Einkaþjálfun hugans

Einkaþjálfun hugans

Share

Fræðsla & fróðleikur um heildræna heilsu. Fjögurra barna móðir & fleira.

Photos from Einkaþjálfun hugans's post 14/05/2026

Á miðvikudaginn var komu Ingibjörg vinkona & níræður pabbi hennar, Feddi góði, í heimsókn til okkar Glóeyjar.

😇Heimspekilegar samræður um það hvernig við myndum vilja sjá heiminn vera, borðuðum saman bakarísmat og fórum í göngutúr um hverfið.

Þetta er lífið ef þú spyrð mig🙏🏽
Samverustundir & að hjálpast að við að hugsa um hvort annað💗
Eldra fólkið elskar líka svo mikið að vera í kringum svona litla engla - og öfugt!

Kærleikskveðjur út í kosmósið,
Dóra💗

18/03/2026

Blessuð börnin stýra alveg ferðinni fyrstu mánuði lífs þeirra og þannig á það líka að vera.
Þau leiða & við sem um þau hugsum, erum í þjónustuhlutverki🧘🏼‍♀️.

Hvernig getum við þjónað sem best?
💫Haldið rólegu taugakerfi
💫Meðvituð hugsun & hegðun
💫Hugsað vel um okkur sjálf
💫Hvíld, hvíld & meiri hvíld!
💫Útivera & súrefni.

Hvað þarftu í dag, til að vera í góðu jafnvægi?

Kærleikur út í kosmósið,
Dóra

13/03/2026

“Börn eru guðsgjöf” - Við höfum öll heyrt það❤️
En hefurðu einhvern tíma staldrað við og hugsað af hverju?

Kannski vegna þess að þau koma til okkar til að kenna okkur að elska – og minna okkur á ástina og kærleikann sem við gleymum stundum í hraða lífsins.

Þau minna okkur á hvernig á að hugsa um þá sem enn geta ekki sinnt sínum eigin grunnþörfum.
Þau minna okkur líka á að lifa í núinu og taka eftir öllu því fallega sem er í kringum okkur.

Börn færa okkur tæra gleði.
Þau fá okkur til að hlæja, gantast og njóta lífsins af einlægni.

Þau minna okkur á að staldra við í dagsins önn, draga djúpt andann og vera meira… í stað þess að vera alltaf að gera.

Börnin hjálpa okkur að hægja á.
Og þegar við hægjum á, finnum við oft aftur leiðina að eigin hjartaró.

✨ Hvað hefur barn í þínu lífi kennt þér?

11/12/2025

Heimurinn er á hvolfi. Við skyljum sem skyljum.
En hvað getum við gert?

Èg hef varið èg veit ekki hversu miklum klukkustundum s.l. mánuðina í að kynna mèr hvað raunverulega er um að vera í þessum heimi sem við búum í. Því meira sem èg les, hlusta & skoða, því minna veit èg í raun.

En eitt veit èg þó. Við erum ekki á góðum stað og èg velti því fyrir mèr hvernig við ætlum að snúa þessu við?💗

Til þess að skapa eitthvað nýtt og betra, þá er ekki málið að velta sèr upp úr “vandamálunum” endalaust, það kemur engin lausn með því er það?

Við höfum öll misjöfnum verkefnum að sinna samt, og sumir eiga vera í því áfram að vekja okkar hin til umhugsunar um heimsmálin. Þakklàt þeim sem eru að sinna þessum málum!🫶🏼

En èg finn að mín köllun er ekki í því að benda á allt þetta slæma í heimsmálunum.

☀️Jú nú langar mig til þess að fara setja athygli mína yfir á allt það góða, allt það jákvæða, og að minna okkur öll á hvað við getum gert til þess að láta okkur sjálfum líða betur.

☀️Í dag ætla èg t.d. að hvíla mig á frèttamiðlum og hljópvarps hlustunum. Hvíla mig á símahangsinu líka og blessaða kommentakerfinu. Skapa í staðinn í meiri ró og frið hèr heima, og að njóta þess að heyra í eigin hugsunum. Setja athyglina á það að virkilega sjá fólkið mitt, og annað fólk líka sem èg hitti á förnum vegi í gegnum daginn minn. Brosa til spegilmyndarinnar í speglinum og til allra sem á vegi mínum verða í dag.

☀️Hugmynd! Eigum við kannski öll að hvíla okkur bara frá frèttamiðlum og öðru neikvæðu yfir jólatímann?🎄 Einbeita okkur að hvort öðru í staðinn, vera virk í samverustundum og að gera skemmtilega hluti yfir hátíðirnar? Þetta er t.d. ein góð leið til þess að verða heilbrigðari og heilli. Tengsl við annað fólk & gleðistundir, þær gefa okkur meira en okkur grunar!

Knús & kærleikur út í kosmósið,
Dóra💗

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Háaleitisbraut 13
Reykjavík