝐮𝐠𝐫𝐢 þ𝐫ó𝐮𝐧 – 𝐨𝐠 𝐯𝐢ð 𝐭ö𝐤𝐮𝐦 𝐲𝐤𝐤𝐮𝐫 𝐦𝐞ð
Undanfarna mánuði höfum við lagt grunninn að útrás yfir Atlantshafið. Það sem byrjaði sem draumur með rætur á Íslandi er nú að vaxa í alþjóðlegt verkefni sem ætlað er að hjálpa enn fleirum að uppgötva kraftinn sinn og tengja við alla þá möguleika sem lífið býður upp á þegar við lifum tilganginn okkar.
Við erum ótrúlega stoltar af því sem við höfum byggt upp saman hér heima. Trú ykkar á okkur gerði þetta allt mögulegt – þið voruð þau fyrstu sem genguð með okkur, sem treystu sýninni áður en hún var sýnileg. Vegna ykkar stöndum við nú á þeim punkti að allt er mögulegt og fyrir það erum við afar þakklátar.
Vegna þess að okkur er umhugað um að þjóna ykkur betur, erum við að gera meðvitaðar breytingar á því hvernig við tengjumst og eigum samskipti við ykkur – breytingar sem endurspegla hvert Starcodes Academy er að stefna næst.
𝟏. 𝐏𝐞𝐫𝐬ó𝐧𝐮𝐥𝐞𝐠𝐫𝐢 𝐭𝐞𝐧𝐠𝐢𝐧𝐠
Héðan í frá munum við deila okkar eigin þróun, kennslu og innsýn í lífið og tilveruna í gegnum okkar persónulegu Facebook prófíla, frekar en síður skólans. Við viljum að samtöl okkar við ykkur séu mannlegri, beinskeyttari og í meira samræmi við þá orku sem við erum að stefna að. Þið getið litið á þetta sem boð til ykkar um að skyggnast á bak við tjöldin og inn í okkar raunverulega ferðalag. Við hvetjum ykkur því til að tengjast okkur persónulega á Facebook. Prófílana okkar finnur þú í athugasemdum hér fyrir neðan.
𝟐. 𝐒𝐚𝐦𝐞𝐢𝐠𝐢𝐧𝐥𝐞𝐠𝐭 𝐚𝐥þ𝐣óð𝐥𝐞𝐠𝐭 𝐭𝐮𝐧𝐠𝐮𝐦á𝐥
Þar sem alþjóðlegur áheyrendahópur okkar er að stækka munum við aðallega deila efni á ensku héðan í frá. Þýðingartól Facebook gera það auðvelt að þýða færslurnar á íslensku, svo allir geta haldið áfram að fylgjast með. Þessi breyting gerir okkur kleift að byggja upp eitt sameinað samfélag án landamæra.
𝟑. 𝐍ý 𝐥𝐞𝐢ð 𝐭𝐢𝐥 𝐚ð 𝐡𝐚𝐥𝐝𝐚 𝐭𝐞𝐧𝐠𝐬𝐥𝐮𝐦 á Í𝐬𝐥𝐚𝐧𝐝𝐢
Til að heiðra samfélagið sem byrjaði þetta allt, kynnum við Sálarfundi, ókeypis Zoom-viðburði á 8 vikna fresti. Þessir tímar eru okkar leið til að halda góðum tengslum, bjóða upp á rými fyrir spurningar, innsýn og orkuleiðsögn eftir því sem við vöxum saman.
Fyrsti 𝐒á𝐥𝐚𝐫𝐟𝐮𝐧𝐝𝐮𝐫𝐢𝐧𝐧 verður haldinn 28. október kl. 17:30 – hægt er að skrá sig í gegnum heimasíðuna okkar, sjá hnapp hér að neðan.
Á Íslandi munum við halda áfram að bjóða upp á fallega Hjartaakurssamfélagið okkar og þau námskeið sem hafa byggt upp kjarnastarfsemina okkar hingað til; Þín persónulega umbreyting, Lifðu þinn tilgang, Engla Reiki og Heilun ættarlína. Ekki er ólíklegt að fleiri námskeið eða námskeiðsseríur muni líta dagsins ljós, en það skýrist betur eftir því sem fram líður.
Við erum að stíga inn í nýjan kafla – sem er stærri, djarfari og leiddur af sömu ástríðu og byrjaði þetta allt.
Takk fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi.
Með þakklæti og eftirvæntingu 💜
Alma, Hrabbý og Starcodes Academy teymið
P.s. Við hvetjum þig til að skrá þig fyrir fréttabréfinu okkar á heimasíðunni starcodesacademy.is ef þú hefur ekki þegar gert það