Flugfélagið Geirfugl

Flugfélagið Geirfugl Stærsti flugklúbbur Íslands
www.geirfugl.is Flugfélagið Geirfugl er stærsti flugklúbbur á Íslandi og EASA vottaður flugskóli.

Við erum staðsett í skýli 25 í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli. Located at hangar 25 in Fluggarðar, at the west part of Reykjavik Airport. Geirfugl ATO is the largest flying club in Iceland and an EASA approved flight training academy.

Samkvæmt kröfum Flugöryggisstofnunar Evrópu eru flugkennarar skyldugir að sækja upprifjunarnámskeið með reglulegu millib...
12/09/2026

Samkvæmt kröfum Flugöryggisstofnunar Evrópu eru flugkennarar skyldugir að sækja upprifjunarnámskeið með reglulegu millibili. Alls mættu 16 í dag. Flottur hópur.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið 5 klst. á SEP(A) síðastliðna 6 mánuði fyrir pre-entry flight test.  Námið kostar 1.643.9...
09/09/2026

Umsækjendur þurfa að hafa lokið 5 klst. á SEP(A) síðastliðna 6 mánuði fyrir pre-entry flight test. Námið kostar 1.643.900.- miðað við núgildandi verðskrá. Nánar um inntökuskilyrði á skráningarsíðunni.

07/09/2026

Á sama tíma og íslenskt flug horfir til framtíðar sjáum við breytingar á því hvernig flugfélög skipuleggja starfsemi sína. Í sífellt harðara alþjóðlegu samkeppnisumhverfi leita stjórnendur eðlilega leiða til að lækka kostnað, auka sveigjanleika og bæta nýtingu flugvéla. Sú leit getur meðal annars leitt til þess að hluti flugrekstrar, starfa og starfsemi íslenskra flugfélaga færist út fyrir landsteinana.

Slíkar ákvarðanir kunna að vera skiljanlegar þegar horft er til rekstrar einstakra félaga til skemmri tíma. En þegar horft er til íslensks flugs í heild og til lengri tíma þarf jafnframt að spyrja hvort slík þróun geti smám saman grafið undan þeim grunni sem árangur íslensks flugs hefur byggst á.

Flugrekstur er nefnilega meira en flugvélar og flugleiðir. Í kringum öflugan flugrekstur verður til þekkingarsamfélag flugmanna, flugvirkja, flugrekstrarfræðinga, þjálfunarfólks, stjórnenda og fjölmargra annarra sérfræðinga. Þar verður til reynsla sem flyst milli kynslóða og styður við allt flugumhverfið – allt frá flugkennslu og grasrótarstarfi til flókins alþjóðlegs flugrekstrar.

Ef sífellt stærri hluti starfseminnar færist úr landi er hættan sú að með tímanum fylgi störfin og þekkingin á eftir. Þá getur orðið erfiðara fyrir ungt fólk að hefja og þróa starfsferil sinn í flugi hér heima, færri tækifæri verða til fyrir sérhæfð störf og tengslin milli grasrótar, flugnáms og atvinnuflugs veikjast. Þegar slík þekking hefur einu sinni horfið úr landi getur tekið langan tíma að byggja hana upp aftur.

Þetta snýst því ekki um að leggjast gegn alþjóðavæðingu eða eðlilegri þróun íslenskra flugfélaga. Þvert á móti þarf íslenskt flug að vera alþjóðlegt og samkeppnishæft. Verkefnið er að finna jafnvægi þar sem íslensk flugfélög geta nýtt þau tækifæri sem felast í alþjóðlegum rekstri án þess að við glötum þeirri þekkingu, færni og starfsemi sem hefur verið byggð upp hér á landi í áratugi.

Fyrir Flugmálafélag Íslands hlýtur þetta að vera eitt af verkefnum framtíðarinnar: að standa vörð um að Ísland verði áfram ekki aðeins áfangastaður flugvéla heldur land þar sem flugstarfsemi, þekking, menntun og atvinnulíf í kringum flug fær að vaxa og dafna.

05/09/2026

Tæknin ein og sér skapar þó ekki framtíð flugsins. Það gerir fólkið. Ein stærsta áskorun næstu ára verður nýliðun. Við þurfum áfram flugmenn, flugkennara, flugvirkja, flugumferðarstjóra, verkfræðinga og annað fagfólk. En við þurfum líka einfaldlega fólk sem hefur áhuga á flugi. Þar skiptir grasrótin sköpum.

Flugklúbbar, flugskólar, áhugamannafélög og minni flugvellir eru ekki jaðarstarfsemi við „hið raunverulega flug“. Þau eru hluti af grunnkerfi íslensks flugs. Þar verður áhuginn til. Þar stíga margir sín fyrstu skref. Þar byggist upp reynsla og þar verða til flugmenn og annað fagfólk sem síðar starfar í atvinnuflugi.

Þess vegna þarf að standa vörð um aðgengi að flugi, öfluga flugkennslu og þá innviði sem gera grasrótarstarf mögulegt.

Á sama tíma þurfum við að standa vörð um íslenskan flugrekstur. Saga síðustu níutíu ára sýnir hvað getur gerst þegar lítil þjóð byggir upp eigin þekkingu og getu í flugi. Sú þekking er verðmæt og hún verður ekki sjálfkrafa til aftur ef hún tapast.

Flugfélagið Geirfugl er stoltur aðili Flugmálafélags Íslands. Til hamingju með tímamótin.
26/08/2026

Flugfélagið Geirfugl er stoltur aðili Flugmálafélags Íslands. Til hamingju með tímamótin.

Frá fyrsta flugi
Fyrsta flug flugvélar á Íslandi fór fram árið 1919. Það markaði upphaf nýs kafla í samgöngusögu þjóðarinnar, þótt þróunin yrði ekki bein eða fyrirhafnarlaus. Á næstu árum og áratugum varð smám saman til hópur Íslendinga sem hafði brennandi áhuga á flugi og trú á því að þessi nýja samgöngutækni gæti haft sérstaka þýðingu fyrir land eins og Ísland.

Sumarið 1936 tók þróunin stórt skref. Aðeins um tveimur vikum áður en Flugmálafélag Íslands var stofnað varð Svifflugfélag Íslands að veruleika. Þessi mikla gróska á svo skömmum tíma segir sína sögu. Flugið var farið að festa rætur og hópur frumkvöðla var staðráðinn í að skapa því framtíð hér á landi.

Flugmálafélag Íslands var síðan stofnað 25. ágúst 1936. Strax á fyrstu fundum félagsins má finna athyglisverða framsýni. Þar var ekki eingöngu rætt um flug innanlands heldur möguleika Íslands í millilandaflugi. Landfræðileg staða Íslands, mitt á milli Evrópu og Norður-Ameríku, gæti skapað tækifæri sem fámennt samfélag við ysta haf hafði áður vart getað ímyndað sér. Þetta var djörf hugsun árið 1936. Í dag vitum við að hún reyndist rétt.

Sindri Sveinsson fór sitt fyrsta einflug í dag.  Myndin er tekin á Sandskeiði.  Innilega til hamingju Sindri!
23/08/2026

Sindri Sveinsson fór sitt fyrsta einflug í dag. Myndin er tekin á Sandskeiði. Innilega til hamingju Sindri!

Kristófer Birgisson fór sitt fyrsta einflug (solo) í gær.  Við óskum honum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áf...
19/08/2026

Kristófer Birgisson fór sitt fyrsta einflug (solo) í gær. Við óskum honum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga :-)

Andri Már Fanndal lauk AUPRT þjálfun hjá okkur í gær.  Til hamingju Andri :-)
03/08/2026

Andri Már Fanndal lauk AUPRT þjálfun hjá okkur í gær. Til hamingju Andri :-)

08/07/2026

Veistu um einhvern sem hefur alltaf dreymt um að læra að fljúga?

Address

Flugskýli 25
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flugfélagið Geirfugl posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Flugfélagið Geirfugl:

Shortcuts

Share

Category