23/08/2024
Framfarir í íslenskum menntamálum eru okkur hjartans mál, og við fögnum auknum áhuga á því að bæta bæði námsefni og skráningu upplýsinga. Það er gríðarlega mikilvægt að leggja meira fjármagn í málaflokkinn og byggja upp kerfi sem tryggir framúrskarandi menntun fyrir alla nemendur á Íslandi.
Við styðjum þróun námsefnis sem kennarar og menntatæknifyrirtæki smíða, og viljum að þetta frábæra efni nái til sem flestra skóla. Samkeppni í menntakerfinu er nauðsynleg, og við eigum að leita samstarfs við vísindamenn og sérfræðinga erlendis til að tryggja að íslenskir nemendur njóti allra þeirra möguleika sem nýjustu rannsóknir og tækni bjóða upp á.
Til þess að fylgja erindinu eftir, lögðum við fram tillögur sem við teljum að muni hjálpa að ná þessum markmiðum í samráðsgátt, sjá: https://island.is/samradsgatt/mal/3795
Við vonum að tillögurnar hljóti brautargengi!
Við erum bjartsýn á framtíðina og vonum að þessar breytingar leiði til þess að Ísland verði besti staðurinn til að vera barn með framúrskarandi menntun.
Í drögum að frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um grunnskóla um aukna fjölbreytni matstækja sem standa grunnskólum til boða, gagnaöflun og nýtt fyrirkomulag skyldubundins samræmds námsmats.